Vísir - 09.10.1962, Side 1

Vísir - 09.10.1962, Side 1
Réttarhöld héldu áfram í morgun kl. 10, fyrir Sjó- og verzlunardómi, í máli því sem Neytendasamtökin hafa höfðað gegn Grœnmetisverzlun Iand- búnaðarins. IVoru í morgun kallaðir fyrir verzlunarstjórar í matvörubúð- um, til að kynna sér hátt þann sem hafður er' á afgreiðslu, geymslu og annarri meðferð á kartöflum eftir að þær koma til verzlananna. Var fyrstur kall- aður fyrir Ásgeir Ásgeirsson, verzlunarstjóri í Meiabúðinni. Einnig voru mættir í réttin- um Sveinn Ásgeirsson, formað- f morgun ur Neytendasamtakanna, og Iög fræðingur samtakanna, Birgir Ásgeirsson hdl. Dóminn skipa þeir Hafliði Jónsson, garðyrkjuráðunautur, Valgarð Kristjánsson, fulltrúi hjá borgardómara, og Jóhann Ólafsson, kaupmaður. Nærri brunninn inni Talið frá vinstri Hafliði Jónsson, Valgarð Kristjánsson, Jóhann Óiafsson, ritari dómsins, Birgir Ásgeirsson hdl.. Sveinn Ásgeirsson og Ásgeir Ásgeirsson verzlunarstjóri. (Ljósm. Vísir I.M.) ♦ Ásgeir Ásgeirsson réttir Valgarði Kristjánssyni reikninga yfir við- skipti verzlunar sinnar við Grænmctisverzlunina, í ágústmánuði. Litlu munaði í gærkveldi að maður skaðbrenndist af eldi eða jafnvel brynni inni, en honum var bjargað á síðustu stundu. Þarna var um dauðadrukkinn mann að ræða, sem bjó á Gríms- staðaholtinu. Hafði hann lognazt út af á fleti sínu í ölvunardái, en sennilega verið með vindil eða vindling, sem kveikti í fötum mannsins. Kona, sem bjó í rishæð hússins, fann reykjarþef og fór þegar á stúfana til að kanna hverju þetta sætti. Hún kom að manninum þar Framh. á 5. síðu. *... ' Vonlaust að ná vb. Mjög miklir erfiðleikar eru nú á dreifingu Vísis um bæinn og eru kaupendur beðnir vel- virðingar á þeim töfum og mis- bresti sem verða kann á því að þeir fái blaðið með skilum. AHt er gert sem unnt er til þess að kippa þessum málum í lag. Orsökin er sú að skólar eru að byrja og skortur hefir verið á bömum til þess að bera út blað- ið. Foreldrum skal bent á, að blaðaútburður gefur börnum þeirra góðar tekjur f aðra hönd og tekur starfið yfirleitt ekki nema 1-2 tíma á dag. Áskrifendur eru vinsamlega beðnir að tilkynna vanskil strax og þeir verða þeirra varir f sfma 1-16-60. Verður þeim þá sent blaðið þegar f stað. Athugaðir voru á sinum tíma möguleikar á því, hvort unnt mundi að ná vb. Stuðlabergi upp, þar sem það liggur á hafsbotni undir Höfnum, en það mun vera vonlaust verk. Stuðlaberg fórst 17. febrúar s.I. Hjálmar R. Bárðarson skipa- skoðunarstjóri skýrði meðal annars frá því í fróðlegu útvarpserindi, sem hann flutti nýlega um öryggi á sjó, að sá eigenda skip- sins sem eftir lifði — tveir þeirra fórust með skipinu — hefði haft hug á að gerð væri tilraun til að ná skipinu upp. Með lóðunum hefði tekist að finna þann stað, þar sem skipið liggur, en þar er mikið dýpi, hvorki meira né minna. en 27 faðmar, eða 50 metrar. Þar við bætist, að þarna er straumur þungur, og loks fljóta nótadræsur upp frá skipinu, sem mundu vera hverjum kafara stórhættulegar. Mjög er erfitt fyrir kafara að starfa á eins miklu dýpi og þarna er og mun aldrei hafa verið gert hér við land. Má því segja, að þetta sé vonlaust verk, þegar á allt er litið. Skipstjórinn á norska björgunar skipinu Oddi sterka, sem þetta mál mun hafa verið nefnt við, kvaðst ekki mundu bera við að reyna björgun þarna. Forráðamenn H.f. Björgunar munu einnig hafa haft nokkrum áhuga á málinu, en dýpið er meira en svo, að þeir treysti sér til að reyna. pramhald ,á bls. 5. Kópavogskirkja vígo um jólin „Byggingu Kópavogskirkju er nú svo langt komið að vonir standa til að unnt verði að vígja hana um næstu jól og að því er stefnt,“ sagði sóknarpresturinn, séra Gunnar Árnason í viðtali við Vfsi í morgun. Hvelfing kirkjunnar er nú full- gerð, máluð í ljósum litum og ljós hafa verið fest þar upp. Hvelfing- in er 12 metra há eða álíka há og anddyri Háskólabyggingarinnar. Gluggarnir í kirkjuna, sem Gerður Helgadóttir hefir gert, koma til BSRB samþykkir nýja launastigann Seint í nótt lauk þingi B. S. R. B. Samþykkti þingið í gærkv. eindreginn stuðn- ing við tillögur Kjararáðs bandalagsins um Iauna- stiga sem skiptist í 31 flokk, og Vísir hefir fyrr greint frá. Á fundinum í nótt var gerð breyting á lögum bandalagsins og samþykkt fjárhagsáætlun. Þá fór og fram stjórnarkosning. Stjórnar- mönnum var fjölgað úr 9 upp í 11 með lagabreytingu. Af þeim fara kommúnistar og framsókn með meirihluta í stjórninni, 6 af fimm, og var formaðurinn kjörinn fram- sóknarmaðurinn Kristján Thorla- cius. Aðrir í stjórn eru þessir: Fyrsti varaforseti: Júlíus Björnsson skrif- stofust., annar varaforseti: Harald- ur Steinþórsson kennari, Magnús Eggertsson lögregluvarðstjóri, Teit ur Þorleifsson kennari, Anna Lofts dóttir hjúkrunark., Jón Kárason aðalbókari, Ólafur Björnsson pró- fessor, Guðjón Baldvinsson deild- arst. Einar Ólafsson útsölust. og sr. Gunnar Árnason. Hér fer á eftir orðrétt tillaga B.S.R.B. í aðalmáli þingsins, launa- málum: 22. þing B.S.R.B., haldið í Haga- skóla 5.—8. okt. 1962, fagnar þeim áfanga, sem náðst hefur í kjara- samningi opinberra starfsmanna og telur að stefna beri ákveðið að því, að fullum og óskertum samnings- rétti verði náð. Þingið metur að verðleikum það mikla starf, sem Kjararáð hefur innt af hendi við undirbúning kjara samninga og þakkar það. Þingið fellst á launastiga þann, sem Kjararáð hefur lagt fram sem samningsgrundvöll, enda er hann byggður upp með hliðsjón af nú- verandi launakjörum á frjálsum vinnumarkaði. 1 því sambandi legg ur þingið þó ríka áherzlu á, að Framhald á bls. 5. landsins um miðjan þennan mánuð og verða ein helzta höfuðprýði hennar. Þeir eru unnir hjá sama fyftrtæki í Þýzkalandi og gluggar Skálholtskirkju og verða í átta bogum á fjórum stöfnum kirkjunn- ar, sem er byggð 1 kross. Ná glugg- arnir allt frá þaki og niður að gólfi. Verið er að smíða altari kirkj- unnar og kirkjubekki og unnið að öðrum búnaði kirkjunnar hið innra. Eikarbekkir verða f kirkj- unni með bólstruðu baki og setu og munu '280 manns geta setið á þessum bekkjum. Auk þess verður gólfrými fyrir 50 lausa stóla sem hægt er að bregða upp við fjöl- mennar kirkjuathafnir. Lí¥ - ASÍ í Félcags- dómi á föstudag Félagsdómur kemur aftur saman á föstudag til að fjalla um inn- göngubeiðni Landssambands verzl- unarmann f Alþýðusambandið. ^ferður gagnasöfnun þá væntanlega lokið, en ekki er ákveðið hvenær málflutningur hefst.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.