Vísir - 22.09.1962, Side 16

Vísir - 22.09.1962, Side 16
vism Laugardagur 32. september 1962 Bikarkeppnin í dag verður bikarkeppninni haldið áfram. Leika Týr og Fram B á Melavelli kl. 14.00. Er þetta leikur um sæti í aðalkeppninni, en þá koma lið úr 1. deild inn í keppn- ina. Strax eftir leikinn leika Valur og Þróttur £ Haustmóti 1. fl. 4 "■ —— i Blómasýn- ing Alaska Gróðrarstöðin Alaska opnaði í gær blómasýningu og er þetta £ annað slnn, sem slík sýning er haldin þar. Sú fyrri var hald in £ fyrra og hlaut mjög góðar undirtektir. Á sýningunni eru sýnd alls kyns pottablóm og eru þau meginuppistaða sýning- arinnar. Sýningin er mjög fjölbreytt og eru á henni um 1500 blóma- tegundir. Yfirleitt hneigist fólk meira að gtyenum plöntum en blómstrandi f seinni tfð, sem stafar meðal annars af breyt- ingum í húsagerð. Sýning þessi mun standa í tvær vikur og er hún opin til klukkan tiu á kvöldin. Á mynd- inni eru tvær stúlkur, sem vinna í Alaska, með blóm. Heita þær Elísabet Eirfksdóttir og Stnmdoði í þríðja sinn í ósinnntl Á flóðinu um hádegi í gær tókst að ná v.b. Pétri Ingjaldssyni á flot í Horna fjarðarósi — en þá hafði hann tekið niðri í þriðja sinn. Það var á mánudag að skipið tók fyrst niðri úti fyrir Horna- , fiarðarósi er vélin bilaði, þegar _,e,- Vr . ..... ' ') ý það var að leggja upp £ Englands- för. Þá kom lítill vélbátur 'til hjálp- ar og dró skipið af skerinu,, en þá rak það inn i ósinn og strand- aði þar öðru sinni. Gerðar voru ráðstafanir tii að fá lóðsinn frá Vestmannaeyjum til að ná skip inu á flot, en á miðvikudagsnótt — áður en lóðsinn kom — geröi vb. Ólafur Tryggvason tilraun tii björgunar. Veður var þá hagstætt, svo að unnt var að draga Pétur Framhald á bls. 5. Það býr meira í 20. öldinni en náttúran ein Þorvaldur Skúlason listmálari opnar málverkasýningu i Lista- mannaskálanum kl. 14 i dag. Á sýningunni eru 26 oliumyndir og guachmyndir, allar abstrakt og málaðar á síðustu þrem ár- um, en þá sýndi Þorvaldur hér síðast. Myndirnar á sýningunni hafa aldrei verið til sýnis áður, olíumálverkin erp öll máluð hér, en guachmyndirnar í París. Eng- in nöfn eru á myndunum. Þor- valdur sagði, að það stafaði af því, að hann hefði ekki getað fundið nein nöfn sem ekki væru þetta fulla þriggja ára vinnu, þó ósönn. Aðspurður kvað hann næturnar væru taidar líka, því listamaðurinn losnaði aldrei undan starfi sínu. Hann er sí- fellt rekinn áfram og hann má aldrei vera ánægður með verk sin. Takmarkí hans er eins og ljós, sem sífellt færist á undan manni. Þegar fréttamaður spurði hann að því, hvers vegna hann málaði abstraktmyndir, svaraði hann því til, að það væri vegna þess, að hann tryði á það form. Við erum vitanlega allir undir áhrifum umhverfisins, en það býr meira í 20. öldinni en náttúr an ein, sagði Þorvaldur að lok- um. Sýningin verður opin í hálf- an mánuð kl. 14—22 daglega. Umferðarslysum hefur ffölgað ískyggilega Slysum í umferð á götum Reykja víkur og nágrennis hefur fjölgað stórleea í ár frá bví sem verið hef- ur og telur umferðarlögreglan að þessi stórfellda slysaaukning sé orðin hið mesta áhyggjuefni. Vísir átti £ gær tal við Borgþór Þórhallsson starfsmann í umferð- ardeild rannsóknarlögreglunnar um þessi mál, og hann tjáði blað- inu að enda þótt hann hefði ekki handbærar tölur í þessu efni, væri þó vitað að umferðarslysum í Reykjavík hafi fjölgað svo stór- lega frá því t. d. i fyrra, að ekki væri fjarri lagi að áætla að hún hafi blátt áfram margfaldazt. Sem dæmi, sagði Borgþór urðu hvorki fleiri né færri en 26 umferðarslys I Reykjavík, eða allt að því eitt til jafnaðar á dag. Þar af varð eitt Frh. á 5. síðu. Umferðarkönnun sú sem efnt var til í síðustu viku tókst með meiri á- gætum en bjartsýnustu menn þorðu að vona. í fyrstu var allt útlit fyrir að könnunin hefði mis- heppnazt og birti Vísir frétt um það í vikunni hversu slæmar heimtur ^y". ' m , ■■ ■• • • < •--••••••••• ..... - ... ..... • . .■ . V*. i ' •• V' '■*■>" ..... _ i >' ’• væru á kortum þeim sem dreift hafði verið. En eftir að frétt þessi birtist var eins og menn rönkuðu við sér og streymdu kortin inn, með þeim ágætum að 74% allra kortanna komust til skila. Er af þessu ljóst, hversu þegn- skapur Reykvíkinga er með( miklum ágætum. Hitt er svo annað mál hvort öll þeirra séu rétt færð og komi að gagni við rannsóknirnar. Einar Pálsson form. umferðarnefndar Reykja- víkurborgar álítur þó að kort- in séu yfirleitt vel og vand- virknisiega útfyllt. Algengasti gallinn sé að menn hafi annað hvort gleymt eða ekki hirt um að útfylla þann dálk, sem sagði til um í hvaða erindagjörðum menn væru hverju sinni. Umferðarnefnd boðaði frétta menn á sinn fund í gærdag og var þá ætlunin að draga um verðlaunin, sem efnt var til i tilefni könnunarinnar. Af óvið- ráðanlegum ástæðum varð þó ekki úr því, en hins vegar blasti við fréttamönnum stafli sá, sem -ramhald á bls í> Á myndinni sést staflinn, sem draga átti verðlaunin úr. Týndi 5500 krónum Fyrir hádegið í gærmorgun tapaði kona 5.500 krónum 1 peningum hér í Reykjavík. Þegar konan varð þess vísari að hún hafði týnt þessum fjár- munum, leitaði hún á fund lög- reglunnar og bað hana um að- stoð. Hefur lögreglan beðið Vísi að koma þeim vinsamlegu skilabpðum til finnanda að hann geri henni aðvart um fundinn. Konan segir að peningarnir hafi verið í rauðu veski og hún telur líklegast að hún hafi týnt því á Skólavörðustígnum um ellefu leytið fyrir hádegi í gær. C ....—*

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.