Vísir


Vísir - 01.08.1962, Qupperneq 1

Vísir - 01.08.1962, Qupperneq 1
VÍSIR 52. árg. — Miðvikudagur 1. ágúst 1962. — 179 tbl. ■MM—lllllllliyi—■UI^IWWWWWIW——WWW—WWM Samningarnir í Brussel: Aðeins eining forðar hruni MIKIL AHKIFA AFSTODU OKKAR ISLFNDINCA Ummæli viðskiptamálaráðherra í morgun Þeir samningar sem þessa dagana standa yf- ir í Brussel milli Bret- lands, Danmerkur og Efnahagsbandalagsins hafa mikil áhrif á af- stöðu okkar íslendinga til bandalagsins, sagði Gylfi Þ. Gíslason við- skiptamálaráðherra, þegar Vísir átti tal við hann í morgun. Við Islendingar hljótum að vona, sagði ráðherrann, að samningarnir milli Bretlands og EBE leiði til jákvæðrar niðurstöðu. Ávailt hefir verið gert ráð fyrir því að ef Bretar fá inngöngu í Efnahagsbanda lagið, þá verði Danir teknir I það líka. Það væri Islending- um tvímælalaust mikiu heppi Iegra að sem fiest ríki Vestur Evrópu sameinist í Efnahags bandalaginu en að álfan sé klofin í tvær viðskiptaheildir, Efnahagsbandalagið og Frí- verzlunarsvæði sjöveldanna (EFTA). Þær heildir hafa að ýmsu leyti mjög ólíka hags- muni, sem leiða mundu til ým iss konar átaka á viðskipta- sviðinu, sagði ráðherrann enn fremur. — Áiítið þér þá að samn- ingar muni nást í Brussel þessa dagana? — Ég er þeirrar skoðunar, sagði ráðherrann, að samning amir muni ekki stranda, held ur muni nást samkomulag sem báðir aðilar geta við un- að. Leiðtogar Serkja safnast nú sam- an í Algeirsborg og virðist svo sem menn ætli að bregðast vel við áskorunum Ben Khedda um að halda þar fund til þess að jafna deilumálin. — Ben Bella er sagður væntanlegur þangað á morgun frá Oran. Það er talið hafa bætt horfurnar mikið, að Boudiaf varaforsætis- ráðherra var sleppt úr haldi í gær, en hermenn Ben Bella höfðu hand- tekið hann í heimabæ hans. Var honum sleppt fyrir eindregin til- mæli Ben Khedda. Mikið er talið undir leiðtog- um Serkja í Kabiliufjöllum' komið — leiðtogar á hersvæð- um landsins þar hafa vaxandi Framh. á 5. síðu. Samningar í deilu kjötiðnaðarmanna ☆ Félag kjötiðnaðarmanna sam- þykkti I gær á fundi sínum sam- komulag það, sem náðist i fyrri- nótt á fundi samninganefndar þeirra og atvinnurekenda i kjöt- iðnaðinum. Var það og staðfest af atvinnu- rekendum og því afstýrt verkfalli kjötiðnaðarmanna, sem boðað hafði verið frá og með deginum í dag að telja. Samningar náðust um allveru- legar kjarabætur og samið á svip- uðum grundvelli og við ýmsar aðrar stéttir. \ Trésmiðadeilan. Allt sat við það sama í morgun, í trésmiðadeilunni, er Vísir spurð- ist fyrir urn hana, og ekki verið boðaður fundur. í sólskininu í gær hittum við þessa hafmeyju vestur á Sel- tjarnarnesi. Hún heitir Sigur- veig Lúðvíksdóttir og átti fri úr vinnunni. Hún segist ekki gera sérlega mikið að því að fara í sólbað, en er þó ekki hrifin af því að þurfa að vera inni þegar veðrið er gott. Við fengum að taka þessa mynd með því skilyrði að segja ekki hvar hún væri tekin, því að þá má telja víst að staðurinn myndi yfirfyllast samstundis. Það eru myndir af fleiri stúlk- um í Myndsjá á þriðju síðu, fyrir þá, sem áhuga hafa á slíku. — Ljósm. Vísis, I. M. Afgreiðsla flugvéla áKefla- víkurflugvelli tefst ekkert Afgreiðslu flugvéla á Keflavíkurflugvelli er hald ið uppi eftir sem áður þótt flugumsjónarmenn legðu niður vinnu um miðnætti. Um miðnætti kom hóp- ur starfsmanna Loftleiða úr Reykjavík suður á Keflavíkurflugvöll og tók við störfum, þegar hinir Iögðu þau niður. En Loft- leiðir hafa sem kunnugt er tekið við rekstri Keflavík- urflugvallar. ENGAR TAFIR. Um nóttina komu þrjár útlend- ar flugvélar til millilendingar á Keflavíkurflugvelli og voru þær allar afgreiddar eins og ekkert hefði í skorizt. Fyrst kom flugvél bandaríska flugfélagsins Saturn Airways af gerðinrii DC-6B með 80 farþega. Síðan kom Stratocruis- er flugvél frá hernum og loks stór finnsk farþegaflugvél. Urðu flug- vélarnar hvorki fyrir töfum né ó- þægindum af þessari deilu. 14 HÆTTA STARFI. Menn þeir, sem lögðu niður störf eru 14 talsins, 5 fiugumsjónar- menn, 4 farþegaafgreiðslumenn og 5 verkstjórar. Vísir átti stutt tal við einn þeirra 1 morgun, Pál Jóns- son flugumsjónarmann. Hann1 sagði að þeir hefðu iagt niður vinnu vegna deilu við Loftleiðir, sem hefði tekið við rekstrinum. Framh. á bls. 5.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.