Vísir - 20.08.1962, Side 1
VatnsdalsárifiáHð:
Hið refsiverða
til sýslumanns
— Það er orðið ljóst, að
iaxveiði og silungsveiði í
net fer ekki saman í lítilli
á, sagði Þór Guðjónsson
veiðimálastjóri við Vísi i
morgun með Vatnsdalsá í
huga. Jafnvel í Ölfusá eru
stöðugir árekstrar út af
þessu atriði.
Við spurðum veiðimálastjóra um
Vatnsdalsmálið og hann sagði:
— Þar er ýmislegt athugavert.
Ég fer norður strax og ég get til
að hlýða á mál beggja aðila. Ég
held að um nokkurn misskilning
á báða bóga sé þarna að ræða. Hið
refsiverða fer að sjálfsögðu til
sýslumanns.
Á þessu stigi málsins get ég ekki
upplýst meira. Hins vegar hefi ég
nokkuð rannsakað málið og m. a.
fengið bréf erlendis frá vegna þess.
Guðmundur Ásgeirsson er nú fyrir
norðan og einnig formaður veiði-
félagsins, en hann fórst á mis við
Guðmund, leigutakann hér í Reykja
vík fyrir skömmu.
► í Alsfr er reynt að ná saman
Iista með nöfnum 176 þingmanna-
efna og á hann að verða tilbúinn
n. k. Iaugardag, en stjórnlagaþing-
kosningarnar eiga að fara fram 2.
sept. sem kunnugt er.
Myndin er frá knattspyrnukappleik, ekki í Suður-Ameríku heldur norður á Akureyri. Sést
hér mannfjöidinn eftir að hafa þyrpzt inn á leikvanginn að leik loknum.
Róstur eftír kappleik
☆
Blóöhiti /
Akureyr-
ingum
Sá sögulegi atburður
átti sér stað í leik Ak-
ureyringa og KR á Ak-
ureyri í gær, að áhorf-
endur höfðu ekki taum
hald á skapi sínu og
ruddust inn á leikvang-
inn að leik loknum,
kringum leikmenn og
dómara og Ieit lengi vel
út fyrir alvarlegum róst-
um.
Mátti þar sjá þekktan íþrótta-
frömuð akureyrskan snara sér
að öðrum Iínuverðinum, taka
hann steinbítstaki með þeim orð
um, „að réttast væri að berja
ykkur alla saman.“
Ekki varð þó úr frekari handa
Framh. á bls. 7.
Einar Kristjánsson söngvari og kona hans, frú Marta, á gangi við Tjömina I góða veðrinu um helgina.
Einar Kristjnnsson nlkominn heim
Þegar mér var boðin
staða fyrir 15 árum sem
söngkennari við Tónlist-
arskólann, fannst mér
ég enn vera of ungur til
að þiggja hana. En þeg-
ar mér bauðst staðan
nú fannst mér ég verða
að taka henni, því að
k bráðum yrði ég kannski
of gamall til að taka
henni.
Þannig mælti Einar Krist-
jánsson óperusöngvari þegar
fréttamaður Vísis hitti hann
og konu hans Mörtu á gangi
niður við Tjörn nú um helgina.
★
En þau komu hingað til lands
alkomin í síðustu viku. I byrjun
vikunnar kváðust þau hafa far-
ið að „pakka niður“. — Það
var ægilegt verk. Þegar búið
var að koma bókum, búsáhöld-
um og ýmsum lausum hlutum
niður í kassa, fór ég að telja
kassana, sagði Einar. Ég hætti
að, telja þegar ég var kominn
upp í 50. Svo flugum við heim,
en búslóðin er á leiðinni með
Gullfossi.
Á yngri árum, þegar við vor;
um í Þýzkalandi, fluttum við
oft með þriggja ára millibili,
milli Dresden, Stuttgart og
Hamborgar, en síðan við sett-
umst að í Kaupmannahöfn hef-
ur meiri búslóð safnazt i kring-
um okkur og flutningurinn er
því mikil fyrirhöfn. Við ætlum
að búa í húsi einu viðNýlendu-
götuna og vonandi þurfum við
ekki að flytja aftur.
★
— Hvaða starf er það sem
þér farið nú að vinna hér?
— Það er kennarastarf við
óperukennslu hjá Tónlistarskól-
anum. Þetta er ekki beinlfnis
söngkennsla. Ætlazt er til að
menn hafi verið í söngnámi áð-
ur, en hér á að bætast við m. a.
Framh. á bls. 7.
Ekki ein
aí fimm
María Guðmundsdóttir fegurðar-
drottning komst í undanúrslit á
Langasandi eins og kunnugt er af
fréttum, en varð ekki ein af fimm
fyrstu f lokaúrslitunum. Af þeim
fimmtán, sem komust áfram í und-
anúrslit er aðeins fimm raðað nið-
ur, þannig að Maríu var ekki get-
ið í fréttaskeytinu um úrslit feg-
urðarkeppninnar.
Er Vísir átti tal við móður Maríu
i morgun, hafði hún ekki haft nein-
ar fréttir af dótturinni né lokaúr-
slitunum. Ekki hafði hún heyrt.
neitt frá Maríu síðan hún fór ut-
an, en bréf fékk hún dagsett 14.
Framh. á bls. 7.
Marfa Guðmundsdóttir.
i n