Tölvumál - 01.04.1993, Qupperneq 20
Apríl 1993
Meginreglan í þessu frumvarpi er
sú að frá og með þeim degi senr
aðilaskipti verða, þá tekur nýr
atvinnurekandi við öllum rétt-
indum og skyldum, sem fyrri
atvinnurekandi bar gagnvart
starfsmönnum í fyrirtækinu eða
atvinnurekstrinum, að því er
snertir ráðningarkjör þar með
talin áunnin réttindi svo og önnur
starfsskilyrði.
Uppsagnir starfsmanna eru ekki
heimilaðar nema fyrir liggi efna-
hagslegar, tæknilegar eða skipu-
lagslegar ástæður, sem hafa í för
með sér brey tingar á starfsmanna-
haldi í fyrirtækinu. Sarna gildir
um breytingar á stöðu trúnaðar-
manna. Þegar aðilaskipti verða
skal trúnaðarmaður halda réttar-
stöðu sinni og starfi samkvæmt
lögum og samningum að svo
miklu leyti sem atvinnureksturinn
heldur sjálfstæði sínu.
Aðilaskipti eða samruna skulu
þeir sem hlut eiga að mál i ti lkynna
trúnaðarmanni starfsmanna eða
starfsmönnum sjálfum sé trún-
aðarmaður ekki fyrir hendi með
eins góðum fyrirvara og hægt er
og a.m.k. áður en aðilaskipti
koma til framkvæmda. Einnig
hvílir á sömu aðilum skylda til
að upplýsa hlutaðeigandi starfs-
menn um ástæður fyrir aðila-
skiptunum eða samrunanum.
Einnig skulu þeir upplýsa um
lagalegar, efnahagslegar og fél-
agslegar afleiðingar aðilaskipt-
anna fyrir starfsmenn og urn allar
fyrirhugaðar ráðstafanir vegna
starfsmanna.
Ef það liggur fyrir að atvinnu-
rekandi hafi í huga að gera ráð-
stafanir vegna starfsmanna vegna
aðilaskipta eða samruna, skal
hann hafa samráð við trúnaðar-
mann starfsmanna eða starfs-
mennina sjálfa í því skyni að ná
samkomulagi um þær. Slíkt
samráð skal hafa með góðuin
fyrirvara og áður en fyrirhugaðar
ráðstafanirkomatil framkvæmda.
Almennt séð hafa lítil takmörk
verið fyrir því til hvaða ráð-
stafana nýir eigendur geta gripið
til við aðilaskipti að atvinnu-
rekstri hér á landi. Þó þeir verði
jafnan að halda sig við gildandi
lög og kjarasamninga, þá eru þeir
almennt ekki bundnir af sérstök-
um ráðningarsamningum fyrri
eigenda nema þess sé sérstaklega
getið í aðilaskiptasamningi.
Vernd launa vegna
gjaldþrota
Að lokum má nefna tilskipun um
vernd launa við gjaldþrot atvinnu-
rekanda. Ekki þarf að breyta
íslenskum lögum vegna þessarar
tilskipunar.
Öryggisákvæöi EES-
samningsins
í 4. kafla VII. hluta EES-samn-
ingsins þ.e. 112. - 114. gr. eru
tilgreindar þær öryggisráðstafanir
sem hægt er að grípa til við
sérstakar aðstæður í hverju
aðildarríki sem það sjálft metur
sem al varlegar. Ennfremur eru þar
tilgreindar takmarkanir á umfangi
slíkra ráðstafana og gildistíma
og hvernig að þeim skuli staðið.
Þessi ákvæði, ef þeim er beitt,
geta leitl til óskilgreindra tak-
markana á því ferða- ,atvinnu- og
búsetufrelsi sem felst í EES-
samningnum og viðaukum hans.
Almenna öryggisákvæði EES-
samningsins felur í sér að ef upp
komaalvarlegirerfiðleikaríefna-
hagsmálum, þjóðfélagsmálum
eða umhverfismálum sem tengj-
ast sérstökum framleiðslugrein-
um eða svæðum og líklegt er að
verði varanlegir getur samnings-
aðili einhliða gert viðeigandi
ráðstafanir með ákveðnum skil-
yrðum um tilkynningar- og upp-
lýsingaskyldu til samningsaðila
og sameiginlegu EES-nefnd-
arinnar. Ekki má grípa til aðgerða
fyrr en einum mánuði eftir að
þær hafa verið tilkynntar aðilum,
nema því aðeins að þær þoli ekki
bið eða búið sé að hafa sarnráð
áður en fresturinn er liðinn. Þau
ríki sem álíta að nteð öryggis-
ráðstöfunum sé að sér vegið geta
gripið til bráðnauðsynlegra
gagnaðgerða til að jafna það
misvægi er þau álíta að sé fyrir
hendi.
Með samningnum fylgir sérstök
yfirlýsing íslands um beitingu
öryggisákvæðisins í ljósi þess
hve atvinnulífið er einhæft og
landið strjálbýlt. Yfirlýsingin
leggur áherslu á sérstöðu íslands,
til þess að engum megi blandast
hugur um að því verði beitt, ef á
þarf að halda í þeim tilvikum
sem menn hafa mestar áhyggjur
af. Um er að ræða ef alvarleg
röskun yrði á vinnumarkaði með
stórfelldum flutningum vinnuafls
til ákveðinna landshluta, í ákveð-
in störf eða ákveðnar atvinnu-
greinar og einnig ef alvarleg
röskun verður á fasteigna-
markaði. Þessari yfirlýsingu hefur
ekki verið andmælt og engar
athugasemdir gerðar við hana.
Það er íslenskra stjórnvalda að
ákveða það hvort aðstæður kalli
á beitingu þessa öryggisnets.
Hér hefur verið stiklað á helstu
atriðum er varða atvinnu- og
búseturétt í EES-samningnum
eins og hann liggur fyrir nú.
20 - Tölvumál