Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 39
Apríl 1994
turnvélar af gerð 520. Stýrikerfið
er einnig frá IBM en það er IBM
útgáfa af Unix "AIX v.3.2.x".
Fjöldi vinnustöðva verður í allt
um það bil 22 og turnvélar verða
3. Til viðbótar eru svo ýmis
jaðartæki, eins og móttakari fyrir
klukkumerki frá gervitunglum,
mótöld fyrir ytri samskipti auk
almennra tækja eins og band-
stöðva, harða diska o.s.frv. Að
auki eru tengingar við fjarskipta-
net eins og X.25, Aeronautical
Fixed Telecommunications Net-
work (AFTN) og Common ICAO
Data Interchange Network
(CIDIN). Tvö síðastnefndu eru
fjarskiptanet sem notuð eru í
tengslum við flug. Allur vélbún-
aður er staðlaður aðkeyptur
búnaður en hugbúnaðurinn er
sérhannaður. Kerfið skiptist í
grófum dráttum í tvennt, annars
vegar er það virki hluti þess, þ.e.
sem sér um daglega flugumferða-
stjórnun, og hins vegar viðhald,
þjálfun ogþess háttar. Þessirhlutar
eru algerlega aðskildir en hægt er
að tengja staðarnetin fyrir þessa
tvo hluta saman, t.d. þegar upp-
færa þarf hluta hugbúnaðar.
Samskiptastaðlar
Þó svo að þetta kerfi sé "on-
line" þá er ekki um að ræða
eiginlegt rauntímakerfi sem gerir
það að verkum að rýmri kröfur
eru um svartíma og samskipta-
staðla. Vélbúnaðarhluti netkerf-
isins byggir á Ethernet staðlinum
með CSMA/CD, en ofan á það
er síðan notaður TCP/IP, UDP/
IP samskiptastaðlar. Þetta eru
hinir velþekktu Unix "de facto
protokol" staðlar sem náð hafa
mikilli útbreiðslu hin síðari ár.
Stærsta krafa á netkerfið er
rekstraröryggi og því var valin sú
leið að hafa tvö aðskilin netkerfi,
sem á að tryggja að sambands-
leysi verði ekki milli tölva.
Dreifð vinnsla byggð
á miðils/biðils
hugtakinu
Þar sem óhjákvæmilegt er að
útreikningarát.d. árekstrarhættu,
kerfisumsjón og kerfisheilsu-
gæsla fari fram miðlægt eru
miðlar hafðir í þessu hlutverki. I
virka kerfinu eru tveir starfandi
miðlar ásamt breytilegum fjöldi
biðla. Grunnurinn að öryggi
kerfisins er byggður á dreifðri
vinnslu eða miðils/biðils hug-
takinu með miðlægum gagna-
grunni. Biðlarnir skiptast í tvo
flokka, vinnustöðvar sem er
vinnustaða flugumferðarstjórans
og inn/út skjái þar sem aðstoðar-
menn munu slá inn ýmsar upp-
lýsingar inn í kerfið. Miðlarnir
sjá um annars vegar gagnagrunn
og útreikninga og hins vegar um
samskipti við önnur kerfi (Gufu-
nes Radíó, Veðurstofan, að-
liggjandi flugstjórnarmiðstöðvar
o.s.frv.). Við gangsetningu eru
aðgerðir staðsettar á ákveðnum
vinnustöðvum eða miðtölvum,
síðan er sent út boð (e. Broadcast)
til að kalla á þessa þjónustu. Af
þeim sökum þarf ekki að halda
utan um hvaða hlutverk hvertölva
hefur heldur svarar sú sem veitir
þjónustuna. Ef viðkomandi tölva
er ekki virk af einhverjum or-
sökum flytur kerfið sjálfvirkt
þessa þjónustu yfir á aðrar tölvu,
en einnig er hægt að flytja hlut-
verk á milli tölva með ákveðnum
skipunum.
EXTERNAL COMMUNICATION LINES
X.25
Mynd 1. Skemcitísk uppbyggingFDPS sem sýnir samspil
virkahluta kerfisin ogþróunarlþjálfunar hlutaþess.
39 - Tölvumál