Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 20
Apríl 1994
lýsingar um kvótastöðustöðu og
landaðan afla frá Fiskistofu. Upp-
lýsingar um landaðan afla berast
frá höfnum landsins til Fiskistofu
í lok hvers dags og eru aðgengi-
legar Hafsjávarnotendum. Fyrir-
spurn er send unt Háhraðanetið
yfir í tölvukerfi Fiskistofu, sem
sendir niðurstöður lil baka.
Strengur notar Háhraðanetið
til að tengjast ýmsum stofnunum,
fyrirtækjum og Internetinu.
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna rekur umfangsmikið tölvu-
kerfi vegna sölu og uppgjörs á
fiskafurðum. Mjög mikilvægt er
að aðildarfyrirtæki innan SH fái
aðgang að upplýsingum jafn-
skjótt og þær berast. Innan SH er
notað viðskiptakerfið Fjölnir og
er það keyrt á OS/2 server.
Aðildarhús SH fá upplýsingar
um verð, birgðir, markaðshorfur
og fleira úr Hafsjó. Fjölnir tengist
Informix gagnagrunninum með
kerfi, sent þróað hefur verið hjá
Streng hf. Kerfið opnar aðgang
milli SQL gagnagrunna og
Fjölnis. Notendur á Fjölnisnetinu
sjá gögn í Informix eins og þau
væru skráð í Fjölni. Þannig geta
þeir skráð og lesið gögn t.d. úr
Informix gagnagrunni, stillt upp
skjámyndum og útskriftum á þess
að hafa hugmynd urn að gögnin
séu geyrnd í SQL töflum. Al-
menna gagnanetið er hin hefð-
bundna leið fyrir almenna not-
endur til að tengjast tölvukerfi
Strengs. Flestir nota upphringi-
samband en stórir viðskiptavinir
nota fastar línur. Hraðinn á sam-
bandinu er 19200 baud. Nú í seinni
tíð nota æ fleiri Háhraðanetið til
að tengjast kerfinu.
Unixtölva Strengs hf. tengist
Reiknistofu fiskmarkaða (Fisk-
markaður Suðurnesja) um Inter-
netið. Uppboðslisti væntanlegs
uppboðs er sendur yfir á tölvu
Strengs og geta væntanlegir
bjóðendur gert tilboð gegnum
kerfið. Að loknu uppboði er send
niðurstaða uppboðsins þar sem
fram kemur hverjir keyptu og á
hvaða verði. Allt kerfið er mjög
stöðugt og heyrir það til undan-
tekninga að rekstur þess truflist.
Öll þróunarvinna fer fram á tölvu
sem tengd er netinu og hefur því
ekki áhrif á reksturinn.
Uppbygging á tölvuneti eins og
lýst er í þessari grein er bæði
kostnaðarsöm og tímafrek og
krefstmikillarsérfræðiþekkingar.
Rekstur tölvunetsins er síbreyti-
legur, en við val á upplýsingum
til birtingar er er tekið mið af
þörfum notenda. Strengur hf.
hefur áform um að færa út þjón-
ustu netsins og nýta þá reynslu og
þekkingu sem safnast hefur hjá
fyrirtækinu þau sex ár sem það
hefur verið í notkun.
Höfiindar eru starfsmenn
Strengs hf.
20 - Tölvumál