Tölvumál - 01.06.1995, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit
5 Frá formanni
Haukur Oddsson
6 Hvað er ISDN?
Valdimar Óskarsson
10 ATM-AlltTil
Margmiðlunar
Magnús Hauksson
14 Samnet á íslandi 1995
Einar H. Reynis
16 Frá orðanefnd
Sigrún Helgadóttir
18 Hugbúnaðarverkfræði
Sæmundur Sæmundsson
24 Ný útgáfa ÍST 32
Daði Örn Jónsson
27 ÍST 32 frá sjónarhóli SÍH
Eggert Claessen
30 íslenska hraðbrautin
Ritstjórnarpistill
Það vill svo til að ísland er eyja fjarri öðrum löndum.
Að auki eru fáir sem hér búa. En við erum fljót að
tileinka okkur nýjungar, ekki hvað síst tækninýjungar.
Meðal annars eru miklar framfarir í fjarskiptum sem
opna nýja möguleika. Um leið minnkar heimurinn í
óeiginlegum skilningi.
Einfaldara og ódýrara er nú en áður að hafa samskipti
um tölvunet heimsálfa á milli. Flutningsgetan er víðast
að aukast mikið. Og eins og vænta mátti er áhuginn
mikill á því sem nú er hægt að gera til dæmis að
flækjast um Vefinn. En þar sem við erum fá og landið
strjálbýlt þá þýðir það að færri eru til að bera
kostnaðinn sem því fylgir að setja upp nauðsynlegt
fjarskiptakerfi. Að auki eru kerfin sem sett eru upp
hér minni en víða erlendis og því mögulega
óhagkvæmari í innkaupum og rekstri en þar. Þráttfyrir
þetta getum við tekið þátt í þessari þróun. Ein af helstu
ástæðum þess að það er hægt eru einmitt þessar
framfarir í tækni sem orðið hafa að undanförnu og
hafa lækkað allan tilkostnað. í þessu tölublaði er
meðal annars, fjallað um nýjungar á þessu sviði.
Opnara umhverfi kallar jafnframt á að vissar leikreglur
verði settar og þeim fylgt eftir. Um þessar mundir
kemur út ný útgáfa af ÍST32, almennum skilmálum
um útboð og verksamninga vegna gagnavinnslukerfa.
Hann verður einnig til umfjöllunar hér.
Magnús Hauksson
V_________________________________________________________V
TÖLVUMÁL
Tímarit Skýrslutæknifélag íslands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða í
heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6 sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Auglýsingar:
Átak hf., S. 568 2768
Umbrot: Svanildur Jóhannesdóttir
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Ritstjóri og ábm.:
Magnús Hauksson
Aðrir ritnefndarmenn:
Bergþór Skúlason
Gísli R. Ragnarsson
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi fslands.
Tölvumál - 3