Tölvumál - 01.06.1995, Side 19
Júní1995
Hugbúnaðarverkfræði
- ekki bara fyrir þá stóru -
Grein þessi er byggö á erindi sem flutt var á ráðstefnu SI11. maí 1995
Eftir Sæmund Sæmundsson
Við þekkjum vafalaust öll þá
tilfinningu þegar við lesum erlent
efni um hugbúnaðarþróun og
tölvumál almennt að þurfa allt of
oft að afskrifa hugmyndir og
lausnir, einfaldlega vegna þess að
þær miða við stærðir sem við
getum einungis látið okkur dreyma
um. Fyrirtækin eru mikið stærri en
okkar, starfsmenn margfalt ijöl-
mennari og ijármagn er oft erfitt
að setja í samhengi við okkar litla
veruleika. Hver kannast ekki við
að hafa lesið grein eða bók þar sem
varpað er fram hugmyndum sem
maður grípur á lofti, því þarna er
komin lausnin að einu af stóru
vandamálunum. Því lengra sem
líður á lesturinn því spenntari
verður maður og frábærar hug-
myndirnar bókstaflega hrannast
upp í kollinum. I síðasta kaflanum
er svo bent á það þurfi „ekki nema
lítil verkefni“ með 100-200 kerfís-
fræðinga og forritara til að réttlæta
framkvæmd þessara hugmynda.
Lestrinum lýkur og maður gerir sér
grein fyrir að það sé ekki einu sinni
þess vert að tala um þetta við hina
tvo starfsmenn íyrirtækisins. Sem
betur fer virðist þróunin stefna
meira okkur í hag eftir því sem
einkatölvur og net verða sífellt
mikilvægari hluti tölvuflórunnar.
Það á þó allt of sjaldan við um
þann hluta hugbúnaðarfræðanna
sem við tölum yfirleitt um sem
hugbúnaðarverkfræði.
En hvað er hugbúnaðarverk-
fræði (e.software engineering)?
Það sem hugtakið spannar tekur
reyndar sífelldum breytingum eins
og annað í oklcar fagi, en í stuttu
máli má segja að hugbúnaðarverk-
fræði nái yfir allt sem lítur að
stjórnun og endurbótum á hugbún-
aðargerð. Sérstaklega hafa sjónir
manna þó beinst að þeim þáttum
er lúta að skráningu gagna um hug-
búnaðarferlið og úrvinnslu þeirra
með það að markmiði að finna
hvar pottur er brotinn og hvernig
lagfæra má það sem miður fer.
Þegar ég var í tölvunarfræði-
námi í Texas gafst mér kostur á að
vinna rannsóknarverkefni, ásamt
félaga mínum, undir handleiðslu
prófessors Laurie Werth, en hún
sérhæfir sig í hugbúnaðar-
verkfræði. Verkefnið var að kanna
hvað væri raunhæft fyrir
lítil hugbúnaðarhús, með
5-30 starfsmenn, að nota
úrþessum fræðum. Byggi
ég þennan pisitl að stórum
hluta á niðurstöðum þessa
verkefnis.
Forsenda þess að
hugbúnaðargerð taki
framförum er skipulögð
vinnubrögð. Mér segir svo
hugur að hjá allt of fáum
hugbúnaðarhúsum og
tölvudeildum séu viðhöfð
öguð vinnubrögð í
greiningu, hönnun og
forritun. Þar á ég við
innlend jafnt sem erlend
fyrirtæki. í reynd þrífst
afar vel sú aðferð að hella
sér fyrirvaralaust út í
forritun með krosslagða
Einfaldur gagnagrunnur
Mynd 1.
Tölvumál -19