Vísir - 02.10.1962, Blaðsíða 11

Vísir - 02.10.1962, Blaðsíða 11
V í SIR . Þriðjudagur 2. október 1962. Slysavarðstofan í Heilsuverndar- stöðinni er opin allan sólarhring- inn. — Næturlæknir kl. 18—8, sfmi 15030. Neyðarvaktin, sími 11510, hvern virkan dag ,nema laugardaga kl. 13—17. Næturvarsla vikunnar 29 sept. til 6. október er í Laugavegs- apóteki. Holtsapótek og Garðsapótek eru opin virka daga kl. 9—7, laugar- daga kl. 9 — 4, helgidaga kl. 1-4. Apótek Áusturbæjar er opið virka daga kl. 9-7, laugardaga kl. 9-4 Gullkorn Verið heilagir, því ég er heilagur. Og svo framarlega sem þér ákallið þann sem Föður, er dæmir án manngreinarálits eftir verkum hvers eins, þá framgangið í ótta yðar útlegðartíma. Því að þér vitið að þér eruð ekki leystir með for- gengilegum hlutum, silfri eða gulli, frá fánýtri hegðun yðar, er þér höfðuð að erfðum tekið frá feðr- um yðar, heldur með dýrmætu blóði Krists, eins og lýtalauss lambs. (Endurlausnarverk Krists) 1 Pét 1. 16-20. Söfnin Árbæjarsafn lokað nema fyrir hópferðir tilkynn'... áður í sfma 18000. SKIPIN Hafskip hf. Laxá er á Akranesi Rangá er á Siglufirði. Tekiö á móti tilkynningum i bæjarfréttir i sima 11660 Upplýsingnr Nýlega er komið út þykkt hefti af tímariti Framkvæmdabankans: Úr þjóðarbúskapnum. Að þessu sinni er fjallað aðallega um ýmsa þætti þjóðarframleiðslunnar f tíma ritinu. Þeir Torfi Ásgeirsson og Bjarni Bragi Jónsson rita grein í heftið, sem nefnist Þjóðarfram- ! leiðsla, verðmætaráðstöfun og þjóð artekjur 1945—1960. Erika Anna Friðriksdóttir semur grein um neyzlu einstaklinga á vörum og þjónustu árin 1957—1960. Bjarni B. Jónsson og fleiri rita greinina Fjármunamyndunin 1945 — 1960. Þá er og í heftinu grein um byggingar á íslandi fullgerðar árin 1954— 1961, og um ríkisbúskapinn 1955 —1960. Greinar þessar eru hinar fróðlegustu og fylgja þeim margar töflur. Má segja að ritið sé ómiss- andi hverjum þeim manni, sem fylgjast vill með fjármála- og efna- hagslífi landsins. Sýnir myndir Fyrir helgi opnaði Bragi Ásgeirs- son sýningu í Snorrasal ag Laugav. 18. Á sýningunni eru eingöngu graflistarmyndir, sem unnar hafa verið á síðastliðnum 10 árum, tré- j ristur, sáldþrykk, litografíur, radí- eringar, agvatint og teikningar. Samtals eru verkin á sýningunni um 50 talsins og öll til sölu. Sýn- ingin verður opin kl. 14 — 22 um tíu daga skeið. Fundur Frá Styrktarfélagi vangefinna. Konur í Styrktarfélagi vangefinna halda fund í Tjarnargötu 26 fimmtudaginn 4. okt. kl. 8,30. — Fundarefni: Ýmis félagsmál. Frú Sigríður Thorlacius segir frá Banda ríkjaför og sýnir skuggamyndir. Ýmislegt Áheit á Strandarkirkju kr. 200,- merkt A.M. Hann Casper er alveg hræðilega nískur — í staðin fyrir að fara með mig til hinna sólríku suður- landa keýpti hann lítið glas af ascorbinsýrutöflum handa mér. Gengið 100 Dar.skd kr 620,88 022,48 100 Norskar kr. 600,76 602,30 100 Sænskar kr. 833,20 837,35 100 Finnsk mörk 13.37 13.40 100 Franskir fr 376,40 378.64 100 Belgiskir fr 86,28 56,50 100 Gyllini 1192,43 1195,49 100 Svisrneskir fr. 993,12 995,67 00 Fékkneskar kr. 596,4C 598,00 1000 V-þýzk mörk 1075,34 1078,10 S 1 Sterl.pund 120,38 120,68 1 Jan rfkjad 42,95 43,06 1 Kanadadollar 39,85 39,96 1000 Lfrur 6p,20 69,38 Stjörnuspú morgundugsins Hrúturinn, 21. marz til 21. maí: Þú mátt reikna með óvæntum erfiðleikum á vinnustað eða ó- sætt. Þú ættir ekki að vera með miklar heimspekilegar vangavelt- ur við vinnufélagana, þú gætir farið flatt á þvf. Nautið, 22. apríl, til 21. mai: Síðari hluti dagsins virðist geta orðið þér nokkuð dýr, sérstak- lega ef þú létir eftir öðrum með að fara út að skemmta þér. Heima væri bezt að þessu sinni. Tvíburamir, 22. maí til 23. júní: Borið gæti á talsverðri togstreitu milli fjölskyldunar annars vegar og atvinnu þinnar hins vegar þar eð þín virðist vera full þörf á báðum stöðunum. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Þó að þú hafir tilhneigingu til að segja vinnufélögum þínar frétt ir og skoðanir þínar á málunum þá ætturðu að láta það kyrrt liggja í dag, hentugra síðar. Hjónovígslur Um síðastliðna helgi voru gefin saman i hjónaband af séra Áre- Iíusi Níelssyni eftirtalin brúðhjón: Ungfrú Jónína Guðrún Árna- dóttir og Jóhann Löve járnsmiður. Heimili þeirra er að Langagerði 76. Ungfrú Ingibjörg Þ. Hinriksdóttir frá Helgafelli Helgafellssveit og Páll Gestsson Þingholtsstræti 27. Ungfrú Ragnheiður Garðarsdóttir og Arnar Ingóifsson skrifstofumað ur Hátúni 8. Ungfrú Rannveig Jóna Valmundsdóttir og Sigurður Þ. Jónsson vélvirki. Heimili þeirra er að Dyngjuvegi 9. S.l. laugardag voru gefin saman í hjónaband í Laugarneskirkju af séra Garðari Svavarssyni ungfrú Anna Sigríður Helgadóttir Hraunteigi 5 og Hall- dór Hjaltested Eikjuvogi 22. Heim- ili ungu hjónanna er að Framnes- vegi 29. S.l. laugardag voru gefin saman í Laugarneskirkju af sérai Garðari Svavarssyni ungfrú Regína Gunnarsdóttir Ránargötu 9 og Halldór Jónsson sjómaður Klepps- vegi 20. Heimili ungu hjónanna verður að Kleppsvegi 20. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst: Ef til vill finnst þér liggja talsverð freisting fyrir þér í kvöld með að fara út og skemmta þér. Af- stöðurnar benda til þess að þú ættir að velja þér eitthvað ódýrt t.d. kvikmyndahús Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Það gæti orðið nokkuð storma- samt á heimilinu í dag og þú mátt reikna með að verða að leika hlutverk sáttasemjarans, milli hinna striðandi aðila. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Kvöld inu væri bezt varið við lestur einhverrar skemmtilegrar ferða- bókar eða við eitthvað sem að bókmenntum eða uppfræðslu Iýtur. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Fjármálin geta orðið undir nokk- urri spennu f dag sakir þess að vissir aðilar gera kröfur á ósann- gjarnt framlag fjár af þinni hendi Láttu þá borga sitt. Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Þrátt fyrir að þér finnist fólk líta upp til þín í dag þá eru ýmsar blikur á lofti og storm ur gæti skollið á ef þú reynir ekki að siglá, sem liðugast á milli skers og lands. Steingeltinn, 22. des. til 20. jan.: Þú gætir orðið fyrir barðinu á aðgerðum leyndra óvina í dag og verið getur að þú þurfir að halda vel á spöðunum til að réttlætið fái séð dagsins ljós. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Seinni hluti dagsins gæti orðið viðburðarríkur, sérstaklega ef’ þú ferð eitthvað út til að sinna fé- lagsstörfum, vinum og kunningj- um. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Heiður þinn getur verið í tals- verðri hættu í dag og þú þarft ef til vill að vera nokkurs konar sáttasemjari milli aðila, sem ósamkomulag ríkir milli. Utvorpið Þriðjudagur 2. október. KI. 18.30 Harmonikulög. 20.00 Tónleikar: Þýzkir listamenn syngja og leika þjóðlög. 20.15 Erindi: Kal- atlitnúak (Björn Þorsteinsson sagn- fræðingur). 20.45 „Minnisvarði um tónskáldið Couperin“, hljómsveit- arverk eftir Ravel. 21.00 Kaffi og kaffikantata: Dr. Hallgrímur Helga- son spjallar um vinsælan drykk og gamansama tónsmíð eftir Bach, er flutt verður í heild. 21.45 íþrótt- ir (Sigurður Sigurðsson). — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lög unga fólksins (Reynir Axelsson). 23.00 Dagskrárlok. Miðvikudagur 3. október. Fastir liðir eins og venjulega 20.00 Varnaðarorð: Friðþjófur Hraundal eftirlitsmaður talar um hættu af rafmagni utanhúss. 20.05 1 Harmonikulög. 20.20 Erindi: „Sjúk- ur var ég, og þér vitjuðuð mín“ (Jónas Þórbergsson fyrrum útvarps stjóri). 20.45 Tónleikar. 21.05 „1 útlegð", brot úr sjálfsævisögu danska rithöfundarins Hans Kirk. 21.40 Islenzk tónlist: Lög eftir Jón Leifs. 22.10 Kvöldsagan: „I sveita þíns andlits" eftir Moniku Dickens VII. (Bríet Héðinsdóttir). 22.30 Næturhljómleikar. 23.25 Dagskrár- lok. i P K I K rt 3 „Þú þarft að hjálpa mér að komast að ástæðunni fyrir þess- ari undarlegu herferð gegn Inace Marsh“. „Hvers vegna er það svo alvarlegt herra?" „Tilgangurinn virðist vera að hrseða hana frá fjölleikahúsinu, en ég ætla ekki að láta það takast...“. „Þetta verður góð prófraun á sérhvern, sem að þessu stendur“. „Min verður ánægjan að vernda konuna.“ Copyright P. I. B. Box 6 Copenhogon

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.