Vísir - 29.08.1962, Síða 1

Vísir - 29.08.1962, Síða 1
Enn einu sinni hafa gúmmí- bátarnir komið sér vei við skips- tjón, jafnvel bjargað fleiru en einu mannslífi. Vélbáturinn Stclla frá Grindavík fórst í nótt á miðum úti, mannbjörg varð og eru skipstjóri og stýrimaður báðir á einu máli utn að gúmmíbátamir hafi átt stór- an þátt í því að svo vel tókst til. Atburður þessi skeði í fyrrinótt og bar að með nánast furðulegum hætti. Stella var á humarveiðum og „lágum við rétt yfir mestu dimm- una“. Stillilogn var og fyrir hreina tilviljun komust skipverjar að því, að báturinn var að fyllast af sjó. Um tvöleytið rétt eftir vaktaskipti gekk 1. vélstjóri niður í véiarrúm og sá þá að sjár streymdi þangað inn, úr lestinni, í gegnum leiðslur sem þar lágu á milli og eins undir þilið. Var honum strax ljóst að mikill sjór var þegar í lestinni. Framhald á bls. 5. Forsætisráðherra, Ólafur Thórs, ásamt menntamálaráðherra við brottför þeirra í morgun. Forsætisráðherra til Akureyrar Forsætisráðherra fór í morg- un ásamt menntamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasyni til Akureyr- ar ,en þeir verða þar fulltrúar ríkisstjórnarinnar á hundrað ára afn»r:!i höfuðstaðar Norður lands. Fréttamaður Vísis hitti hann að máli er hann var að stíga upp í flugvélina á Reykja víkurflugvelli og spurði hann um ferðina. — Þér hafið náttúrulega oft komið til Akureyrar, herra for sætisráðherra? — Já, þegar ég var ungur, var ég lengi á Svalbarði í ná- grenni Akureyrar og kom þá oft þangað, oftast á vegum Sjálfstæðisflokksins í pólitfskri víking. — En nú farið þér fyrir hönd ríkisstjórnarinnar? — Mér er það mikið gleðiefni að fara fyrir hönd ríkisstjóm- ar og bera fram árnaðaróskir hennar. Ósk okkar er sú, að þar megi ætíð búa fólk, sem gerir garðinn frægan eins og nú er. FORSETINN GENGUR Á LAND Mynd þessi var tekin f gær á hafnarbakkanum á Akureyri þeg ar Ásgeir Ásgeirsson forseti steig á land úr varðskipinu Þór. bæjarstjórnar og Magnús E. Guð Við landganginn taka á. móti jónsson bæjarstjóri. honum Jón G. Sólnes fo'f^ti Akureyri i hátíBarskrúða Dansað á götunum í kvöld Á hátíðafundi sínum laust fyrir kl. 6 í kvöld mun bæjarstjórn Akureyrar samþykkja eftirfarandi: ★ að stofna veglegan menningarsjóð bæjarins ★ að leita eftir tilboðum um nýtt og fullkomið skipulag Akureyrar að setja nýjar reglur um æðstu stjóm bæjarins. sýning opnuð í gagnfræðaskólan- um. j í kvöld munu Akureyringar dansa á götum miðbæjarins sem allur verður skrautlýstur. Er ekki að efa að þar verður 1 mikill og góður gleðskapur. Pegar bæjarbúar komu á fætur ímorgun blöktu fánar við hún á hverju húsi. Bærinn er fagurlega skreyttur sérstaklega miðbærinn og má sjá skjaldarmerki bæjarins á mjög mörgum veifum. Fjöldi gesta er kominn til bæjar- ins og öll hótel eru þéttsetin. í morgun er hátíðahöld hófust var veður gott, skýjað en milt og hlýtt. Hámark hátíðahaldanna fer fram eftir hádegi á íþróttaleikvanginum en það hefur valdið Akureyring- um vonbrigðum að hátíðarræðumað urinn Davfð Stefánsson skáld getur ekki flutt ræðu sfna sökum sjúk- leika. Mun annar maður, Gísli'Jóns- son menntaskólakennari flytur ræðu Davíðs. Tónlistina mun ekki skorta á Akureyri í dag. Karlakórar bæjar- I ins blandaður kór munu syngja I og lúðrasveit leika. Á íþróttaleik- i vanginum munu forseti íslands og forsætisráðherra flytja ávörp. Sið- degis verður mikil og merk sögu- Got eklii flutt ræðuna Það var ætlunin að Davið Stef- ánssort skáld frá Fagraskógi flytti aðalræðuna á afmælisdegi Akur- eyrar í dag. Af þessu gat því mið- ur ekki orðið vegna veikinda skáldsins og munu allir harma það, að þjóðskáldið gat ekki komið fram á þessari aðalhátíð bæjarins. Hann veiktist fyrir nokkrum dög- um af hjartasjúkdóm og varð að leggjast á sjúkrahús. Skáldið hafði lokið við að semja ræðu sína og átti Gísli Jónsson menntaskólakennari að flytja hana á hátíðinni. Nýja kjötiB í búðir í dag 1 dag þegar reykvfskar hús- mæður líta inn í kjötbúðirnar er hægt að segja þeim þær gleðifréttir að nýja kjötið sé komið. Vísir hringdi í morgun til sölustjóra Sláturfélags Suð- urlands og spu.Jist fyrir um haustslátrunina, en Sláturfélag ■ ið eru þeir einu sem slátra hér í Reykjavík. Sagði sölustjórinn að byrjað hefði verið að slátra í gær, voru það 60 lömb frá Krýsuvík. í dag verður svo slátrað 70 lömbum úr Kjósinni. Bjóst hann við að slátrun mundi standa til föstu- dags. Nýja kjötið verður nokkuð dýrt fyrst um sinn, súpukjötið á kr. 48,40 pr. kíló, hryggur á 56.15 og lærissneiðar 54,35. Töluvert er enn eftir af kjöti frá því í fyrra og þar sem geymslan hefur tekizt vel má búast við að nýja kjötið seljist ekki mjög mikið fyrst um sinn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.