Vísir - 02.08.1962, Side 1

Vísir - 02.08.1962, Side 1
Dr. Jón Sigurðsson, borgarlæknir í viðtali við Vísi í morgun: Sóttkveikjan enn ófundíri tSF í gær fundu drengir úr Langholtinu einkenni Iegan hlut í hólum milli Vatnagarða og Klepps. Þetta reyndist vera sprengja og munaði minnstu að einn drengj- anna Ægir Hrólfur Þor- varðsson slasaðist illa, þegar hún sprakk. Var það mesta mildi að hann hlaut aðeins minnihátt- ar skrámur og gat nú aft ur í morgun verið úti að leika sér. Drengirnir fundu þennan hlut um miðjan dag £ gær. Var hann með vörum og sögðu sum- ir drengjanna að þetta væri j sprengja. Þeir kveiktu bál úr trébútum og köstuðu hlutnum | síðan að gamni sínu á bálið. > En rétt þegar einn drengurinn j hafði kastað hlutnum á eldinn fi lcom Ægir litli að og sagði. I — Þetta er engin sprengja. | Nálgaðist hann bálið og ætlaði | að athuga hlutinn. En áður en hann kæmist nær bálinu sprakk hluturinn og hefði Ægir ekki mátt vera kominn nær til þess að verra hlytist ekki af. Hann siapp með minni háttar i skrámur. Fóru smáflísar úr sprengjunni, ein í fót hans, ein í kinnina, og ein á höfuð hans rétt við eyrað. Þykir hann þannig hafa sioppið vel úr húskanum. Kröfur BSRB ræddar árg. — Fimmtudagur 2. ágúst 1962. — 180 tbl. Enn þá hefir engin smit- beri taugaveikibróður fundizt í Reykjavík, né heldur taugaveikibróður- sóttkveikja í neinni ákveð- inni vörutegund, sagði borgarlæknir, dr. Jón Sig- urðsson, í viðtali við Vísi í morgun. All margar mat- vælaverzlanir hafa legið undir grun síðustu vikur og allir starfsmenn nokk- urra verzlana verið rann- sakað;'. Smitberar hafa h"ergi fundizt enn. Umferðarþáttur Gests Þorgrímssonar verður tekinn upp í flugvél um næstu helgi. Helgin, sem í hönd fer er mesta umferðarhelgi ársins. Bjöm Pálsson mun fljúga með Gest yfir mesta umferðarsvæðið og verður útvarpað úr leiðangrinum í þættinum „í umferðinni“ n. k. laugardag. Það eru umferðarnefnd Reylcjavíkur og Slysavarnarfélag íslands, sem standa straum af kostnaðinum. Þáttur Gests er fyrir löngu orðinn þýðingarmikill fyrir bætta umferðamenningu. Myndin sýnir Gest og Björn Pálsson Ieggja upp til athugunar fyrir upp- tökuna. 1 gær var haldinn fyrsti fundur | samninganefndar ríkisstjómarinn- ar og KjararáSs BSRB (Bandalags starfsmanna ríkis og bæja) um I kaup og kjör opinberra starfs- I manna. Fundur þessi var haldinn eins og til er ætlazt í lögum. Rætt var um kröfur starfsmanna um uppbót til ■ bráðabirgða til samræmis við kröfur, sem önnur stéttafélög í hafa verið gerðir, en tillögur um þá eru ekki fullbúnar. ( Lög þau, sem vikið ei að hér að ofan, fjalla um samningsrétt opin- berra starfsmanna, sem með þeim var viðurkenndur, og .voru þau af- greidd frá síðasta Alþingi, en ríkis- stjórnin beitit sér fyrir málinu, eftir að samkomulag um Iausn þess hafði náðst milli hennar og BSRB. í gærkvöldi kom til uppþota þriðja kvöldið í röð í Dudley á Englandi út af kynþáttavandamál- um. — Tólf menn voru handtekn- ir fyrir að trufla frið á ahnanna fteri og voru leiddir fyrir rétt ár- degis £ dag. Rökstuddur grunur leikur hins vegar á að sóttkveikjan leynist í majonnaise, sem búið er til úr olíu og eggjum, og þá einnig í eggjum. Hins vegar þarf fólk ekld að hræðast egg ef þau eru vel soðin áður en þau eru snædd. NÝJAR UPPLÝSINGAR. Vísir kynnti sér taugaveiki- bróðurmálið í ýtarlegu samtali við borgarlækni í morgun og komu þá fram ýmsar nýjar upplýsingar og önnur atriði skýrðust sem almenn- ingur í bænum hefir mjög velt fyrir sér síðustu daga. Taugaveikibróðir hefir nú herj- að hér í bænum í tvo mánuði og hafa alls tekið veikina fram að siðustu viku 189 manns. Vikan, sem lauk 21. júlí, var versta vikan, þá tóku veikina alls 92 menn og konur. Upplýsingar um sjúklinga- fjölda ná ekki lengra, en allar horfur eru á því að veikin sé nú i rénum. HVÍ VAR EKKI LOKAÐ? Vísir spurði borgarlækni að því hvers vegna almenningi hefði ekki verið tilkynnt um þær matarverzl- anir, sem undir grun hafa legið, og hví þeim hefði ekki verið lokað meðan rannsókn óg sötthreinsun fór fram. Því svaraði borgarlæknir að til þess hefði grunurinn ekki verið nægilega rökstuddur. Að því er varðaði eina ákveðna verzlun þá hefði komið í ljós eftir fiski- fræðingaveizluna að smit barst í majonnaise. Hefði sala þess í verzl- uninni því verið bönnuð. Ekki hafi komið fram að smit væri í fleiri vörutegundum verzlunarinnar og því ekki ástæða til þess að loka henni. Starfsfólk hefði verið rannsakað en ekkert athugavert fundizt. I ! ENGINN ÁRANGUR. I Borgarlæknir sagði enn fremur að | enn þá hefði ekki tekizt að rækta 1 taugaveikibróðursóttkveikjuna í matvælum á rannsóknarstofnun í bænum. Matarsýnishorn, sem skiptu hundruðum hefðu verið tekin, en án árangurs. Þá hefðu og endur verið skotnar, en sóttkveikj- an er talin geta borist ekki síður með andareggjum en hænueggjum. Niðurstaða hefði þar ekki fengizt. Hæsnabú og andabú í nágrenni bæjarins hefðu verið rannsökuð, en einnig án árangurs. Þar sem engin ótvíræð niðurstaða hefir fengizt um sýkt matvæli eða smit- bera í starfsmannahópum sagði borgarlæknir að embættið hefði ekki getað tekið þá ábyrgð á sig að birta nöfn grunaðra verzlana eða láta loka þeim. Framh. á bls. 5. Engin sprengjal Egg hæftulaus ef vel sobin Dr. Jón Sigurðsson. - - - — I

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.