Vísir - 20.09.1962, Page 2

Vísir - 20.09.1962, Page 2
' >, VISIR Fimmtudagur 20. sept. 1962. y////sm.'/////éL ii—i r=ti —i r1 czQ u y//////////my////Æ LISTON TWISTAR. — Eftir erfiðan dag við æfingarnar twistar Sonny Liston við konu sína Geraldínu. Æfingakerfi Listons þykir furðulegt, og minnir það nokkuð á það sem sagt var um æfingar Ingemars Johanssonar áður en hann varð meistari. Liston tvistar eftir æfíngar og er sagður vinna Patterson 1 næstu viku, nánar tiltekið næsta þriðjudag, fer fram i Com- iskey Park í Chicago keppni um titillnn heimsmelstari i hnefaleik- um, en þá slást kempurnar Patter- son, núverandi meistari og Sonny Llston, sem hefur unnið sér rétt til að skora á íneistarann, en haft er fyrir satt að framkvæmdastjóri Pattersons hafí i mörg ár reynt að komast hjá þessari keppni, enda Liston ekki árenniiegur. Comiskey Park verður vissulega troðfullur á þriðjudaginn, og við milljónir sjónvarpstækja um þver og endilöng Bandarikin mun fólk fylgjast með bardaganum. Patterson skal ekki lenda i bófa- höndum, sagði Cus D’Amato, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Patter- sons og vitnaði þá til félagsskapar þess, sem Liston var i áður, en cinmitt vegna afskipta hans af glæpafélögum 1 Chicago hefur Liston ekki fyrr en nú vcrið leyft að fá keppni um heimsmeistara- tignina. „Knock-out“-kóngurinn Liston hefur barizt 34 sinnum en unnið 33 sinnum, Sagt er þó að sakavottorð hans sé ekki styttra en sigraskýrsian. Eini maðurinn, sem hann hefur tapað fyrir er Marty Marshall, sem hann hefur unnið tvívegis slðar. Siðan 1956 hafa aðeins tveir af andstæðingum Listons haldið út tímann gegn honum, en þeir voru Eddie Machen og Bert Whitehrust, en hinir hafa fengið rothögg. Samt segja sumir að hann sé seinn, aðrir að hánn sé klossaður, en alltaf er árangurinn sá sami: Andstæðingurinn borinn burtu úr hringnum. PATTERSON ÞVINGAÐUR TIL IÍEPPNI? Vitað er að Patterson ber ótta- blandna virðingu fyrir keppinaut sinum og halda sumir að hann hafi verið þvingaður til að skrifa undir samninga um keppni þessa, a. m. k. cr Cus D’Amato ekki lengur framkvæmdastjóri hans og ætlar ekki einu sinni að vera viðstaddur keppnina. Ekki vill hann né heldur Patterson tilgreina ástæðuna. Liston er nú talinn nokkuð ör- uggur sigurvegari þrátt fyrir hina góðu tækni heimsmeistarans og gætir þess mikið hjá veðmálastofn- unum. Liston fær þó aðeins 12.5% af ágóða keppninnar, þar sem Patt- erson fær hins vegar 42.5%. Það sem eftir er, 45%, fá fram- kvæmdastjórarnir til sinna um- ráða. Bæjarkeppni í hnndknnftleik: Kópavogursigraði Hafin er Bæjarkeppni Hafnar- fjarðar og Kópavogs í handknatt- leik Fyrstu leikir keppninnar fóru fram s.l. sunnudag og fóru leikar svo, að Kópavogur vann bæði f meistaraflokki og 2. flokki, en Hafnafjarðarstúlkurnar eru ís- landsmeistarar úti, í meistarafl Keppni þessari er hagað þannig, að keppt er í þessum tveim flokk- um kvenna, bæði úti og inni, heima og heiman, alls 4 leikir á lið, 8 leikir talsins, en það liðið, sem fær fleiri stig út úr keppninni sigrar ug hreppir bikar, sem Þor- varður Árnason hefur gefið. í fyrra vann Kópavogur bikarinn, vann þá aila útileikina og 2. flokksleikinn inni, hlaut 10 stig gegn '6. Fyrstu leikjunum nú lauk með sigrum Kópavogs 8:6 í meistara- flokki og 7:3 í 2. flokki og fær Kópavogur þar 4 stig á heimavelli sínum. Innan skamms leika liðin í Hafna.firði, en í vetur verður svo leikið innanhúss. Bikarkeppnin: Kópavogur vann Hafnarfjörð 5:4 Kópavogur vann f Hafnarfirði leik sinn i Bikarkeppninni í knatt- spymu, en leikur liðanna fór fram í fyrrakvöld. Eftir harðan bardaga lauk leik 5:4 fyrir Breiðablik. Það voru Hafnfirðingar sem skoruðu 1. rnarkið, en Breiðablik bætti tvívegis við fyrir leikhlé. í siðari hálfleik komu svo tvö Kópavogsmörk til viðbótar, 4:1 og virtist sigur Kópavogs blasa við. Svo var ekki því Hafnfirðingar sóttu sig jafnframt þvi sem Kópa- vogur slakaði á sókninni og von bráðar var staðan 4:3, en Kópa- vogur skoraði 5:3 og á síðustu mínútunum kom 5:4, en leikurinn gerðist mjög harður og spennandi þrátt fyrir Ieiðindaveður sem var meðan leikurinn fór fram, en Kópa vog tókst að halda forystunni og heldur þvi áfram í Bikarkeppninni. Hleypur 16 kílómetra til vinnu sinnar Skrifstofumadurinn Kilby, ervann Maraþonið á EM Það kemur oft fyrir í Maraþonhlaupuni hinna meiriháttar keppna eins og Qlympíuleika, Evrópu- meistaramóta o.s.frv. að alls óþekktir menn komast fram í sviðsljósið. Þannig var þetta, er Spiridon Lou is vann Maraþonhlaupið á fyrstu Olympíuleikum nú- tímans í Aþenu 1897, en Louis var einfaldur geita- hirðir og ekki talinn koma til greina að sigra. Bikile Abeba, berfættur lífvörður Haile Selassie, Abbysiníukeisara varð sigurvegari í Róm á síð- ustu OL, gjörsamlega ó- þekktur og nú á dögunum varð „hlaupandi skrifstofu maður“ sigurvegari á EM í Belgrad. Brian Kilby, hinn 24 ára skrif- stofumaður frá Coventry , Eng- landi var ekki „nafn“ þegar spek- ingar á sviði frjálsíþróttanna bolla- lögðu úrslit EM fyrirfram. Helzt var hallazt að nafninu Popov, sem var langþekktast en mörg önnur komu frekar til greina en Kilby, sem enginn hafði heyrt nefnt. Kilby tók snemma þátt f hlaupinu með fyrstu mönnum, hljóp sem mest hann mátti í skugg um trjánna, til að forðast brenn- andi heita sólina og neitaði svala- drykkjum, til að vera öruggur um að veikjast ekki. Popov, Síberíu- maðurinn f rauðum bol með sigð- armerki Sovétríkjanna, var mað- urinn sem Kilby bar djúpa virð- ingu fyrir. Kilby, ásamt Skotanum Wood, hljóp með öllum 3 þátttakendum Rússa lengi ve’, en fyrst eftir 32 kílómetra hlaup tók Kilby for- ystuna, sem hann hélt sfðan út hlaupið. Kilby var fagnað gífurlega af löndum sínum sem' og öðrum áhorfendum, er hann hljóp Iétti- lega inn á leikvanginn og flutti Bretum 5. sigurinn á EM, en þeir unnu einn sigur hvern dag keppn- innar. Aðspurður um æfingar og annað Frh. á 5. sfðu. ivrópubikarinn: Brian Iíilby — hleypur á skrifstofuna — umferð i> Esbjerg heldur áfram i 2. umferð Evrópubikarsins eftir jafntefli í gær við írska liðið Linfield, 0:0. Leikurinn fór fram í Kaupmannahöfn, en fyrri leikinn í Dublin vann Es- bjerg með 2:1 og sá sigur reið baggamuninn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.