Vísir


Vísir - 24.09.1962, Qupperneq 2

Vísir - 24.09.1962, Qupperneq 2
VISIR •Mánudagur 24. september 1962. Fótt um iþróttir í ellefu yindstigum Það gerðist fátt á íþróttasviðinu um helgina, einkum þó í gær, þegar veðurhæðin komst mest í 57 hnúta eða 11 vindstig. Samt fór fram leikur Keflvíkinga og Breiðabliks eins og sjá má annars staðar hér á síðunni, en ( varla er forsvaranlegt að etja mönnum út í keppni í slíku veðri. Þrítugasti leikur 1. deildar fór ekki fram, enda hamlaði veðrið gegn því að Akurnes- ingar kæmust til Reykjavíkur, eins og sagt er frá sömuleiðis á þessari síðu. Er vart hægt annað en fordæma KRR og mótanefnd fyrir að fresta ekki leikj- um í veðri sem þessu. Flest vetrarveður eru skárri veðrinu í gær. Talið er sennilegt að Akranes og KR leiki á laugardaginn kemur en endanlega verð- ur það ákveðið á KRR-fundi í dag. Knattspyrnuráðið er nú í nokkrum vanda, mörgum leikjum ólokið, en sumarið búið. \ * Akranesliðið ienti út af veginum í óveðrínu Akurnesingar Ientu í ævintýra- legustu ferS sinni til Reykjavíkur i gærdag, en ferSir knattspymu- manna ÍA eru orðnar nokkuð margar í gegnum árin. Geysihvasst var og er hin stóra og glæsilega langferðabifreið AFTUR í STARFIÐ Robbie Brightweli, sem vann | 400 metrana á EM er kominn. aftur heim og tekinn til starfa á ný sem leikfimiskennari við I drengjaskólann í Kingston við I Thames-ána. Hann hleypur / þarna með drengjahóp og auð-' vitað í áttina að íþróttavelli' skólans. Drengimir virðast ekki | eiga gott með að fylgja meist-1 aranum á hlaupunum, en það er allt í lagi, einmitt þannig var ' I það á EM, andstæðingamir sáu I aðallega hælana á kennara | drengjanna, rétt eins og þeir. Þórðar Þ. -Þórðarsonar var komin að Kjalardal kom einkabifreið ak- andi á móti, sem hvorki hægði á sér né vék til hliðar eins og regl- ur gera ráð fyrir á þjóðvegunum. Bíll Akurnesinga varð hins vegar að fara eins langt út á kantinn og auðið var en þá lét kanturinn, meters hár, undan og litlu sem engu munaði að þarna yrði slys á mönnum, því bifreiðin lenti á all- stórum steini og stöðvaðist þar en hefði þetta átt sér stað hálfri bíl- lengd lengra hefði ekkert verið til að taka fallið af bifreiðinni og hún oltið og ekki vlst nema slys hefði orðið. Einkabifreiðin hélt ferð sinni áfram eins og ekkert hefði I skorizt. Akurnesingarnir urðu að bíða eftir kranabil frá Akranesi, en kall- að var eftir honum í talstöð í bíln- um og kom hann eftri rúman klukkutíma og höfðu liðsmenn orðið að standa undir bílnum til að hann færi ekki á hliðina, enda hékk hann þarna á bláþræði. Áfram vár haldið á bílnum enda var hann furðulítið skemmdur, en í Hvalstöðinni var hringt til Reykjavikur og spurt hvort leik yrði frestað þar eð útséð væri að liðið kæmist. Áfram var haldið á- leiðis til Reykjavíkur, en fyrst í Hvalfjarðarbotni var tilkynnt gegnum talstöðina að leiknum hefði verið frestað. Myndin sýnir keflvíska knattspyrnumenn þar sem þeir eru aö skoða sig um á helzta sögustað Færeyinga, Kirkjubæ. Myndin átti aS birtast með grein um ferð Keflvíkinga til Færeyja fyrir skemmstu, en féll úr þá. Lengst til vinstri er Ólafur Marteinsson í miðjunni er færeyski markvörðurinn Ólafur Olsen og Iengst til hægri Geirmundur Kristjánsson. Myndina tók Magnús Haraldsson f Maríukirkju Bikarkeppnin: Leikið með sokka á höndum og glasaþurrku í stað veifu Breiðahlik og Keflavík | anurn á Framvellinum og léku í gærdag í veðurofs- var það furðuleg sjón að sjá leikmennina kapp- | klædda með slæður bundn jar yfir höfuðið og sokka |á höndunum til að halda |hita á sér, línuverði með ! glasaþurrkur o. s. frv. Kef la vík vann leikinn örugglega með 6:1. Upphaflega átti leikur þessi að fara fram á Melavellinum, en hann reyndist ekki fær til að leika á vegna polla. Framvöllurinn var skárri enda nokkru meira skjól þar e.. á Melavelli. Það liðu 35 mínútur áður en fyrsta markið kom. Það var Högni Gunnlaugsson sem skoraði markið sem var það eina sem var virkilega hreint mark. Högni skoraði annað mark fyrir leikhlé og í hálfleik var staðan 2:0. I seinni hálfleik kom 3:0 frá Breiðabliksmönnum sjálfum, 4:0 frá Hólmbert og 5:0 frá Einari en 6. skoraði Högni. Síðasta markið skoruðu Breiðabliksmenn er um j 15 mínútur voru til Ieiksloka. Ekki er hægt að hæla mörgum 1 fyrir Ieik sinn, en Hólmbert og Iiögni voru þó allgóðir, miðað við aðstæður, jafnvel mjög góðir. Hlns vegar er það vítavert að ekki skuli vera aflýst Ieikjum þegar veður er eins og i gær. 11 vind- stig eru alls ekki til þess að leika knattspymu né nokkurn leik ann- an. Dregið í 3. umferð Dregið hefur verið í 3. umferð bikarkeppninnar og verða eftirtaldir leikir leiknir. Akranes-Akureyri á Akranesi Fram — Valur í Reykjavík KR — Isafjörður á ísafirði Týr — Keflavík óákveðið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.