Vísir - 04.08.1962, Qupperneq 1
FIB og BFÖ gangast fyrh vegaþjónustu
52. árg. — Laugardagur 4. ágúst 1962. — 182. tbl.
Allir sameinist um
að forða slysum
Það sem af er þessu ári
hafa yfir 2000 bifreiðar ver
ið fluttar inn til landsins
og er bifreiðaeign lands-
manna þar með komin yfir
25 þúsund. Með aukinni
bifreiðaeign og umferð fer
slysahættan stöðugt vax-
andi og hámarki nær hún
úti á þjóðvegunum eins og
um þá helgi, sem nú fer
hönd, verzlunarmanna-
helgina, þegar búast má
við því að upp undir 10
Akureyringar, sem á landsmóti
skáta dvelja, eru ekki að baki
dottnir. Þeir hafa ráðizt i að
smíða 40 metra Ianga brú yfir
sundlaugina i nánd við móts-
staðinn. -— Þetta var okkar
verkefni, sagði Tryggvi Þor-
steinsson, fararstjóri Akureyr-
inganna, við Vísi í gær. Brú
þessi er hengibrú, lík í sniði og
brúin á Jökulsá á FjöIIum. En
það, sem er einkum athyglis-
vert við brúarsmíði þessa er,
að enginn nagli er notaður f
hana, heldur allt „súrrað“ sam-
an. Ljósm. Vfsir, B. G.
Bygginqavinna stöðvast
og tefur stórbyggingar
Trésmíðavinna liggur
nú niðri að mestu við
opinberar byggingar í
Reykjavík og mun sama
máli gegna um flestar
byggingar einstaklinga.
Sveinar vinna ekki við
neina opinbera bygg-
ingu, en á nokkrum stöð
um vinna meistarar með
lærlinga sína, sem er að-
eins lítill hluti þess
vinnuafls, sem þörf er
fyrir.
Hjá Reykjavikurborg eru marg-
víslegar framkvæmdir stöðvaðar og
er þetta tilfinnanlegt þar sem verið
er að steypa upp nýbyggingar.
Vinna hefur lagzt niður við Hamra
hlíðarskólann, en þar er unnið að
viðbyggingu og þegar búið að
steypa upp kjallara. Var ætlunin að
halda áfram með húsið og hafa
hluta af þvf tilbúinn til kennslu
þann 5. október. Dragist verkfall
þetta á langinn er hætta á að þar
verði röskun á kennslu.
— ★ —
Unnið e- að viðbótum og nýbygg
ingum á skólum á átta stöðum í
borginni. Hefur verkfallið einhver
áhrif á gang þessara bygginga, en
ekki mikil, þar sem hús eru nærri
fullgerð. Meistarar vinna á nokkr-
um stöðum með lærlingum sínum.
Vinna hefur stöðvazt við lög-
reglustöðina nýju, en þar var verið
að hefja uppslátt fyrir kjallara, er
ætlunin er að steypa upp f haust.
Við íþróttahöllina vinna nú engir
trésmiðir, en vinna við uppslátt
undir steypu er nú hálfnuð. Ekki
hefur verkfallið tafið verkið veru-
Framh. á 2. síðu.
Svarti dauði
Bretlandi
þúsund bifreiðar verði á
akstri á vegunum á suð-
vesturlandi.
Ökumenn ættu að íhuga það, að
það verða slys á þjóðvegunum
um þessa helgi nema hver einasti
ökumaður geri allt sem í hans valdi
stendur, aki gætilega og kurteis-
lega um veginn.
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda
mun gangast fyrir víðtækri um-
ferðaþjónustu á öllum helztu þjóð-
vegum á Suðvesturlandi. Fara við-
gerðarbílar þeirra um Þingvalla-
Framh. af bls. 13.
Það hefur vakið skelf-
ingu í Bretlandi, að það
upplýstist í gær, að brezk-
ur vísindamaður, að nafni
Geoffrey Bacon, hafi ný-
lega látizt úr svarta dauða.
Eru nú gerðar ráðstaf-
anir til að hindra út-
breiðslu veikinnar, og eru
allir leitaðir uppi, sem
höfðu samneyti við vís-
indamanninn í veikindum
hans.
I
Það alvarlegasta við þetta er
Framh. á bls. 5.
Þetta er fyrsta sérmyndin, sem birtist af Önnu Geirs fegurðar-
drottningu Reykjavíkur, í keppninni um titilinn Miss Univers,
sem fram fór á Miami Beach í Florida fyrir stuttu síðan. Anna
vann þar mikinn sigur eins og flestir vita, því að hún varð önnur
í röðinni af 48 þátttakendum. — Anna tekur nú þátt í tízkusýn-
ingum og kemur fram á ýmsum skemmtistöðum. Hún hefur enn
þá ekki ákveðið hvort hún tekur einhverju af þeim aragrúa til-
boða, sem bárust henni fyrir og eftir keppnina. Við erum með
hópmyndir af sigurvegurunum og þeim 15 stúlkum, sem komust
í úrslit. (Sjá Myndsjá bls. 3).