Tölvumál - 01.04.1993, Síða 12
Apríl 1993
Samtök tölvu- og
fjarskiptanotenda
og tengsl þeirra
viö EB.
FRAMKVÆMDA-
STJ. EB
X
T
1
EFITTU
bar heitið Networking in the 90’s,
þar sem m.a. var fjallað um sam-
tengingar notenda, fyrirtækja og
stjórnsýslueininga í sameinaðri
Evrópu. Ráðuneytið hefur heitið
stuðningi sínum við EFITTU og
hvatt til áframhalds á samstarfi
CECUA og ECTUA og annarra
þeirra félaga sem láta mál tölvu-
og fjarskiptanotenda til sín taka
innan ramma EFITTU.
Hagsmunamál
notenda í EÐ
Starfið í CECUA og ECTUA fer
að mestu leyti fram í vinnu-
hópum. Þau málefni sem þar eru
til umfjöllunar gefa góða mynd
af starfsemi samtakanna og sýna
á hvað lögð er áhersla.
Á vegum CECUA starfa t.d.
vinnuhópar sem fjalla um verndun
upplýsinga, menntun notenda,
höfundarrétt á hugbúnaði, hug-
búnaðarsamninga, vélbúnaðar-
samninga og staðla.
Á vegum ECTUA starfa sér-
fræðingahópar sem fjalla um t.d.
fjarskipti um gervihnetti, fjarskipti
og rekstrarumhverfi fyrirtækja á
opnum markaði, leigulínur, gæði
fjarskiptaþjónustu og tilskipun EB
um fjarskiptaþjónustu.
Vinnuhópar og sérfræðihópar
skila CECUA og ECTUA
skýrslum um störf sín. CECUA
og ECTUA koma síðan áliti
þeirra á framfæri við ráðuneyti
XIII sem fer með slík mál innan
EB eins og áður sagði. I sumum
tilvikum biður ráðuneytið um
álit CECUA og ECTUA á til-
löguin að tilskipunum sem fyrir
liggja. Auk þess hafa samtökin
einnig stöku sinnum gert
Evrópuþinginu í Strassbourgbeint
grein fyrir afstöðu sinni.
Mál þau, sem CECUA og ECTUA
fjalla um og minnst var á að ofan,
snerta einnig ísland. Tilskipanir
EB koma til ineð, a.m.k. sumar
þeirra, að gilda á íslandi og hafa
áhrif á lagasetningu hér á landi.
Það er því enginn marktækur
munur á hagsmunum Islands og
hagsmunum annarra landa í EES,
EB og EFTA að þessu leyti.
12 - Tölvumál