Vísir - 07.08.1962, Page 1
Skátamótið s
Alfír halda ánægSir heim
Ég held að mér sé óhætt
að fullyrða, að mjög vel
hafi til tekizt og flestir
haldi ánægðir heim eftir
viðburðaríka og ánægju-
Iega daga á Þingvöllum,
því flestallt hefur staðizt
þrátt fyrir fremur óhag-
stætt veður, sagði Páll
Gíslason við Vísi, eftir að
landsmóti skáta hafði ver-
ið slitið í gærkveldi.
Þrettánda landsmóti skáta var
slitið í Hvannagjá í gærkveldi.
Mótið hefur staðið yfir í alís 10
daga og það sóttu um tvö þúsund
skátar víðsvegar að af landinu og
margir erlendir skátar, einnig
komu fjölmargir gestir til mótsins
og dvqldust þár lengri eða
skemmri tíma.
Mót þetta fór mjög vel fram
og var skátahreyfingunni til mik-
ils sóma og á hún án efa eftir að
eflast mikið eftir þetta glæsilega
mót.
MARGT GESTA.
S.l. laugardag tóku skátar á
móti opinberum gestum í Mið-
garði, en svo nefndist aðal sam-
komustaður mótsins. Meðal gesta
voru forsetahjónin, ráðherrar, borg
arstjórinn í Reykjavík, sendiherrar
erlendra ríkja og forystumenn ým-
issa félagasamtaka, munu gestirnir
hafa verið alls um 250.
Strax um morguninn var uppi
fótur og fit á tjaldbúðarsvæðinu,
því fyrir hádegi fóru fram miklar
æfingar fyrir móttökuna, sem hófst
kl. 2 e. h.
Fór þar fram margt atriða, móts-
stjórinn, Páll Glslason, flutti á-
varp, forseti Islands, verndari
skátahreyfingarinnar hélt ræðu,
iúðrasveit skipuð skátum víðsveg-
ar að af landinu Iék, einnig fóru
fram fjölmörg önnur, atriði
gestum til skemmtunar. Að síðustu
talaði Þór Sandholt, formaður há-
tíðarnefndar skátaársins og að
lokinni ræðu hans voru tveimur
beztu skátaflokkum landsins veitt
verðlaun, fagrar skikkjur, og þeim
átta er næst stóðu, veitt viður-
kenning og göngustafir. Verðlaun
þessi og viðurkenningar eru veitt
fyrir flokkakeppni B.l.S. er staðið
hefur yfir í allan vetur og lauk
á landsmótinu.
GEYSILEG UMFERÐ.
Á sunnudag fóru fram skáta-
messur, bæði kaþólsk og lúthersk
Framh. á 10. síðu.
María á Langasand
I gærkvöldi Iagöi María Guð-
mundsdóttir fegurðardrottning
íslands af stað til Ameríku, þar
sem hún mun taka þátt í feg-
urðarsamkeppninni á Langa-
sandi seint i þessum mánuði.
Nokkru áður en hún lagði af
stað með Loftleiðavélinni frá
Reykjavíkurflugvelli hafði henni
borizt tilkynning frá París um
það að hið fræga franska tízku-
blað Vogue hefði kjörið hana
eina af 10 beztu ljósmyndafyrir
sætum í Frakklandi, en þar
dvaldist María sem kunnugt er
sl. sumar.
Maria
VISIR
52. árg. — Þriðjudagur 7. ágúst 1962. — 183. tbl.
Aukið aðkald í út
lúnum bankanna
Meginmarkmið efnahags-
stefnunnar á næstunni hlýt
ur að vera að vinna á móti
ofþenslu í eftirspurn inn-
anlands og koma þannig í
veg fyrir greiðsluhalla við
útlönd. Þannig mælir dr.
Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri í nýútkomnu
hefti Fjármálatíðinda. Til
þessa koma ýmsar aðgerð-
ir koma til greina, segir
bankastjórinn. Líklegastar
til árangurs telur hann
vera að auka aðhald í út-
lánunt bankanna og draga
úr eftirspurn með fjár-
málalegum aðgerðum rik-
issjóðs.
Bankastjórinn benflin á að mik-
ið átak hafi kostað að ná þeirn á-
fanga að nú jafngildir nettógjald-
eyriseign bankanna að verðmæti
um þriggja mánaða innflutningi.
Hún var í lok maí 963 millj. kr.
Hafði gjaldeyrisstaða bankanna þá
Bílvelta á Hringbraut
Forseti íslands drekkur
úr horni f búðum Norðmanna.
Ljósm. Vísir, B. G.
Allmikið umferðaróhapp varð
á Hringbrautinni s.l. sunnudag
um klukkan 5 — 6 síðdegis.
Jeppabifreið var ekið austur
Hringbrautina, en rétt áður en
komið var að gatnamótum
Njarðargötu lenti bíllinn upp á
gangstéttina vinstra megin,
skall þar á ljósastaur og braut
hann. Ekki stöðvaðist bfllinn
við það, heldur þaut áfram yfir
Njarðargötuna og lenti að því
búnu á öðrum ljóstastaur,
beygði hann niður undir jörð,
en þar valt farartækið og var
þá akstri þess lokið.
þessar aðfarir kastaðist kven-
maður út úr bílnum, er setið
hafði í framsætinu við hlið öku-
mannsins. Konan hruflaðist
talsvert og kvartaði undan
eymslum í baki, og ökumaður-
inn sjálfur hlaut smávegis
skeinu, en meiðsli beggja voru
talin minni en ástæða væri
að ætla. Farartækið var hins
vegar stórksmmt.
á 10. síðu.
batnaö uni 813 millj .króna frá þvf
á sama tima á siðasta ári. Hins veg
ar kveður bankastjórinn að end-
urskoða verði allar áætlanir um
að hægt vcrði smám saman að
slaka á Iánsfjárhömlum á þcssu
ári.
Orsökin cr vaxandi þcnsla inn-
an lands undan farna mánuði. Sú
þróun hyfir komið fram í þenslu
á vinnumarkaðinum og vinnu-
aflsskorti og cinnig í aukinni eft-
irspurn eftir hvers konar vörum
og þjónustu og sívaxandi inn-
flutningi. Ofan á þessa þróun
hafa nú bætzt verulegar og al-
mennar kauphækkanir sem hafa
munu í för með sér enn aukna
eftirspurn.
í sambandi við aukið aðhald í
lánum bankanna bendir dr. Jóhann
es Nordal á að vissulega sé mikið
Icggjandi í sölurnar til að varð-
veit gjaldeyrisforðann og þann ár-
angur sem náðst hefir í efnahags-
málum að undanförnu og tryggja
bæði efnahagslegt jafnvægi og við
skintafrelsi.