Tölvumál - 01.06.1995, Síða 24
Júní1995
Ný útgáfa IST 32
Grein þessi er byggð á erindi sem flutt var á hádegisfundi SÍ 6. apríl 1995
Eftir Daða Örn Jónsson
Ný útgáfa ÍST 32
Ný útgáfa af staðlinum ÍST 32
kemur út á næstunni. Staðallinn
sem ber heitið „AJmennir skilmálar
um útboð og verksamninga vegna
gagnavinnslukerfa“ er mjög mikil-
vægur fyrir þá sem starfa að tölvu-
málum, bæði kaupendur vél- og
hugbúnaðar og ekki síður verk-
taka.
Forstaðallinn
IST 32 var gefinn út sem for-
staðall 1. janúar 1991 ogvaríyrsti
forstaðallinn sem Staðlaráð íslands
gaf út. Upphaflegur gildistími hans
var til ársloka 1992, en hann var
síðan framlengdur um tvö ár.
Forstaðallinn var unninn af
þriggja manna nefnd, sem skipuð
var þeim Daða Erni Jónssyni
(Félag íslenskra iðnrekenda),
Stefáni Ingólfssyni (RUT nefndin)
og Þorvarði Kára Olafssyni
(Staðlaráð Islands). Forstaðallinn
var brautryðjendaverk og engar
beinar fyrirmyndir voru til að
styðjast við, hvorki innlendar né
erlendar. Þó íjallaði staðallinn ÍST
30 um svipað efni, en að vísu fyrir
verklegar framkvæmdir. Töluvert
var stuðst við ÍST 30 við samningu
forstaðalsins, en eins og gefur að
skilja er margt ólíkt í verklegum
framkvæmdum annars vegar og
tölvu- og hugbúnaðarmálum hins
vegar. Þannig þarf hugbúnaðarfólk
t.d. litlar áhyggjur að hafa af
röskun á gangstéttum, en um það
atriði er Qallað í ÍST 30. Nefndin
hafði hins vegar gaman af að velta
því fyrir sér hvort ástæða væri til
að taka ákvæði um varðveislu
fomminja úr ÍST 30 yfír í ÍST 32!
Voru dregin fram ýmis dæmi um
kerfí sem vom vel við aldur af því
tilefni.
Forstaðallinn ÍST 32 var mikið
notaður þau 4 ár sem hann gilti og
hefur haft umtalsverð áhrif á það
hvernig staðið er að útboðum og
verksamningum um gagnavinnslu-
kerfí. Á sama tíma varð veruleg
breyting á viðhorfum til ýmissa
mála sem tengjast náið efni stað-
alsins. Sérstaklega má þar nefna
vaxandi áherslu á gæði og gæða-
tryggingu í samskiptum verktaka
og verkkaupa. Með aðild að Evr-
ópska efnahagssvæðinu gekkst
Island einnig undir skuldbindingar
um setningu reglna um opinber
innkaup. Árið 1993 vom síðan sett
lög um ífamkvæmd útboða og jaíh-
framt hefur verið mótuð útboðs-
stefna ríkisins. Þá hefur tækni-
þróunin einnig verið ör á þessu
tímabili. Það var því orðið tíma-
bært að endurskoða ÍST 32 með
tilliti til breyttra aðstæðna.
Endurskoðun
staðalsins
Vorið 1994 var ákveðið að setja
á fót tækninefnd á vegum FUT
(Fagráð í upplýsingatækni) um
endurskoðun ÍST 32. Nefndinni
var falið að samræma ákvæði
forstaðalsins breyttum aðstæðum
og gera hann jafnframt að full-
gildum staðli. Fyrsti fundur nefnd-
arinnar var haldinn 30. maí 1994,
en alls hélt nefndin 20 fundi.
Nefndina skipuðu:
Ágúst Kr. Björnsson, fulltrúi
Ríkiskaupa,
Daði Öm Jónsson (formaður og
ritstjóri staðalsins), Verk- og
kerfisfræðistofan hf.,
Eggert Claessen, fulltrúi Sam-
taka íslenskra hugbúnaðarfyrir-
tækja,
Halldór Kristjánsson (tengi-
liður nefndarinnar við FUT), full-
trúi Skýrslutæknifélags íslands,
Stefán Ingólfsson, Eignamatið
sf.,
Sverrir Ólafsson, Nýherji hf.,
Þorsteinn Garðarsson, fulltrúi
RUT nefndarinnar,
Ármann Ingason (ritari nefnd-
arinnar), Staðlaráði íslands.
Áherslur við
endurskoðunina
Megin áhersla var lögð á það í
störfum nefndarinnar að læra af
reynslunni af forstaðlinum og laga
hann jafnframt að þeim breyttu
aðstæðum sem að framan var lýst.
Þrátt fyrir að nefndarmenn væru
fulltrúar ólíkra og oft andstæðra
aðila var samstarfíð í nefndinni
afar gott og árangurinn af endur-
skoðuninni því betri en ella hefði
orðið. Ég mun ekki fjalla hér um
þær efnisbreytingar sem urðu á
staðlinum, enda er það gert á
öðrum stað í blaðinu.
24 -Tölvumál