Tölvumál - 01.06.1995, Side 14
Júní1995
Samnet á Islandi 1995
Grein þessi er byggð á erindi sem flutt var á ráðstefm SI21. mars 1995
Eftir Einar H. Reynis
ISDN, eða Samnetið eins og
það hefur verið nefnt á íslensku,
verður tekið í notkun á íslandi
seinna á þessu ári, 1995. Geysilega
mikið hefur verið rætt og ritað um
Samnet á undanfomum árum og af
nógu að taka í því sambandi. I
þessari grein verður þó látið nægja
að minnast á helstu tæknileg atriði
og taka dæmi um notendabúnað til
tenginga við Samnetið.
I upphafi staðlasafnsins yfir
The Integrated Services Digital
Network; ISDN, er skilgreining
sem er á þessa leið í lauslegri þýð-
ingu: „Netkerfi sem tengir stafrænt
enda á milli og býður upp á yfir-
gripsmikla fjarskiptaþjónustu
hvort sem er fyrir tal- eða annan
notendabúnað“ og einnig „not-
endur hafa aðgang að þessari þjón-
ustu um staðlað, Ijölnota tengi“.
Skammstöfunin ISDN kemur fyrst
fyrir í skjali, sem var tillaga frá
Japan, og það er dagsett 28. nóv-
ember 1972. Litið er á dagsetn-
inguna sem fæðingardag Sam-
netsins. Mikið hefur gerst síðan þá
og nú er svo komið að Samnet eru
að komast í víðtæka notkun.
Samnetinu má skipta í tvær
kvíslir. Annarsvegar hið eiginlega
Samnet, stundum kallað „narrow-
band“ ISDN og síðan B-ISDN eða
breiðbands Samnet, en þar undir
eru kerfi eins og ATM.
Undirbúningur
Áður en hægt er að bjóða upp
á stafræna þjónustu Samnetsins
verður að breyta símakerfinu úr
eldri hliðrænni (analog) tækni í
stafræna (digital). Núna er búið að
endurnýja flestar símstöðvar í
opinbera kerfinu og þeim seinustu
sem eftir eru verður skipt út á
árinu. Allar opinberar símstöðvar
á landinu verða stafrænar í sept-
ember lok. Einnig hefur langlínu-
kerfið verið endurnýjað og ljósleið-
arar tekið við eldri fiutningsað-
ferðum og sambönd orðin stafræn.
Ljósleiðari hefur verið lagður
hringinn um landið og tengdur til
útlanda. Síðast en ekki síst var
tekið mikilvægt skref sem er skil-
yrði til að unnt sé að taka í notkun
Samnet en það er uppsetning
merkjakerfis númer 7, eða Signal
System #7, sem flytur upplýsingar
er varðar símaumferð á milli sím-
stöðva og á milli landa. Án SS#7
væru Samnetsstöðvar einangraðar
eyjur en ekki samfellt net.
Þrátt fyrir þessa byltingu á inn-
viðum símakerfisins hefur notenda-
búnaður ekki breyst að ráði.
Heimtaugar, til dæmis í minni
fyrirtæki og á heimili, eru ennþá
hliðrænar með einíoldum boðskipt-
um. Sími til dæmis getur annað-
hvort hringt eða ekki þegar sím-
stöðin sendir boð til notanda og
tónboð eða skífúval eru einu fyrir-
mælin sem notandabúnaður getur
gefið símstöð. Lokaskrefið sem
þarf að stíga í breytingu úr blönd-
uðu hliðrænu/stafrænu kerfi í
100% stafrænt kerfi er útskipting
notendabúnaðar. Slíkt gerist með
Samnets tengingu. Samnet er hluti
áratuga langrar þróunar en geysi-
lega mikilvægt skref sem færir
símatækni í mun fullkomnara horf
því allar upplýsingar eru í formi
14 - Tölvumál