Vísir - 02.08.1962, Qupperneq 10
w
VISIR
Paul Crump heitir 32 ára svert-
ingi í Chicago, sem hefur verið
dæmdur til dauða og á að taka
hann af lífi á miðnætti aðfara-
nótt föstudagsins. í fyradag
gerðist dálítið óvenjulegt atvik,
sjónvarpsstöð í Chicago sjón-
varpaði samtali við hann og
fangavörð hans Jack Johnson.
Ccump sagði 1 sjónvarpinu, að
hann væri nú betri maður og
myndi vérða þjóðfélaginu að
-agni ef hann væri náðaður.
,iann sagði að Johnson fanga-
vörður væri nú bezti vinur
sinn. — Ef ég verð tekinn af
lífi, sagði hann, þá bið ég að-
eins þess, að Johnson fanga-
vörður verði látinn ýta á raf-
magnshnappinn, sem hleypir
rafmagni í stólinn.
jesúmynd
Ronald Harrison heitir ungur
svertingjamálari. Hann hefur ný
lega málað málverk, sem vakið
hefur feikilega athygli 1 hinum
enskumælandi heimi. Málverkið
heitir „Krossfestingin“. Hún
sýnir Krist á krossinum, en and
lit hans ber svip Alberts Lut-
hulis, svertingjaleiðtoga Suður
Afríku. Við krossinn standa
tveir rómverskir hermenn og
bera þeir svip suður-afrísku ráð
herranna Verwords og Vorsters.
Kassem forsætisráðherra írak
hefur nú tekið sér nýjan opin-
beran titil. Hann kallar sig héð-
an i frá: Hinn almáttugi for-
ingi.
erfiður strákur
Nikita Krúsjeff kommúnistafor-
ingi var nýlega í sumarleyfis-
ferð við Svartahafið og i Ukra-
inu. Þá heimsótti hann m.a. í
fyrsta skipti í mörg ár fæðing-
arbæ sinn Kalinovka. Hann
heimsótti samyrkjubú sem þar
stendur. Hitti m.a. gamla kunn-
ingja sem mundu eftir honum
sem strák fullum af mótþróa
við landeigandann.
ógift
Maria Callas cr enn ekki geng-
in f hjónaband með Onassis
skipakóngi. En þau eru samt
saman öllum stundum. Nú eru
þau í þriggja vikna skemmtiferð
á lystisnekkju Onassis suður á
Tylftareyjum í Eyjahafinu
gríska. Þau eru bæði grfsk að
ætterni.
misþyrmt
Sir Oswald Mosley er gamall
nasistaforingi í Bretlandi. Hann
efndi nýlega til nasistafundar á
torgi í borginni Manchester. En
þegar hann kom fram og ætlaði
að fara að halda ræðu fékk
hann kaldar kveðjur. Mann-
söfnuður réðst á hann og ætl-
aði að misþyrma honum. Lög-
reglumenn gátu aðeins bjargað
nasistanum á síðustu stundu.
staðfestur
Milovan Djilas hinn gamli fóst-
bróðir Titos Júgóslavfu forseta
var nýlega dæmdur f átta ára
fangelsi fyrir að hafa Ijóstrað
upp ríkisleyndarmálum f hinni
nýju bók sinni „Samtöl við Stal-
ín“. Hefur hæstiréttur Júgóslav-
íu staðfest undirréttardóminn
um þetta.
lausn
í Los Angeles á Vesturströnd
Bandarí.kjanna hefur hljóðfæra
verksmiðja hafið framleiðslu á
rafmagnspíanóum sem hafa
þann kost, að hljóð frá þeim
heyrast aðeins í heyrnartækj-
um. Er þetta talin góð lausn á
þeim vanda sem píanó valda í
fjölbýlishúsum. Nú geta píanó-
kennarinn og nemandinn sett
heyrnartækin upp og enginn
annar heyrir æfingarnar.
afmæli
Frú Kennedy átti 33 ára af-
mæli. Komu tuttugu meðlimir
fjölskyldunnar saman til að
fagna deginum f baðbænum
Hyannis Port, þar sem Kennedy
á sumarbústað. Þegar þau sátu
niðri á ströndinni og voru að
drekka afmæliskaffið skrapp for
setafrúin og gerði tilraun til að
fara á sjóskíði. Hún stóð vel
í fyrstu, en síðan kollsteyptist
hún á skíðunum.
s ■....
7 $'££$1
tu3ii;L.úiiadn!-WU;::úBÍiiúi;
uppeldi í lagi
í Northumberland-héraði í Eng-
landi komst upp um strákahóp,
sem hafði tamið hunda til að
fara inn á golfvelli í héraðinu
og hrifsa golfbolta. Strákarnir
höfðu stundað þessa iðju, síðan
selt boltana og hagnazt á því
um 10 þúsund krónur.
i
li
í - niÆgjaai
aðeins lágvaxnar
i Suður Ameríku er fólk yfir-
leitt lægra vex ' en f hinum
germönsku löndum. Vegna
þessa hefur sú regla nú verið
sett í utanríkisþjónustu Banda-
rfkjanna, að aðeins lávaxnar
konur geti fengið starf við
sendiráð Bandaríkjanna f Suð-
ur Ameríku. Vænta menn þess
að sambúðin við hinar suðrænu
þjóðir muni batna við þetta.
i
nýtt Bergmann-
Rosselini
Jenny Ann Lindstrom heitir
elzta dóttir Ingrid Bergmann af
fyrsta hjónabandi hennar. Að
undanförnu hefur komið upp
orðrómur um að Jenny sé að
trúlofast Franco Rosselini bróð-
ursyni Rosselinis þess er Ingrid
Bergman móðir hennar var gift.
Ekki hefur stúlkan þó enn feng-
izt til að viðurkenna opinber-
lega að hún eigi vingott við
Franco.
;
Barbara Payton er 34 ára kvik-
myndaleikkona í Hollywood
sem þótti mikil og efnileg kyn-
bomba fyrir tíu árum. Þá börð-
ust frægir kvikmyndaleikarar
Franchot Tone og Tom Neal
um ástir hennar og kvæntist
Franchot henni. Nú er verr farið
fyrir Barböru. Hún hefur verið
mjög drykkfeld og nýlega hand
tók lögreglan í Los Angeles
hana fyrir drykkjulæti á al-
mannafæri. Var hún aðeins
klædd í baðslopp og sagðist eng
ar aðrar eignir eiga en slopp- (
inn.
írúarskipti
<9- i
Jane Mansfield, kvikmyndaleik-
konan bandaríska hefur nú á-
kveðið eftir mánaðar dvöl í
Rómaborg að taka kaþólska trú.
Hún sagði við brottförina frá
Róm, að það sem hefði haft
mest áhrif á hana í borginni ei-
lífu væri ekki næturklúbbarnir,
heldur kirkjurnar.
geimkona
Jerrie Cobb heitir þrítug banda
rísk kona, sem hefur verið valin
ásamt tólf stallsystrum sínum
til að taka þátt í æfingum und-
ir geimflug. Margir halda. þeirra
á meðal Jerrie sjálf, að konur
séu betur fallnar til geimflugs
en karlmenn vegna sterkari lík-
amsbyggingar.
Fimmtudagur 2. ágúst 1962.
TUPUM
fCAVIAR
SJÓLAX
SCRYDDSÍLD i
i
ÓMISSANDI: '
í ferðalagið,
á veizluborðið,
í kæliskápinn.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
SKIPHOLT h/f
Sími 2-37-37.
Oscar Wilde -
Framh. af 7. síðu.
arbænum Dieppe. Þá voru all-
ar horfur á því að hann gæti
byrjað nýtt líf, laus við þann
djöful, sem hann hafði að draga,
eyðslusemina og vandræðin,
sem ásótt höfðu hann. En góð-
* ur ásetningur hans hvarf smám
saman, og brátt lauk sumrinu
og veður spilltist. Bosie, ungi
\ vinur hans frá Oxford og orsök
ógæfu hans skrifaði honum bréf
frá Neapel og bað hann að koma
aftur til fundar við sig. Og
Wilde lét undan og tók lestina f
suðurátt.
„Eina von mín um að ég geti
aftur skapað listaverk er að
vera nálægt þér,“ skrifar hann
Douglas um þessar mundir. Vin-
ir hans bentu honum á hve
hættulegt það væri fyrir hann
að taka aftur upp fyrra sam-
band sitt við Douglas. — En
Wilde átti ekki afturkvæmt.
Hann ritaði þá Ross:
„Ég get ekki lifað án ástar.
Ég verð að elska og vera elsk-
aður, hvað sem það kostar...
Þegar fólk gagnrýnir það að ég
fer aftur til Bosie, segðu því þá
að hann hafi boðið mér ást sína.
Og að ég, einmana og yfirgef-
inn, hafi horfið aftur til hans
eftir að hafa búið einn f þrjá
mánuði í þessari köldu veröld.
Auðvitað mun ég oft verða ó-
hamingjusamur, en ég elska
hann enn þá, sú staðreynd að
hann eyðilagði líf mitt, veldur
þvi að ég elska hans“.
Leiðir skilja.
Fjölskylda Alfreðs Douglas
hætti að "enda honum skotsilf-
ur jafnskjótt og fréttir bárust
til London um að hann og Wilde
hefðu aftur hafið sitt fyrra sam-
býli. Og frú Wilde sendi nú
síns. Þeir voru því báðir fé-
vana og innan skamms skildu
þeir að skiptum. Síðasta inn-
færsla Wilde í bréfabók sína
hljóðar svo:
„Ég hefi ekki séð Bosie í viku.
Ég er viss um að hann mun ekki
koma mér til hjálpar. Drengir,
konjak og fjárhættuspil eiga
hug lians allan. Hann er þegar
allt kemur til alls mesti nirfill.
En söfnun hans er fólgin í
eyðslunni: ný tegund homo
sapiens".
Juke-box
Mjög gott og vandað Juke-box
af Seeburg gerð til sýnis og
sölu.
E. HELGASON & CO H.F.
Mjóstræti 3 T Sími 24488
CLINTON
uianborbsmótorar
5 hestöfl.
Léttir
Gangvissir
Ódýrir.
Tilvaldir á
vatnabáta.
FINNUR TH. JÓNSSON
Sími 32 - Bolungarvík