Vísir - 04.10.1962, Side 1

Vísir - 04.10.1962, Side 1
SIR 52. árg. — Fimmtudagur 4. október 1962. — 227. tbl. Verður aukaniður - jöfnun á Akureyri? Ágreiningur um tú|k- un á nýju útsvarslögun- um getur valdið því að fram verði að fara auka- niðurjöfnun útsvara á Akureyri, og verði þá að minnsta kosti lagt á viðskipti útbúa Kaup- félags Eyfirðinga, en mögulegt er einnig að jafnað verði einhverri upphæð niður á íbúa Akureyrar. Sem kunnugt er voru sett ný útsvarslög á þessu ári. í 30. Framh. á bls. 5. I Hinn nýi hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar Willi am Strickland var að æfa strengjasveit hljómsveitarinnar þegar ijósmyndari Vísis kom f upptökusal Ríkisútvarpsins f morgun. Hljómsveitin heldur fýrstu tónleika sína á þessum vetri 11. október n.k. Sjá frétt á bls. 5. (Ljósm. Vísis I.M.). Innganga verzlunarmanna / ASÍ/ Félagsdámi í dag í dag kl. 5 verður tekið fyrir í Félagsdómi mál Landssambands verzlun- armanna og Alþýðusam- bandsins, varðandi inn- göngu þess fyrrnefnda í ASÍ, en eins og kunnugt er, hefur stjórn ASÍ mein- að verzlunarmönnum inn- göngu með ýmsum furðu- legum fyrirslætti. Er úr- skurðar að vænta frá Fé- lagsdómi innan skamms. Nú þegar hin ýmsu félög hafa verið að kjósa fulltrúa sína á þing Alþýðusambandsins hafa menn nokkuð velt fyrir sér hver munu verða afdrif þeirrar kröfu verzlunarmanna að fá inngöngu í ASf og sitja. þing þess. Ef úr því yrði, fengju verzlunarmenn 33 fuiltrúa og settu mikinn svip á þingið og þingstörfin, svo 50þús.kr.háseta hlutur ú Nurfu Aflahæstur þeirra togara, sem stundað hafa veiðar að undan- fömu er togarinn Narfi, með 1734 tonn. Þetta er afli, sem veiðzt hefur á 3 mánuðum og 20 dögum, og mun hásetahlutur á Narfa þennan tíma vera kr. 50.182.00. Hiutur yfirmannanna er að sjálfsögðu eitthvað hærri. Aðrir togarar hafa fengið nokkuð minni afla, að undan- teknum Víkingi, sem veitt hef- ur rúm 1500 tonn, en aidrei þó svo, að hásetahlutur sé helm- ingi minni en á Narfa. Á Narfa eru 31 maður, þar af 22 á hásetakaupi. Togarinn hefur farið 6 veiðiferðir og ým- ist siglt með aflann eða lagt hann upp hérlendis. Hefur hann bæði verið á heimamiðum og Grænlandsmiðum og fiskurinn aðallega verið þorskur og karfi. Skipstjóri á Narfa er Helgi Kjartansson. ekki sé talað um áhrif þeirra á gang mála. Landssamband verzlunarmanna hefur þegar kosið fulltrúa sína. — Stjórn Alþýðusambandsins mun væntanlega leggja fyrir Félagsdóm- inn i dag sínar athugasemdir og Frh. á 5. síðu. Stýrimanna- skólinn settur Stýrimannaskólinn var settur 3. okt. í 72. sinn síðan skólinn tók til starfa. — Skólasetningarræðu flutti Jónas Sigurðsson. í upphafi minntist hann Friðriks V. Ólafs- sonar, skólastjóra, er lézt 19. sept. síðastliðinn. Viðstaddir vottuöu hinum látna skólastjóra virðingu sína með því að rísa úr sætum. Nemendur í skólanum eru fleiri nú en nokkru sinni fyrr eða 193. Þar af eru fiskimenn 141 í 7 bekkjardeildum og farmenn 52 í 3 deildum. Eigendaskipti á tveimur frystihúsum á SuBuruesjum Eigendaskipti hafa nú orðið á tveimur stórum frystihúsum á Suðurnesjum, það er Snæfelli h.f. í Kefiavík og frystihúsi Karvels Ögmundssonar. Bæði þessi frystihús voru áður í Sölumiðstöð hraðfrystihiisanna, en munu nú við eigendaskiptin hætta í þeim samtökum og selja framleiðslu sína á frjálsum markaði. Snæfell h.f. hefur Magnús Z. Sigurðsson keypt og auk þess Framhald á bls. 5

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.