Vísir - 29.08.1962, Blaðsíða 4
►
4
''•SIR
Miðvikudagur 29. ágúst 1962.
Mesti bókafengur
í Islandssögunni
Frá þvf var skýrt í Vfsi sl.
mánudag að bókasafn Þorstcins
sýslumanns Þorsteinssonar hafi
verið selt einstaklingi í Reykja-
vfk, Kára Borgfjörð Helgasyni,
kaupmanni. Hefur enginn íslend-
ingur eignazt annan eins bóka-
feng á einu bretti, sem Kári við
þessi kaup.
Þykir það ekki litlum tíðind-
um sæta að einn maður skuli
ráðast í kaup á jafn stóru safni
sem þessu. Raunar hefur ekki
verið gefið neitt upp um kaup-
verðið, en hins vegar hefur bóka
safn Þorsteins heitins verið talið
milijóna króna virði, sem sést
Ijósast á þvf að íslenzka ríkinu
Helgi Tryggvason
— Hvað kom þér á bragðið?
— Fyrst og fremst löngun
mín til að eignast bækur, en þar
við bættist svo að ég las auglýs-
ingu frá Helga Tryggvasyni bók-
bindara, sem þá átti heima á Lóu
götu á Grímstaðaholtinu, þar
sem hann bauð blöð og tímarit
til sölu. Þá kynntist ég Helga
í fyrsta sinn og fékk á honum
mætur við þau kynni. Helgi er
ekki aðeins fróðleiksnáma um
blöð og tímarit, heldur og manna
hjálpfúsastur og greiðviknastur.
Honum á ég að langmestu leyti
að þakka það sem ég hef eignazt
af bókum til þessa.
ríkinu hafði verið boðið safnið
til kaups, kom mér ekki annað
til hugar, en að þangað myndi
safnið fara. Mér fannst það
sjálfsagður hlutur. Ég átti nokkr
um sinnum tal um þetta við Ing-
ólf Jónsson sem fór með um-
boð eins aðalerfingjans. Hann
taldi sennilegt að ríkið myndi
kaupa, eða þá einhver einstök
ríkisstofnun, eða jafnvel Reykja
víkurborg. Ekkert af þessu varð.
— Og þá bauðst þú í safnið?
— Já, ég gerði tilboð f það
fyrir ákveðna upphæð og um-
boðsmenn erfingjanna sam-
þykktu það. Síðastliðið laugar-
dagskvöld var gengið endanlega
frá kaupsamningi.
var boðið það fyrir hálfa fimmtu
milljón króna af hálfu erfingj-
anna, áður á þessu ári.
Fréttamaður frá Vísi átti tal
við Kára B. Helgason strax og
fréttin barst um kaup hans á
safninu, óskaði honum til ham-
ingju með kaupin og spurði
hann hvað fyrir honum hafi vak-
að með kaupum á safninu.
Afmælisgjöf handa sjálfum mér
— Ég hef löngum haft gaman
af bókum, líka af þvf að eignast
bækur. Hver maður á sín áhuga-
mái, sína hugsjón. Mig hefur
lengi langað til að eignast gott
bókasafn. En núna kemur safn
Þorsteins heitins upp f hendurn-
ar á mér sem eins konar afmælis
gjöf, því ég verð fertugur í
næsta mánuði og þá býst' ég við
að flytja safnið heim til mín.
— Hafðirðu fengizt við bóka-
söfnun áður?
— Já, meir eða minna sl. hálf-
an annan áratug, eða frá þvf ég
var 25 ára gamall.
Átti gott safn blaða
og tímarita fyrir
— Eru það einkum blöð og
tímarit?
— Já, það er uppistaðan 1
bókaeign minni eins og hún var
áður en ég eignaðist safn Þor-
steins heitins, Ég átti orðið all-
gott safn af tímaritum, enda þótt
ýmislegt fágætt vantaði, og auk
þess nokkuð gott safn af seinni
tíma blöðum, samt ekki dagblöð-
um. Þorsteinn heitinn átti aftur
allmikið af gömlu vikublöðun-
um, svo að í þessu efni fylla
söfnin hvort annað upp.
— Er langt síðan þér datt í
hug að kaupa bókasafn Þorsteins
heitins?
— Mér kom það eiginlega til
hugar strax þegar safnið var
boðið til sölu. Hins vegar skal
ég játa það að ég bjóst aldrei við
að sá draumur rættist.
Taldi líklegt að ríkið
mundi kaupa
Þegar ég frétti að ísienzka
Sei tvftökin
— Er það meining þín að
halda því saman eða ætlarðu
að selja eitthvað af því aftur?
— Ég er ekki fornbókasali og
mér hefði aldrei komið til hug-
ar að festa kaup á safninu ef ég
ætlaði mér að seija það eða
eitthvað úr því aftur. Vel að
merkja þó, að þar sem um tví-
tök verður að ræða það verður
selt. Og það fer ekki hjá þvf að
af tvltökum verður allmikið,
einkum þó á sviði tímarita, þar
sem ég á mörg þeirra fyrir. Ég
sé ekki ástæðu til að eiga mörg
eintök af sömu bókinni.
Fylli í eyðumar
— Hefurðu hugsað þér að
láta’ safnið geymast að öðru
leyti í því ástandi sem það er
í, eða bæta þar eitthvað um?
— Þegar ég flyt safnið til
mín, sem væntanlega verður ein
hvern tíma eftir n.k. mánaðamót
þarf ég að skipuleggja það á nýj
an leik, fá örugga vitneskju um
vantanir í einstakar bækur, blöð
eða ritsöfn, en að því búnu ætla
ég að vinna að því eftir fremsta
megni að fylla í eyðurnar og
láta lagfæra það sem miður fer.
Ég mun leggja stolt mitt í það
að bæta það og fylla eftir föng-
Kári Borgfjörð Helgason les I
steins sýslumanns.
um og standsetja eftir fremsta
megni. Mér er það líka ljóst að
það þarf mikil og rúmgóð húsa-
kynni til að geyma safnið svo
vel fari. Þorsteinn sjálfur
geymdi það í stóru herbergi,
sem þó var alltof lítið fyrir það.
Dáist að dugnaði
Þorsteins sýslumanns.
— Hafðirðu nokkur persónu-
leg kynni af Þorsteini heitnum?
— Það get ég ekki sagt. Ég
var honum ekki málkunnugur,
en ég kom stundum þar sem
hann ,var staddur hjá fornbók-
sölum og bókamönnum og ræddi
við þá um gamlar bækur og
bókaviðskipti. Ég dáðist að þess-
um mikla ákafa hans og dugn-
aði við að safna bókum allt fram
á síðustu ár, dáðist að því hve
mikinn tíma hann hafði ávallt
gömlu vikublaði úr eigu Þor-
aflögu fyrir bækur sínar frá
þingmennsku, embættisrekstri í
héraði og um'svifamiklu sýslun-
arstarfi jafnt í heimabyggð
sinni sem á alþjóða vettvangi.
Þetta verðmæta bókasafn Þor-
steins sýnir ekki sízt hvílíkur
dugnaðarforkur hann var og hví
líkan athafnamann hann hafði
að geyma.
Hvað skal gera?
— Og þú ert ánægður með
kaupin?
— Mjög ánægður. Með þess-
um kaupum hefur gamall draum
ur rætzt. Ég held líka að ég hafi
gert góð kaup og fengið safnið
ódýrt miðað við allar aðstæð-
ur, þvi fágætar bækur fara stöð-
ugt hækkandi í verði. Mér er það
ljóst að ég hef ráðizt í mikið —
en hvað skal gera?
Verzlunin
Eyjafjörður h.f.
AKUREYRI
SELUR:
Vefnaðarvörur,
Matvörur
Fóðurvörur,
Búsáhöld,
Hreinlætisvörur,
Byggingarvörur.
Óskum Akureyringum til hamingju
með 100 ára afmæli bæjarins.
KAUPIR:
Ull,
Gærur,
Húðir.
Vélsmiðjan ODDI h/f * B,ikksmíði
Akureyri * JárnSmíði