Vísir - 22.09.1962, Blaðsíða 16
vism
Laugardagur 32. september 1962
Bikarkeppnin
í dag verður bikarkeppninni
haldið áfram. Leika Týr og Fram
B á Melavelli kl. 14.00. Er þetta
leikur um sæti í aðalkeppninni, en
þá koma lið úr 1. deild inn í keppn-
ina.
Strax eftir leikinn leika Valur
og Þróttur £ Haustmóti 1. fl.
4 "■ —— i
Blómasýn-
ing Alaska
Gróðrarstöðin Alaska opnaði í
gær blómasýningu og er þetta
£ annað slnn, sem slík sýning
er haldin þar. Sú fyrri var hald
in £ fyrra og hlaut mjög góðar
undirtektir. Á sýningunni eru
sýnd alls kyns pottablóm og
eru þau meginuppistaða sýning-
arinnar.
Sýningin er mjög fjölbreytt
og eru á henni um 1500 blóma-
tegundir. Yfirleitt hneigist fólk
meira að gtyenum plöntum en
blómstrandi f seinni tfð, sem
stafar meðal annars af breyt-
ingum í húsagerð.
Sýning þessi mun standa í
tvær vikur og er hún opin til
klukkan tiu á kvöldin. Á mynd-
inni eru tvær stúlkur, sem
vinna í Alaska, með blóm. Heita
þær Elísabet Eirfksdóttir og
Stnmdoði í þríðja
sinn í ósinnntl
Á flóðinu um hádegi í
gær tókst að ná v.b. Pétri
Ingjaldssyni á flot í Horna
fjarðarósi — en þá hafði
hann tekið niðri í þriðja
sinn.
Það var á mánudag að skipið
tók fyrst niðri úti fyrir Horna-
, fiarðarósi er vélin bilaði, þegar
_,e,- Vr . ..... ' ') ý
það var að leggja upp £ Englands-
för. Þá kom lítill vélbátur 'til hjálp-
ar og dró skipið af skerinu,, en
þá rak það inn i ósinn og strand-
aði þar öðru sinni. Gerðar voru
ráðstafanir tii að fá lóðsinn frá
Vestmannaeyjum til að ná skip
inu á flot, en á miðvikudagsnótt
— áður en lóðsinn kom — geröi
vb. Ólafur Tryggvason tilraun tii
björgunar. Veður var þá hagstætt,
svo að unnt var að draga Pétur
Framhald á bls. 5.
Það býr meira í 20. öldinni en náttúran ein
Þorvaldur Skúlason listmálari
opnar málverkasýningu i Lista-
mannaskálanum kl. 14 i dag. Á
sýningunni eru 26 oliumyndir
og guachmyndir, allar abstrakt
og málaðar á síðustu þrem ár-
um, en þá sýndi Þorvaldur hér
síðast. Myndirnar á sýningunni
hafa aldrei verið til sýnis áður,
olíumálverkin erp öll máluð hér,
en guachmyndirnar í París. Eng-
in nöfn eru á myndunum. Þor-
valdur sagði, að það stafaði af
því, að hann hefði ekki getað
fundið nein nöfn sem ekki væru
þetta fulla þriggja ára vinnu, þó
ósönn. Aðspurður kvað hann
næturnar væru taidar líka, því
listamaðurinn losnaði aldrei
undan starfi sínu. Hann er sí-
fellt rekinn áfram og hann má
aldrei vera ánægður með verk
sin. Takmarkí hans er eins og
ljós, sem sífellt færist á undan
manni. Þegar fréttamaður spurði
hann að því, hvers vegna hann
málaði abstraktmyndir, svaraði
hann því til, að það væri vegna
þess, að hann tryði á það form.
Við erum vitanlega allir undir
áhrifum umhverfisins, en það
býr meira í 20. öldinni en náttúr
an ein, sagði Þorvaldur að lok-
um. Sýningin verður opin í hálf-
an mánuð kl. 14—22 daglega.
Umferðarslysum hefur
ffölgað ískyggilega
Slysum í umferð á götum Reykja
víkur og nágrennis hefur fjölgað
stórleea í ár frá bví sem verið hef-
ur og telur umferðarlögreglan að
þessi stórfellda slysaaukning sé
orðin hið mesta áhyggjuefni.
Vísir átti £ gær tal við Borgþór
Þórhallsson starfsmann í umferð-
ardeild rannsóknarlögreglunnar
um þessi mál, og hann tjáði blað-
inu að enda þótt hann hefði ekki
handbærar tölur í þessu efni, væri
þó vitað að umferðarslysum í
Reykjavík hafi fjölgað svo stór-
lega frá því t. d. i fyrra, að ekki
væri fjarri lagi að áætla að hún
hafi blátt áfram margfaldazt. Sem
dæmi, sagði Borgþór urðu hvorki
fleiri né færri en 26 umferðarslys
I Reykjavík, eða allt að því eitt til
jafnaðar á dag. Þar af varð eitt
Frh. á 5. síðu.
Umferðarkönnun sú
sem efnt var til í síðustu
viku tókst með meiri á-
gætum en bjartsýnustu
menn þorðu að vona. í
fyrstu var allt útlit fyrir
að könnunin hefði mis-
heppnazt og birti Vísir
frétt um það í vikunni
hversu slæmar heimtur
^y". ' m , ■■ ■•
• • < •--••••••••• ..... - ... ..... • . .■ .
V*. i ' •• V' '■*■>" ..... _ i >' ’•
væru á kortum þeim
sem dreift hafði verið.
En eftir að frétt þessi birtist
var eins og menn rönkuðu við
sér og streymdu kortin inn,
með þeim ágætum að 74%
allra kortanna komust til skila.
Er af þessu ljóst, hversu þegn-
skapur Reykvíkinga er með(
miklum ágætum. Hitt er svo
annað mál hvort öll þeirra séu
rétt færð og komi að gagni við
rannsóknirnar. Einar Pálsson
form. umferðarnefndar Reykja-
víkurborgar álítur þó að kort-
in séu yfirleitt vel og vand-
virknisiega útfyllt. Algengasti
gallinn sé að menn hafi annað
hvort gleymt eða ekki hirt um
að útfylla þann dálk, sem sagði
til um í hvaða erindagjörðum
menn væru hverju sinni.
Umferðarnefnd boðaði frétta
menn á sinn fund í gærdag og
var þá ætlunin að draga um
verðlaunin, sem efnt var til i
tilefni könnunarinnar. Af óvið-
ráðanlegum ástæðum varð þó
ekki úr því, en hins vegar blasti
við fréttamönnum stafli sá, sem
-ramhald á bls í>
Á myndinni sést staflinn, sem draga átti verðlaunin úr.
Týndi 5500
krónum
Fyrir hádegið í gærmorgun
tapaði kona 5.500 krónum 1
peningum hér í Reykjavík.
Þegar konan varð þess vísari
að hún hafði týnt þessum fjár-
munum, leitaði hún á fund lög-
reglunnar og bað hana um að-
stoð. Hefur lögreglan beðið
Vísi að koma þeim vinsamlegu
skilabpðum til finnanda að
hann geri henni aðvart um
fundinn.
Konan segir að peningarnir
hafi verið í rauðu veski og hún
telur líklegast að hún hafi týnt
því á Skólavörðustígnum um
ellefu leytið fyrir hádegi í gær.
C ....—*