Vísir


Vísir - 03.10.1962, Qupperneq 2

Vísir - 03.10.1962, Qupperneq 2
V1SIR . Miðvikudagur 3. október 1962. en veit ekkert um snmning enn Helgi stundar æfing- ar með Motherwell Helgi Daníelsson hinn ágæti markvörður Akrncsinga dvelst nú úti í Skotlandi og æfir sig með liðsmönnum Motherwell. Enn hefur ekkert verið ákveðið um samningsgerð við félagið, en Helgi tók þátt í kapplcik með varaliði félagsins um síð- ustu helgi og mun aftur kcppa með sama liði í kvöld. Vísir átti stutt samtal við Helga í gærkvöldi. Fyrst spurð- um við hann, hvort hann héldi ekki að hann færi að undirrita samning við félagið. — Ég veit ekki, það er ekk- ert farið að ræða það mál enn, svaraði hann. — Hefurðu nokkuð ferðazt um í Skotlandi? — Nei, ég hef ekki haft tíma til þess. Ég er alltaf að stunda æfingar með félaginu. Það eru ekki eiginlegar knattspyrnuæf- ingar heldur fyrst og fremst líkamsþjálfun, hlaup og fleira. — Hvernig fór leikurinn hjá ykkur um helgina og hvernig heldurðu að þú hafir staðið þig? — Við töpuðum 5 á móti l. Þótt niðurstaðan yrði svona slæm var leikurinn fremur jafn og lá ekki mikið á okkuryAnd- stæðingarnir voru hins vegar snarpari við markið, — Hvernig líkar þér við fé- lagana í Motherwell? — Ágætlega, þetta eru prýði- legir náungar. I þeim hópi er m. a. landsliðsmaðurinn Quinn. — Hvar býrðu núna? — Ég veit ekki .svaraði götuna — Conuner Hótel. — Þú gætir hugsað \>ér að setjast þarna að nokkurn tíma? — Ég veit ekki, svaraði Helgi. Umhverfið er allt dálítið öðru vísi en ég er vanur. Ég er hræddur um að ég komi til með að sakna sjávarins og roksins heima. Knud Skaarup, cinn markhæsti maður Skovbakken skorar hér af línu f leiknum gegn MK 31. Fram Skovbakken í sjónvarpinu? Fátt um afrek á UIA-móti á Eiðum Frjálsíþróttamót Ú.I.A. var haldið á Eiðum 23. sept. Allhvasst var, og má þar að nokkru afsaka lélegan árangur, en hitt mun þó hafa ráðið meiru að flestir eða allir keppendur komu illa „þjálfað- ir" til mótsins. Sigurvegarar í einstökum grein- um urðu sem hér segir: 100 metra hlaup: Guðm. Hallgrímsson, Skrúð 11.5. 400 metra hlaup: Guðm. Hallgrímsson, Skrúð 60.4. 1500 metra hlaup: Þórir Bjamason, Ungmenna- fél. Stöðvarfjarðar 4.38.2. 3000 metra hlaup: Þórir Bjarnason, Ungmenna- fél. Stöðvarfjarðar 1.45. Hástökk: Þorv. Þorsteinss., Árvakur 1.45. Langstökk: Karl Stefánsson, Hróar 6.28. Þrístökk: Karl Stefánsson, Hróar 13.22. Kúluvarp: Gunnar Guttormss., Hróar 12.50. Kringlukast: Gunnar Guttormss., Hróar 31.08. Spjótkast: Már Hallgrímsson, Skrúð 38.70. Stigahæstu félögin: 1. Ungmennafélagið Skrúður, Hafranesi 30 stig. 2. Ungmennafélag Stöðvarfjarð- ar 26 stig. 3. Ungmennafélagið Hróar, Hró- arstungu 20 stig. Stighæstu einstaklingarnir: Guðm. Hallgrímsson, Skrúð 13 st. Þórir Bjarnason, Ungmennafélagi Stöðvarfjarðar„13 st^g. Bezti árangur á mótinu var 100 metra hlaup Guðmundar Hallgríms sonar, 11.5 og hlaut- hann fyrir farandsbikar Vilhjálms Einarsson- ar. Handknattleikur að hefjast Mikill óhugi í Dan- mörku á Evröpubikarnum Mikill áhugi er í Danmörku á Evrópubikarleik Fram og Skovbakken, sem fram fer í Árósum 4. nóvember n.k. Til marks um það er að mjög líklega verður leiknum sjónvarp- að, en samningar um þetta hafa farið fram að undanfömu milli Skovbakken og danska sjón- varpsins. Aðeins stendur á sam- þykki danska handknattleiks- sambandsins fyrir útsending- unni, en sama dag 'og á sama tíma fara fram Ieikir í 3. deild og mundi útsendingin draga Nú fer að líða að því að þeir iþróttamenn sem bæði keppa í knattspyrnu og handknattleik fari að leggja knattspyrnuskóna inn í skáp og taki fram strigaskóna, sem legið hafa ónotaðir frá þvi í. vor, því nú fer að hefjast Reykja- víkurmeistaramótið £ handknatt- Ieik að gamla Hálogalandi. Búast má við mikilli keppni á mótinu, ef öll lið tilkynna þátttöku. En það má gera fyrir n. k. mánudag, með því að senda Handknattleiks- ráði Reykjavíkur, Hólatorgi 2, umsókn og leggja með henni 35 krónur. En hún verður að hafa borizt fyrir mánudag. OL-þorpið í Innsbruck Austurrikismenn búa sig nú undir að halda vetrar-ólympiu- lcikana í borginni Innsbruch 1964. Vanda þeir mjög til móts- ins og eru nú að reisa voldug nýtízkuleg gistihús og olympíu- hverfi. Hér á myndinni sést hverfi íþróttamanna í Inns- bruck. Þar verður rúm íyrir 3 þúsund íþróttamenn, en að Icikunum loknum verða húsin íbúðir fyrir 390 fjölskyldur. — menn frá þeim leikjum. Sennilegt er að af sendingunni verði. Ef ekki um leið og leikur- inn fer fram þá eftir að 3. deild- arleikjunum er lokið. í sambandi við Skovbakken má geta þess að þeir léku sinn fyrsta leik í 1. deildinni um helgina og unnu mjög nauman sigur yfir Kaupmannahafnarliðinu MK 31 með 21:20, en sigurmarkið kom ekki fyrr en tæp hálf mínúta var eftir af leik. Leikurinn var mjög harður og ekki vel lcikinn og eru dönsku blöðin á þvi að Skovbakken sé ekki eins vel leikandi nú og í fyrra. Ew'lcndtit' fréiiir • Sænski spretthlauparinn Ove Jonsson lét lífið á voveiflegan hátt um helgina. Hann ók bifreið sinni á ofsahraða á móti annarri og lézt hann og einn farþegi úr hinni bif- reiðinni samstundis. Jonsson var nýbakaður Evrópumeistari í 200 metra hlaupi, vann glæsilegan sig- ur fyrir hálfum mánuði og var Olympíuvon Svia. Einnig var hann góður isknattleiks- og knattspyrnu- maður. OVe Jonsson var minnzt í Paris á sunnudaginn, en þar fór fram landskeppni Frakka og V,- Þjóðverja. Ove var aðeins 21 árs gamall. O „Patterson var dauðhræddur við Liston,“ segir Gene Tunny hinn heimsfrægi hnefaleikari og heimsmeistari í þungavigt. „Fólk- ið, sem keypti sig rándýru verði til að sjá bardagann var hreinlega „rænt“ fjármunum sínum. Það eru keppnir sem þessar sem eru að gera út af við hnefaleikaíþróttina," sagði Tunney. Eins og kunnugt er stóð keppnin aðeins I 2 mín, og 6 sek., en dýrustu sætin, 7 raðir frá pallinum, kostuðu 100 dollara eða 4300 krónur, dýr sekúnda það. Auk þess höfðu milljónir manna keypt sér sæti í kvikmynda- húsum þar sem átti að sjónvarpa keppninni en bilanir á sjónvarps- tækjum komu í veg fyrir að af því yrði og áhorfendur urðu að rýna á hvítt taldið í staðinn. ; —~mxa

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.