Vísir - 15.08.1962, Blaðsíða 1
VÍSIR
Landhelgisgæzlunni. —
Bergsteinn er með einka
flugmannspróf, hefur
stundað flug í 5 ár og
hefur að baki um 130
flugtíma. Flugvélin er
þeir bræður voru á er
komin nokkuð til ára
sinna, kanadísk æfingar
flugvél og var hún alveg
í íulikomnu lagi.
Bergsteinn segir svo frá: Það
var s. I. laugardag 11. þ. m. að
ég fór í flug á flugvélini TF-
KAN frá Reykjavík, farþegi í
vélinni var bróðir minn Geir-
Framhald á bls. 5.
Bókaþ|ófur
tekinn
Tveir menn voru í vél-
inni, bræðurnir Berg-
steinn og Geirharður
Þorsteinssynir. Berg-
steinn flaug vélinni, en
hann er flugvirki hjá
Það var mikil mildi að
ekki hlauzt af stórslys,
þegar lítil flugvél lenti á
símavír og valt síðan í
kvísl úr Tungufljóti í
Biskupstungum.
52. árg. — Miðvikudagur 15. ágúst 1962. — 190. tbl.
Mynd þessi er tekin á slysstað á laugardag og sýnir flugvélina á hvolfi. (Ljósmynd. Geirharður Þorsteinsson, arkitekt).
Geimförín lentu / morgun
Nikolajev fór 65 sinnum kringum
jörðu — Popovitsj 49 sinnum
Tilkynnt var í Moskvu-
útvarpinu árdegis í dag, að
geimfararnir Nikolayevesk
og Popovitsj hefðu lent
heilu og höldnu, á þeirri
stundu og stað, sem fyrir
fram hafði verið ákveðið.
Um þetta segir í NTB-
frétt til Vísis: Moskvu-út-
varpið gerði hlé á venju-
legri útsendingu kl. 9.37
(eftir norskum tíma) og
var boðuð mikilvæg til-
kynning. Einni mínútu síð-
ar var svo tilkynnt að báð-
ir geimfararnir hefðu lent.
Sagt var, að geimferð
Nikolayevs hefði staðið 94
klukkustundir og 15 mínút
ur.
I fréttum frá Moskvu snemma
í morgun var sagt að geimfararnir
hefðu sofið vel s.l. nótt, hvor um
sig sofið 61/2 klst., en áður en þeir
fóru í háttinn í gærkvöldi hefðu
þeir sungið sovézka geimfarasöng-
inn. Er þeir voru upp staðnir í
morgun fengu þeir sér morgun-
verð og fóru að gefa sig að at-
hugunum sínum, en ekki vikið einu
orði að því, að lending geimfar-
anna stæði fyrir dyrum.
65 SINNUM
KRINGUM JÖRÐU
í síðari fréttum segir, að Niko-
I layev hefði farið 65 sinnum kring-
um jörðu í geimferð sinni, en Popo-
vitsj 49 sinnum. Ekki hafi þó ver-
ið birt um þetta opinber tilkynn-
ing.
Þegar þeir lentu hafi Nikolayev
lokið 2.5 milljóna kílómetra geim-
flugi og Popovitsj 2 milljóna kíló-
metra. Tekið er fram, að hvorugur
hafi haft neitt að segja af óþægi-
legum verkunum þyngdarleysis í
geimferðinni.
Þeir voru það lengi á flugi, að
ámóta flugtími hefði nægt til geim-
ferðar til tunglsins og aftur til
baka til jarðarinnar.
í óstaðfestum fréttum segir, að
vísindamenn telji, að „hemlurak-
ettum“ Vostoks III. og Vostoks IV.
hafi verið skotið er geimförin voru
Lögreglan handtók í nótt bók-
hneigðan þjóf, sem langaði í
eitthvað að Iesa í leiðindum
sínum og hnuplaði nokkruni
skræðum eftir að hafa brotið
rúðu i fombókaverzlun.
Þarna er um ungan sjómann að
ræða, sem lent hafði á fylliríi í gær
kveldi og eitthvað fram eftir nóttu.
En áhrifin af áfenginu eru ekki
einhlít, hann langaði líka í áhrif
af skemmtilegri bók og þvf er
það að hann rak hnefann í gegnum
Framhald á bis. 5.
yfir Mið-Afríku og um 20 mínút-
um- áður en þeir lentu.
VERÐA VEL GEYMDIR
NÆSTU DAGA
í framhaldsfrétt segir, að geim-
fararnir muni verða svo vel geymd
ir næstu daga, að engir muni sjá
þá nema iæknar og vísindamenn,
en nú verði þeir að undirgangast
nákvæmari skoðun og athugun en
nokkrir geimfarar til þessa hafa í
orðið að ganga undir. Stjórnmála- j
fréttaritarar í Moskvu fullyrða, að
geimfararnir muni ekki koma fram
opinberlega neins staðar næstu
daga.
MEÐ 6 MÍNÚTNA
MILLIBILI
Enn var sagt í framhaidsfrétt,
að geimförin hefðu lent með 6
Framh. á bls. 5.
kemur é dog
í dag er væntanleg til landsins
Skymasterfiugvél, sem Landhelg
isgæzian hefur fest kaup á í
Portúgal. Vélin var afhent á
Xastrup flugvelli í síðustu viku.
Áætlað var að vélin legði af
stað klukkan ellefu í morgun
frá Kastrupflugvelli og er henn-
ar, samkvæmt því, von til
Reykjavíkur um klukkan fimm í
dag.
Vél þessi er venjuleg farþega'
flugvél og munu gerðar á henni
ýmsar breytingar áður en hún er
tekin í notkun. Þarf að bæta í
hana tækjum og gera aðrar
minni breytingar á henni. Mun
iandhelgisgæzlan annast þær
breytingar að mestu sjálf.
Sveinn Skorri til Uppsnln
Sveinn Skorri Höskuldsson
magister hefir nýlega verið skip-
aður lektor í ísienzku við há-
skólann í Uppsölum. Fór hann af
landi burt í morgun ásamt fjöl-
skyldu sinni, áleiðis til Sviþjóðar.
Undanfarin ár hefir Bjarni
Guðnason magister gegnt embætti
þessu, en hann hefir nú látið af
störfum.
Sveinn Skorri var islenzkukenn-
ari við Menntaskólann í Reykja-
vík, en fyrir tveimur árum dvaldist
hann vetrarlangt í Winnipeg við
rannsóknir á heimildum um dvöl
Gests Pálssonar í Kanada. Kemur
á næstunni út bók um Gest og
raunsæisstefnuna í íslenzkum bók
menntum frá hendi Skorra.
Sir Winston Churchill
fyrrum forsæiisráðherra
Bretlands, sem enn er í
Middlesex-sjúkrahúsi í
London, hefur látið í ljós
þá skoðun, að það hafi ver-
ið rétt af brezku stjórninni
að senda Efnahagsbanda-
lagi Evrópu umsókn í þeim
tilgangi að leita samkomu-
lags um skilyrði fyrir að-
ild að bandalaginu.
Kvað hann með því einu móti
unnt að fá úr því skorið hver skil-
yrði yrðu sett fyrir aðild, en það
væri nauðsynlegt áður en loka-
ákvörðun yrði tekin. Vekur það
athygli, að Churchill hefur nú látið
í ljós álit sitt varðandi þetta mál.
I Var frá þessari skoðun sagt í
brezka útvarpinu.
Montgomery marskálkur kom
til hans i gær og sat Sir Winston
upp við dogg meðan þeir ræddust
við og reykti vindil. Eftir á sagði
Montgomery, að því er hermt er
í NTB-frétt, að Churchill hafi lýst
sig mótfallinn aðild að Efnahags-
bandalaginu, og sjálfur kvaðst hann
vera andvígur aðild, og er það al-
kunna. (Ummæli Churchills, sem
tilgreind eru hér að ofan gefa aug-
ljóslega ekki til kynna annað en
afstöðu hans varðandi skilyrði fyrir
aðild).