Tölvumál - 01.04.1993, Qupperneq 16
Apríl 1993
Ferðafrelsi
Samkvæmt b-lið 3. tl. 28. gr.
EES-samningsins öðlast laun-
þegar rétt til að fara að vild um
EES-svæðið til að fá sér vinnu.
Þessi réttur felur í sér rétt til að
fara til annars EES-ríkis með því
að leggja fram persónuskilríki
eða vegabréf. Þannig verður ekki
hægt að krefja launþegann um
vegabréfsáritun eða setja sérstök
skilyrði fyrir því að hann fái að
komatil landsins. Þettagildirhins
vegar ekki fjölskyldumeðlimi
hans ef þeir eru ekki ríkisborgarar
einhvers aðildarríkis. Ríkin eru
samt sem áður skuldbundin að
auðvelda þessum fjölskyldu-
meðlimum að fá vegabréfsáritun.
Dómstóll Evrópubandalagsins
hefur tekið nánari afstöðu til
hversu víðtækur rétturinn til
aðflutnings er. I þessum dómi
kemur fram að EB-rétturinn eigi
ekki að hindra að aðildarríki
hafi eftirlit með því hvort út-
lendingur sem er búsettur í
aðildarríkinu hafi undir höndum
dvalarleyfi svo framarlega sem
skylda til að sýna persónuskilríki
hvíli einnig á ríkisborgurum
viðkomandi lands.
Dvalarleyfið
Staðfesting á dvalarleyfi er veitt
með skjali sem ber titilinn
"dvalarleyfi". Til að gefa út slíkt
skjal þurfa eftirfarandi skjöl eða
gögn að vera fyrir hendi:
Fyrir launþegann:
a) Skjalið sem á að nota eða var
notað við komuna til landsins
t.d. vegabréf eða persónu-
skilríki sem sýnir ríkisfang
viðkomandi.
b) Staðfesting á atvinnuráðn-
ingu.
Fyrir fjölskyldumeðlimina:
a) Skjalið sem var notað við
komuna til landsins.
b) Skjal sem sýnir hvernig fjöl-
skylduböndum er háttað. Það
þarf að vera útgefið af yfir-
völdurn í heimalandi viðkom-
andi eða í síðasta dvalarlandi.
c) Skjal sem sýnir að þeir séu á
framfæri launþegans eða voru
hluti heimilismanna hans í
heimalandinu eða síðasta
dvalarlandi. Þetta skjal þarf
að vera gefið út af við-
komandi yfirvöldum.
Dvalarleyfið á að gilda í a.m.k. 5
ár og mögulegt á að vera að
framlengja það eftir þann tíma
a.m.k. 5 ár í senn. Tímabundin
dvalarleyfi eru gefin út vegna
ráðningarsamninga sem gilda 3
mánuði til 1 ár. Allt að 6 mánaða
rof á dvöl breytir ekki gildi
dvalarleyfis.
Fjölskyldumeðlimir sem eru
sjálfir ríkisborgarar EES-ríkis fá
einnig 5 ára sjálfstætt dvalarleyfi.
Fjölskyldumeðlimir sem ekki eru
ríkisborgarar aðildarríkis eiga að
fádvalarleyfisskírteini sem gildir
jafn lengi og dvalarleyfi laun-
þegans.
Dvalarleyfi erekki hægt að aftur-
kalla á þeirri forsendu að atvinnu-
ráðningin sé ekki lengur fyrir
hendi, þegar um það er að ræða
aðlaunþeginneróvinnufærvegna
sjúkdóms eða slys eða er orðinn
atvinnulaus að ósekju.
Dvalarleyfið má takmarka í fyrsta
skipti sem það er endurnýjað en
þó ekki skemur en tólf mánuði,
ef leyfishafinn hefur verið at-
vinnulaus samfellt lengur en 12
mánuði.
Réttur til dvalar í öðru EES-ríki
skal viðurkenndur án þess að
dvalarleyfi sé gefið út:
a) þegar atvinnuráðning stendur
skemur en 3 mánuði, eða
b) þegarlaunþeginnhefurbúsetu
í öðru EES-ríki og fer þangað
reglubundið a.m.k. einu sinni
í viku, eða
c) þegar atvinnan er árstíða-
bundin og byggir á vinnu-
samningum sem eru viður-
kenndir af yfirvöldunum.
Áframhaldandi
dvalarréttur
Samkvæmt d-lið 3. tl. 28. gr.
EES-samningsins hafa ríkisborg-
arar EES-ríkja rétt á áframhald-
andi búsetu í öðru EES-ríki eftir
að hafa stundað þar atvinnu. I
reglugerð framkvæmdarstjórnar-
innar(EBE) nr 1251/70eruhelstu
ákvæði um áframhaldandi dvöl
nánar tilgreind.
Eitt af eftirfarandi skilyrðum ber
að uppfylla:
a) Starfsmaður fer á eftirlaun og
hefur unnið í landinu síðustu
12 mánuði og verið búsettur
þar samfellt í 3 ár.
b) Starfsmaðursemhlýturvaran-
lega örorku og hefur verið
búsettur a.m.k. 2 ár í landinu.
Ef um vinnuslys eða atvinnu-
sjúkdóm, sem vinnuveitandi
ber ábyrgð á, er að ræða, eru
engin tímamörk fyrir búsetu í
landinu.
c) Starfsmaður sem hefur búið
og unnið samfellt í 3 ár í ríkinu
en starfar í öðru rrki, en heldur
heimili í fyrra ríkinu og hverfur
þangað að jafnaði daglega
eða a.m.k. einu sinni í viku.
d) Ef launþeginn andast, þá á
fjölskylda hans rétt á áfram-
haldandi búsetu í landinu ef
launþeginn hefur öðlast
áframhaldandi búseturétt. Ef
launþeginn andast áður en
hann hefur öðlast áfram-
16 - Tölvumál