Vísir - 20.08.1962, Síða 1

Vísir - 20.08.1962, Síða 1
VatnsdalsárifiáHð: Hið refsiverða til sýslumanns — Það er orðið ljóst, að iaxveiði og silungsveiði í net fer ekki saman í lítilli á, sagði Þór Guðjónsson veiðimálastjóri við Vísi i morgun með Vatnsdalsá í huga. Jafnvel í Ölfusá eru stöðugir árekstrar út af þessu atriði. Við spurðum veiðimálastjóra um Vatnsdalsmálið og hann sagði: — Þar er ýmislegt athugavert. Ég fer norður strax og ég get til að hlýða á mál beggja aðila. Ég held að um nokkurn misskilning á báða bóga sé þarna að ræða. Hið refsiverða fer að sjálfsögðu til sýslumanns. Á þessu stigi málsins get ég ekki upplýst meira. Hins vegar hefi ég nokkuð rannsakað málið og m. a. fengið bréf erlendis frá vegna þess. Guðmundur Ásgeirsson er nú fyrir norðan og einnig formaður veiði- félagsins, en hann fórst á mis við Guðmund, leigutakann hér í Reykja vík fyrir skömmu. ► í Alsfr er reynt að ná saman Iista með nöfnum 176 þingmanna- efna og á hann að verða tilbúinn n. k. Iaugardag, en stjórnlagaþing- kosningarnar eiga að fara fram 2. sept. sem kunnugt er. Myndin er frá knattspyrnukappleik, ekki í Suður-Ameríku heldur norður á Akureyri. Sést hér mannfjöidinn eftir að hafa þyrpzt inn á leikvanginn að leik loknum. Róstur eftír kappleik ☆ Blóöhiti / Akureyr- ingum Sá sögulegi atburður átti sér stað í leik Ak- ureyringa og KR á Ak- ureyri í gær, að áhorf- endur höfðu ekki taum hald á skapi sínu og ruddust inn á leikvang- inn að leik loknum, kringum leikmenn og dómara og Ieit lengi vel út fyrir alvarlegum róst- um. Mátti þar sjá þekktan íþrótta- frömuð akureyrskan snara sér að öðrum Iínuverðinum, taka hann steinbítstaki með þeim orð um, „að réttast væri að berja ykkur alla saman.“ Ekki varð þó úr frekari handa Framh. á bls. 7. Einar Kristjánsson söngvari og kona hans, frú Marta, á gangi við Tjömina I góða veðrinu um helgina. Einar Kristjnnsson nlkominn heim Þegar mér var boðin staða fyrir 15 árum sem söngkennari við Tónlist- arskólann, fannst mér ég enn vera of ungur til að þiggja hana. En þeg- ar mér bauðst staðan nú fannst mér ég verða að taka henni, því að k bráðum yrði ég kannski of gamall til að taka henni. Þannig mælti Einar Krist- jánsson óperusöngvari þegar fréttamaður Vísis hitti hann og konu hans Mörtu á gangi niður við Tjörn nú um helgina. ★ En þau komu hingað til lands alkomin í síðustu viku. I byrjun vikunnar kváðust þau hafa far- ið að „pakka niður“. — Það var ægilegt verk. Þegar búið var að koma bókum, búsáhöld- um og ýmsum lausum hlutum niður í kassa, fór ég að telja kassana, sagði Einar. Ég hætti að, telja þegar ég var kominn upp í 50. Svo flugum við heim, en búslóðin er á leiðinni með Gullfossi. Á yngri árum, þegar við vor; um í Þýzkalandi, fluttum við oft með þriggja ára millibili, milli Dresden, Stuttgart og Hamborgar, en síðan við sett- umst að í Kaupmannahöfn hef- ur meiri búslóð safnazt i kring- um okkur og flutningurinn er því mikil fyrirhöfn. Við ætlum að búa í húsi einu viðNýlendu- götuna og vonandi þurfum við ekki að flytja aftur. ★ — Hvaða starf er það sem þér farið nú að vinna hér? — Það er kennarastarf við óperukennslu hjá Tónlistarskól- anum. Þetta er ekki beinlfnis söngkennsla. Ætlazt er til að menn hafi verið í söngnámi áð- ur, en hér á að bætast við m. a. Framh. á bls. 7. Ekki ein aí fimm María Guðmundsdóttir fegurðar- drottning komst í undanúrslit á Langasandi eins og kunnugt er af fréttum, en varð ekki ein af fimm fyrstu f lokaúrslitunum. Af þeim fimmtán, sem komust áfram í und- anúrslit er aðeins fimm raðað nið- ur, þannig að Maríu var ekki get- ið í fréttaskeytinu um úrslit feg- urðarkeppninnar. Er Vísir átti tal við móður Maríu i morgun, hafði hún ekki haft nein- ar fréttir af dótturinni né lokaúr- slitunum. Ekki hafði hún heyrt. neitt frá Maríu síðan hún fór ut- an, en bréf fékk hún dagsett 14. Framh. á bls. 7. Marfa Guðmundsdóttir. i n

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.