Vísir - 22.09.1962, Side 6
- Laugardagur 22. september 1962
6
V>SIR
HK I BHSL-
Ö Séð eftir Hagamelnum, þar sem unnið er að undirbúningi malbikunar.
Þær veria malbikinu
Það væri hægt að
halda að í aðsigi væri
meiriháttar skotgrafa-
hemaður vestur á Mel-
um. Allt svæðið um-
hverfis Melaskólann, fyr
ir ofan, neðan og fram-
an, er sundurgrafið
þessa dagana af vega-
vinnumönnum og verk-
færum þeirra.
Menn kippa sér ekki
upp við þess konar
sjón austur í nýbyggð
eða uppi í Hlíðum, þar
sem aldrei er heila götu
að sjá bróðurpart ársins,
þar sem aldrei er hægt
að þverfóta fyrir sívinn-
andi verkamönnum og
eilífðardrullu.
En þegar slíkt skeður vestur
á Melum, í því vegsamaða
hverfi, þá reka jafnvel strang-
heiðarlegir íhaldsmenn upp stór
augu, skelfdir yfir „nýjustu af-
glöpum borgarstjórnarmeirihlut-
ans“ og búast til varnar. -
Hér eru þó engin afglöp á ferð-
inni, lof og dýrð sé Guði fyrir
það — hér eru þvert á móti kosn
ingaloforðin í fullri framkvæmd,
allt samkvæmt áætlun.
Skotgrafagröfturinn nær frá
Nesvegi upp á Grenimel og jarð
raskið er slíkt, að ekki sést
með góðu móti milli húsa. Reglu
samir strætisvagnar þurfa jafn-
vel að leggja lykkju á leið sína
til að haida regluseminni uppi.
Þetta skapar aftur óþægindi fyr
ir farþegana, og þeir verða að
hlaupa hornanna á milli tilbúnir
að strætisvagnarnir stöðvist á
ólíklegustu stöðum.
Tíðindalaust er á vígstöðvun-
um á Grenimel 1 augnablikinu.
Þar hafa verið lagðar gangstétt-
ir og gatan búin undir malbikun.
í morgun lá Melurinn og beið
eftir biksvörtu malbikinu með
útbreiddan faðminn og við stóð
um hryggir og horfðum á. Það
er nefnilega fátt sorglegra f
borgarlffinu en sjá gamla og
virðulega fótboltavelli verða nú-
tímaþægindum — eða gatna-
gerðaráætlunum að bráð.
Á Furumelnum andspænis
barnaskólanum eru skotgrafirn-
ar tíu ef ekki fleiri. Þar grafa
þeir fyrir niðurföllum í svo stór
um stíl að það gæti ruglað
hvern meðalgáfaðan mann í því
hvað væri niðurfall og hvað
væri ekki niðurfall. Þarna voru
einir tíu menn við skurðgröftinn
og um leið og einn kannaði
vígstöðvarnar fræddi hann okk-
ur á „þetta væri allt saman graf
ið með vélum". Það var ekki ó-
sennilegt, þvf enga reku var að
sjá á þessum slóðum. Beggja
að -veði til að áætlanir borgar-
stjórnarmeirihlutans gætu stað-
izt!
Sunnan við skólann — eða er
það kannske vestan, standa him
inháir moldarhaugar í augsýn
þeirra sem ferðast um nágrenn-
ið. Fréttamaður Vísis hefur hins
vegar ekki haft tök á að kynna
sér hvað um sé að vera þar —
aðallega vegna samgönguerfið-
leika á Nesveginum.
Eftir þessa lýsingu svo og
myndunum sem með fylgja er
ljóst að það eru meiri en litlar
að bráð
vegna við hvert niðurfall voru
„búkkar" — sjálfsögð varúðar-
ráðstöfun og í fullu samræmi
við gatnagerðaráætlunina.
Norðanmegin við skólann, var
verið að malbika Hagamelinn og
við enda hans höfðu viðstaddir
reist sér búðir, vegavinnuskúra
undir áhöld og kaffi — væntan-
lega.
Það var gleðilegur kraftur í
vinnubrögðunum, rétt eins og
hver og einn legði heiður sinn
framkvæmdir á ferðinni vestur
þar. Hlíðarnar hafa þó ekki lát-
ið á sér standa frekar en fyrri
daginn, hvað verkefni snertir,
því í sumar hefur Langahlíðin
verið gerð að fórnarlambi mal
biksins og gatnagerðaráætlana,
og allar líkur eru til þess að því
verki Ijúki fyrir haustið.
Það er víst áreiðanlega rétt
sem Vísir sagði f fyrradag —
það er líf í framkvæmdum í
Reykjavíkurborg.
Vígstöðvamar á Furumelnum, „bukkamir“ og niðurföllin
aigieymingi.
Krossgótuverðlaunin
Fjöldi ráðninga barst og þegar dregið var úr réttum ráðningum
Hér birtist ráðning krossgátunnar, sem birtist í Vísi 1. sept. s. I.
kom upp nafn Ásdísar Mogensen, Kleppsvegi 52. Er hún beðin
um að vitja verðlaunanna 500 króna á ritstjórn Vísis á mánudag.
Um 18 þús. gestir
komu í Árbæjarsaf n
Árbæjarsafni verður lok
að á þessú hausti nú um
-helgina, að kveldi sunnu-
dags. Safnið var opnað 19.
júní og hafa gestir, sem
greitt hafa aðgangseyri
orðið um 12 þús. talsins,
en sé reiknað eins og í
fyrra með bömum í fylgd
með fullorðnum, sem
greiða ekki aðgangseyri,
verður heildartalan nálægt
18 þús., eða aukning um
70% frá í fyrra, en þá varð
tala gesta um 15 þús.
HIÐ SÖGUFRÆGA
DILLONSHÚS.
Á sumrinu hófst kaffisala f Dill
onshúsi hvern dag sem opið var,
og varð hún þegar í stað vinsæl.
í Dillonshúsi hefur verið komið
fyrir safnmunum, sem þar eiga
heima, í stofunum niðri og gamla
„píuballsalnum", en á loftinu eru
gamlar kistur klæddar glitofnum
ábreiðum 'undir skarsúð. Þar er
og minningarherbergi Jónasar Hall
grímssonar, sem bjó í húsinu vet-
urinn 1'841—42 sem leigjandi mad
dömu Siri Ottesens. Þar sem ekki
hefur náðst í húsgögn og aðeins
fáa muni frá skáldinu sjálfu verð-
ur leitazt við að búa herbergið
húsbúnaði og minningargripum
frá öðrum skáldum. Þar er þegar
kominn sófi Matthíasar Jochums-
sonar frá Odda, rúm Gríms Thom-
sens frá Bessastöðum, náttlampi
Jóns Trausta og skrifborð frá
Birni ritstjóra Jónssyni, sem var
I eigu Tómasar skálds Guðmunds-
sonar meðan hann rak Iögfræði-
skrifstofu í bænum. Hefur Tómas
í samráði við Helgafell tekið að
sér að safna prentuðum bókum
Jónasar og myndum af skáldinu
og hefur þegar nokkru af því ver-
ið komið fyrir í minningarherberg-
inu.
TÚNRÆKT OG
BISLAG.
Af framkvæmdum í sumar er
helzt að geta túnræktar og garð-
hleðslna, en lokið er við íbúðar-
hús safnvarðar á staðnum. Því
starfi gegnir Skúli Helgason.
í sambandi við veitingarnar í
Dillonshúsi hefur verið gerð út-
bygging við húsið, svokallað „bis-
Iag“, sem þar var áður, en rifið
vegna lagningar Túngötu á sínum
tfma. Þangað verður eldhúsið fært
og rýmkast þá um veitingarnar
inni í húsinu ,en í vor var lokið
við snyrtiherbergi í, skúr norðan
við húsið.
VÆRINGJASKÁLI.
Að undanförnu hefur verið unn-
ið að endurhleðslu torfveggja ut-
an um Væringjaskálann, sem verð-
ur færður sem næst skálahugmynd
síra Friðriks Friðrikssonar með
máleldi, öndvegi, tjölduðum þilj-
um og myndskreytingu ofan seta,
með litmyndum úr íslendingasög-
um, auk þess sem þar verður
minjasafn skáta í Reykjavík.
Þó að Árbæjarsafni verði lokað
nú eftir helgina, mun verða hægt
að sýna það þátttakendum á hóp-
ferðum, ef tilkynnt er fyrirfram
um komuna. Eldfi hluti -sjálfra
bæjarhúsanna verður þó ekki til
sýnis, þar sem tyrfa þarf húsin
að nýju hið bráðasta. Fyrst um
sinn ber að tilkynna hópferðir i
síma 18000.
Lárus Sigurbjömsson.