Vísir - 28.08.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 28.08.1962, Blaðsíða 1
tbl. siúkliagum hefst Væntanlegir eru hing- að til lands þrír kunnir sérfræðingar Dana í hjartasjúkdómum. — Munu þeir dvelja hér í vikutíma og vinna að hjartarannsóknum. Hafa þeir með sér sérstakt tæki sem þeir munu nota við hjartarannsóknir og ekki er til hérlendis. Hjartasérfræðingar þessir eru allir frá Rigshospitalet i Kaupmannahöfn. Heita þeir dr. Lindeneg, dr. Fredriksen og dr. Jagt. Sjálfir munu þeir koma flugleiðis hingað þann 15. des. en rannsóknartækið munu þeir senda! á undan með Gullfossi. Jafnframt rannsóknunum munu þeir flytja fyrirlestra hér um hjartasjúkdóma. Vísir átti tal við Sigurð Sam- úelsson prófessor í morgun um þessar rannsóknir. Sagði hann að hér væri um svokallaðar eft irrannsóknir á hjartasiúkling- um að ræða. Kæmu hinir dönsku sérfræðingar hingað af eigin hvötum. Rannsóknartæki til slíkra rannsókna stæðu okk ur íslendingum til boða en ekki þætti tiltækt að setja þau upp, vegna þess að sérfræðinga inn- ienda skorti til þess að starfa við þau. Einnig skorti húsnæði til slíkra rannsókna. Elzta kennsluflugvélin TF-KAK eyðileggst í gær hlekktist elztu I atvinnuflugmenn lært og kennsluvél flugskólans | munu þeir sakna hennar, Þyts á uppi í Mosfellssveit. Er þetta Piper Cub vél, kom hún hingað til lands árið 1947. Hún var alþekkt því að líklegt er að flug- vélin sé nú svo illa farin að ekki borgi sig að gera við hana eftir þær skemmd vél, hafði skrásetningar-1 ir sem urðu á henni. merkið TF KAK. Á þessa! Fréttamaður Vísis skrapp upp' ,, . , ,, ,. , , , . i að Varmadal í Mosfellssveit í gær, vel hafa flestir íslenzkir Aldarafmæli Akureyrar er á morgun og 1 því tilefni birtum við þessa mynd frá undirbún- ingnum, sem tekin var norður á Akureyri í gær. Þar hefir ver- ið unnið ötullega að undirbún- ingi hinna miklu hátíðahalda, bærinn fegraður og skreyttur og mikil dagskrá undirbúin. Hefst hátíðin í fyrramálið með vígslu nýja elliheimilisins, en eftir hádegið verður mikil hátíð á hinum giæsiiega íþrótta leikvangi við Brekkugötu. I Hér á myndinni er unnið að gerð skjaldarmerkis Akureyrar sem fyrst var borið á fána á Al- þingishátíðinni 1930. Er það Vaigarð Frímann lögregluþjónn, sem vinnur við teikniborðið, en hann er einn af þeim mönnum sem skipulagt hafa hina miklu sögusýningu sem opnuð verður á hátíðinni. Vísir mun flytja mikið efni og margar myndir á morgun frá Akureyri og mun aukablað, sérstakt Akureyrarblað, fylgja Vísi. (Ljósm. Vísis: Gunni. K.) Sttkað / 20 þúsund tunnur Þannig lá flugvélarflakið á melnum fyrir norðan Varmadal í Mosfellssveit. Á myndinni sést Þengill Oddsson vera að skoða flugvélina. En hann er sá síðasti sem tekið hefur próf á gömlu kennsluvélina. Vísir fregnaði í morgun i að það magn síldar sem Rússar munu væntan- lega semja um kaup á nemi 20 þús. tunnum. Sökum þessa hefir Síld- arútvegsnefnd leyft sölt- un á ný en þó einungis á eigin ábyrgð saltenda. Er söltun því hafin en nefndin tilkynnti salt- endum þetta í skeyti á laugardagskvöld. Eins og nú standa sakir hefir ' verið saltað 29 þús. tunnum um fram samninga. 15-20 þús. tunn ur munu fara í ápakkningu og er því raunverulega ekki horf- ur á sölu meir en 10 þús. tunn um saltsíldar þótt samningar takist við Rússa. STANZLAUSIR FUNDIR. Frá þvf á föstudag hefir Sfld- arútvegsnefnd setið á linnulaus um fundum með fulltrúum síld- arkaupenda í Vestur-Þýzka- landi. Fyrr í sumar, í júní, fóru fram viðræður við þá en ekki gekk saman. Hér er um að ræða kaup á flattri síld, þ.e. verkuð saltsíld með ediki í stað krydds Fundir stóðu í morgun og má fljótlega vænta einhverrar nið- urstöðu. Prentara deilan Samninganefndir Félags ísl. prentsmiðjueigenda og Hins fsl. prentarafélags komu saman á fund í gærkvöldi kl. 8,30 og stóð þar til um kl. 11. Næsti fundur nefndanna mun vera haldinn á morgun. — Þótt ekki verði sagt með vissu, eins og sakir standa um árangur inn af starfi nefndanna, mun mega fuilyrða, að á fundinum í gær hafi miðað f samkomulags átt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.