Vísir - 23.08.1962, Blaðsíða 1
VÍSIR
52. árg. — Fimmtudagur 23. ágúst 1962. — 197. tbl.
Spren
I VORPUNNI!
Sprengja í vörpunni!
Þetta kall kvað við úr stýris-
húsi vélskipsins Sæborg, er
skipið var að veiðum við Eld-
ey síðdegis á föstudag.
Þegar betur var að gáð sáu
skipsmenn að þetta var rétt.
Það skein í hlut sem líktist
ryðgaðri tunnu milli gljáandi
golþorskanna. Skipstjórinn á
Sæborgu hafði vaðið fyrir neð
an sig og tilkynnti Landhelgis-
gæzlunni að hann hefði veitt
furðufisk í net sin. Bað hann
um aðstoð til þess að losna við
þennan óboðna gest. Pétur Sig-
urðsson, flotaforingi, hafði sam
band við kollega sinn á Kefla-
víkurflugvelli, Morre aðmírál.
Sá gaf sveinum sínum skipun
um að vera á bryggjunni í
Keflavík er Sæborg kæmi úr
þessari óvenjulegu veiðiför.
Bandaríkjamennirnir, sér-
menntaðir sprengjumenn, komu
Framh. á bls. 5.
iHvað segir Dýraverndunarfélagið?!
Það glittir i sprengjuna milli þess gula.
Næsta fiskimála-
ráðstefna hér
I LOK fiskimálaráðstefnunnar i
Þrándheimi bauð Emil Jónsson,
sjávarútvegsmálaráðherra, til
næstu fiskimálaráðstefnu hér í
Reykjavík. Verður hún haldin
eftir tvö ár. Slík ráðstefna nef
ir verið haldin hér einu sinni
áður, árið 1954.
Það kom m.a. fram á ráðstefn
unni að Norðurlöndin veiða 3
millj. lesta af fiski, Bretland 1
millj. lesta og EBE löndin sex
1,7 millj. lesta.
Ráðstefnumenn koma nú sem
óðast til landsins frá Þránd-
heimi.
Frá eldistjöminni við Hafnarfjörð.
Þúsundir eldissilunga deyja
úr sulti við Hafnarfjörð
Betra væri að lóga þeim en misþyrma þeim
Nálægt Þórsbergi við
Hafnarf jörð eru leifar af
fiskeldisstöð, sem starf-
rækt hefur verið í nokk-
ur ár. Stöðin virðist hins
vegar hafa verið van-
rækt í sumar og er regn-
bogasilungur í stöðinni í
svelti. Er þar um að
ræða nokkrar þúsundir
regnbogasilunga. Hafa
þeir verið sveltir í
nokkra mánuði og væri
nær að lóga fiskunum
en fara svo með þá.
Það er áríðandi að gefa eldis-
silungum yfir heitasta árstím-
ann. Þarf að hella daglega í
tjarnimar talsverðu magni af
möluðum fiskúrgangi. Þetta
hefur ekki verið gert. Sá sil-
ungur, sem er í vatninu er kvið-
dreginn og mjög illa haldinn af
sulti. Sést það, hve gráðugur
hann er af því, að ef menn
stinga fingri niður í tjörnina,
koma silungarnir strax og bíta í
fingurinn.
Talið er að fiskeldisstöðin
hafi verið í vaneldi í nokkra
mánuði og ættu opinberir aðilj-
ar að hindra að slíkum fiski sé
misþyrmt að óþörfu.
Auk silungsins í tjöminni
eru þama nokkiir seyði f fjórum
cldiskössum og hafa þau ekki
heldur fengið fóður nýlega.
Seyðum þarf að gefa hakkaða
nautalifur 3 til 4 sinnum á dag,
en þau hafa ekkert fæði fengið
í Iengri tíma. Afleiðingin hefur
orðið að flest seyðin hafa drep-
izt og hin hafa þá étið hræin af
þeim.
Kviðdreginn og soltinn silungur dreginn á land.
Skaðabótamúl vegna ís-
lenzkra Evrépufrímerkja
waawiBW—i
Óvenjulegt mál er nú rekið fyr-
ir bæjarþingi í Kaupmannahöfn.
Það er skaðabótamál höfðað gegn
frímerkjakaupmanni einum i Höfn
að nafni Fogh, sem hafði heitið
fjölda manns að útvega því öll
Evrópufrímerki, sem voru gefin út
í fyrrahaust, eða Evrópufrimerki
tólf landa.
En þegar til kom sendi hann við-
skiptavinum sínum aðeins tíu
merkjanna og kvaðst ekki hafa get-
ntsmtNHkuai
að fengið Evrópumerkin frá Islandi
og Tyrklandi, þau hefðu selzt upp.
Einn viðskiptavina Foghs hefur
nú höfðað mál gegn honum og
krefst þess, að hann bæti fjárhags-
tjón sitt við það að hann þurfi að
kaupa frímerkin frá Islandi og
Tyrklandi á margfallt hærra verði.
Fogh neitar að greiða þessar
skaðabætur og segir að hér hafi
valdið óviðráðanlegar ástæður.
Hann segist hafa pantað frímerkin
hjá póststjórnum Islands og Tyrk-
lands og greitt þau fyrirfram, en
ekki fengið þau þrátt fyrir það.
Þessu hafnar kaupandi og segir,
að hér hafi engin óviðráðanleg at-
vik komið fyrir, enda hafi það
sýnt sig að aðrir frímerkjakaup-
menn í Danmörku hafi útveg-
að kau. mdum sínum islenzku og
tyrknesku frímerkin enda þótt þeir
Framhald á bls. 5.
i