Tölvumál


Tölvumál - 01.11.1995, Blaðsíða 31

Tölvumál - 01.11.1995, Blaðsíða 31
Nóvember 1995 Stjórnsýsluhugbúnaður er útflutningsvara Eftir Jón Þór Þórhallsson íslenskt upplýsinga- samfélag Upplýsingasamfélagið á Islandi stendur samskonar samfélögum í heiminum síst að baki. Almenn notkun upplýsingatækni, sem er einkenni upplýsingasamfélagsins, er mjög útbreidd á íslandi. Má heita að flestir þættir íslensks sam- félags hafi nú verið tölvuvæddir. Opinber stjórnsýsla á Islandi tók snemma að nota upplýsinga- tækni landsmönnum til hagræðis og þæginda. íslensk stjórnsýsla er skilvirk og hefur upplýsingatæknin átt þar stóran hlut að máli. Island er fámennt land. Þó eru gerðar sömu kröfur til opinberrar stjóm- sýslu hér á landi og til opinberrar stjórnsýslu í miklu íjölmennari löndum. Það þarf að halda skrár um landsmenn og eignir þeirra, t.d. fasteignir, bíla og skip. Ennfremur þarf að leggja á og innheimta skatta, greiða sjúklingum bætur og öldruðum lífeyri, svo fá dæmi séu nefnd. Greiðslur og tekjur hins opinbera þarf að færa til bókar, svo og lán. Allt sem þarf til að gera þetta og gera það vel er fyrir hendi á Islandi í dag og virkar vel, svo vel og á svo skilvirkan hátt að erlendir gestir sem hingað koma fá ekki orða bundist. Hér er um útflutningsvöru að ræða. Markaðurinn er mjög stór Markaðurinn er meðal annars öll lönd þar sem unnið er að því að koma á fót nútíma stjómsýslu að vestrænni fyrirmynd. Fyrst koma upp í hugann öll lönd sem áður mynduðu Ráðstjórnarríkin, en þau eru samt miklu fleiri. Má þar nefna lönd eins og Víetnam og Kína. Fyrrverandi Ráðstjórnarlýð- veldin em vel á þriðja hundrað, allt frá Litháen í vestri til Kamtsjatka í austri. Þegar Ráðstjórnarríkin liðuðust í sundur þurfti hvert ein- stakt ríki að taka öll sín mál í eigin hendur og koma á fót eigin opin- berri stjómsýslu. Og fyrirmyndin sem þau völdu var opinber stjórn- sýsla að vestrænum sið, eins og t.d. á íslandi. Setja þurfti lög og reglu- gerðir. Endurskipuleggja þurfti stjómsýsluna. Taka þurfti lán, en hvemig átti að standa straum af afborgunum? Það varð að inn- heimta skatta. Engin þjóðskrá var til og engin skattskrá heldur. Allt þetta er til á íslandi. Og reynslan hefur sýnt að íslenskar lausnir henta þessum löndum vel. íslensku lausnimar em yfírleitt einfaldar og skilvirkar. Enda þótt þær taki mið af þörfum lítillar þjóðar, hefur reynslan sýnt að það er auðvelt að teygja úr þeim þannig að þær henti öðrum þjóðum, þó að Qölmennari séu, t.d. Eistlandi með um 1,5 milljónir íbúa. Skýrr ruddi brautina í Eistlandi Tengsl Skýrr við Eistland hóf- ust fyrir rúmum tveimur árum er Tölvumiðstöð eistneska ríkisins sneri sér til Skýrr með beiðni um tækniráðgjöf. Skýrr varð við þessari beiðni og naut til þess aðstoðar Utanríkisráðuneytisins. Við nánari skoðun kom í ljós að í raun var verkefnið allt annað og miklu umfangsmeira. Það sem Eistlendinga vantaði í raun og vem var ráðgjöf um nýtingu á upplýs- ingatækni í opinberri stjómsýslu. Eistlendingar höfðu eftir að þeir urðu sjálfstæðir aflað sér einmenn- ingstölva og tengt þær saman í staðarnet og í sumum tilfellum komið sér upp Unix miðlurum. Þeir notuðu Dos sem stýrikerfi fyrir einmenningstölvumar, Novel til að stýra netunum og Dbase sem gagnasafn og forritunarmál. Þetta var gott fyrsta skref í tæknilegri uppbyggingu opinberrar stjórn- sýslu. En hvað með stjómsýsluna sjálfa? Landskerfin eru fyrirmyndin Fjármálastjórn hins opinbera var mjög ábótavant. Lög um eistneskt rikisbókhald voru ekki til, ríkið hafði engan bókhaldslykil og bókhaldsvenjur voru að rússnesk- um sið. Þetta varð til þess að Skýrr fékk Ríkisbókhaldið til liðs við sig og hefur það verið Fjármálaráðu- neytinu í Eistlandi innan handar í þessum málum. Skýrr hefur aftur á móti einbeitt sér að því að ráð- leggja Eistlendingum um uppbygg- ingu upplýsingakerfis fýrir stjóm- Tölvumál - 31

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.