Vísir - 09.10.1962, Qupperneq 2
2
V I S I R . Þriðjudagur 9. október 1962.
Þeir hafa verið með Héðni í öllum Smiðjukeppnunum frá 1947. Frá vinstri: Rafn Sigurðs-
son, Gunnar Pétursson og Halldór Backmann.
Héðínn vann smiðjukeppnina
Hínir fótfráu starfsmenn
hjá Vélsmiðjunni Héðni
bættu enn við hið myndar
Iega bikarasafn sitt nú fyr-
ir helgina, er þeir sigruðu
LISTON
Sonny Liston, nýbakaður heims-
meistari I þungavigt var um
helgina nálægt því að komast aftur
inn fyrir múra fangelsisins. Lög-
reglueftirlitsmaður tók eftir Cad-
illac-bifreið, sem var ekið grun-
samlega hægt og óörugglega niður
Philadelphia Park. Bifreiðin var
stöðvuð og þegar lögreglumaður-
inn opnaði gaus á móti honum
sterk áfengislykt. Ökuskírteini?
Það fann ökumaðurinn ekki í bíln-
um né innan klæða, en maðurinn
bak við stýrið var í þetta sinn
enginn annar en heimsmeistarinn
Landssmiðjuna í úrslita-
leik í Smiðjukeppninni í
knattspyrnu og þar með
var áttundi silfurbikarinn
kominn í glerskápinn í
— fullur
vii stýrið
í hnefaleik, Sonny Liston. Lög-
reglumaðurinn hjálpaði til við
Ieitina að ökuskírteininu og loks
fannst það á gólfi bifreiðarinnar.
Sem betur fer var fulltrúi laganna
skynsamur og náði í mann, sem
ók Liston heim til sín og meistar-
ina settist hljóður í baksætið, þæg-
ur sem lamb.
í sama garði, Philadephia Park
í Fíladelfíu var Liston handtekinn
fyrir ári síðan er hann reyndi að
þvinga konu á bíl til að aka út af
veginum.
Héðinsnaustinu eins og
þeir kalla samkomusal
sinn á 4. hæð hússins.
„Aldrei fyrr hefur lið okkar
mætt annarri eins mótspyrnu og
nú,“ sagði formaður Starfsmanna-
félags Vélsmiðjunnar Héðins, Rafn
Sigurðsson, er liðsmenn ásamt
nokkrum gestum komu saman í
Héðinsnausti s.l. laugardag. „Hver
hefði trúað því fyrir nokkrum ár-
um aö í hálfleik stæðu leikar 0:2,
andstæðingum Héðins í vil eins og
raun varð á gegn Stálsmiðjunni.
Annað hvort hefur lið okkar farið
svo aftur eða að öðrum hefur far-
ið fram og held ég að síðari skýr-
ingin sé sennilegri," sagði Rafn
að lokum.
Héðinn vann nú 5. smiðjubikar-
inn til eignar, en auk þess hefur
Héðinn unnið einn firmabikar í
knattspymu og tvo bikara í
bridge til eignar. „Við höfum unn-
ið alla bikara, til eignar sem við
höfum keppt um“, sagði einn
starfsmannanna, „og það segi ég
án þess að vera að gorta af því,“
bætti hann við.
Héðinn vann Stálsmiðjuna í
keppni þessari með íi:2, Hamar
með 4:2, Sindra með 6:0 og úr-
slitaleikinn við Landssmiðjuna
með 3:0. Gesti keppninnar, Slipp-
félagið, gerðu þeir jafntefli við en
tefldu fram varaliði sínu. Héðins-
liðið h?fur ekki tapað leik í sum-
ar, en Flugfélag íslands gerði þó
jafntefli við liðið 2 mörk gegn 2.
Grand Prix-kapp-
aksturskeppnin
Fram—Keflavik
Spennandi undanúrsllif bikarkeppninnar
Á vikufundi KRR i gærkvöldi
var dregið um leikina í undanúr-
slitum bikarkeppninnar, sem frarn
fara um helgina, en spenningur er
mikill fyrir úrslitum keppninnar.
Fulltrúi Vals í ráðinu, Einar
Björnsson, dró fyrsta miðann úr
kristalsvasanum, sem gegnir því
virðulega hlutverki að geyma mið-
ana með nafni þátttökuliðanna.
Upp kom nafn KR. Það var svo
fulltrúi Víkings, Ólafur Jónsson,
sem dró síðari miðann: Akureyri.
Leikirnir um helgina verða því
KR—Akureyri og Fram — Kefla-
vík. Líklega verður leikið á laug*
ardag og sunnudag enda þótt ekki
sé enn ákveðið að fullu með leik-
daga né hvar leikið verður, en
sennilega verður það á Melavelli.
Verður fróðlegt að fylgjast með
leikjum þessum. KR og Akureyri
hafa verið orðuð við að hafa nú
hvað beztu liðunum á að skipa, en
Keflavík fær nú aftur 1. deildarlið
sem verkefni, ríieira að segja sjálfa
íslandsmeistarana og er hætt við
að meistararnir verði riýliðunum í
1. deild ofraun að þessu sinni, þó
aldrei sé að vita um úrslit fyrir-
fram.
Fyrir skemmstu var haldið heimsmeistaramót í kappróðri í Sviss, og
voru Þjóðverjar þjóða sigursælastir þar, því að þeir unnu fimm af sjö
heimsmeistarastigum, sem um var keppt. Þjóðverjar voru líka í þriðja
sæti á tveggja manna bátum. Mót þetta fór fram á Rotsee (Rauðavatni)
við Luzern. Þjóðverjar sigruðu meðal annars á 8 manna báti, og var
þó keppni mjög hörð gegn Frökkum, ítölum og Rússum. Myndin er
af sigurvegurunum í þessum róðri.
Jimmy Clark frá Skotlandi vann j
United States Grand Prix kapp-
aksturinn í Watkins Glen í Banda-
ríkjunum í gær, 70 sekúndum á
undan Graham Hill frá Bretlandi.
Er nú aðeins eftir ein keppni af
þeim, sem skera úr um heims-
meista.-titilinn og eru Clark og
HiII þeir einu, sem möguleika eiga
á að vinna heimsmeistaratitilinn.
Jimmy Clark
Clark ók bíl af gerðinni Lotus
25, en Hill bíl BRM. Er bíll Clarks
hraðskreiðari, en hefur haft meiri
tilhneigingu til að bila. Eina keppn-
in sem nú er eftir, er Grand Prix
keppnin í Suður-Afríku. Hefur Hill j
enn fleiri stig, og nægir honum að |
verða númer þrjú í þeirri keppni j
til að vinna titilinn. Hins vegar j
á Clark möguleika á að vinna, ef I
Hill verður aftar, en hann vinnur.
Bezti brautartími í gær var um !
176 kílómetrar, en var um 168 í
fyrra.
Flestir þekktustu kappaksturs-
menn heims tóku þátt í keppninni,
svo sem John Surtees á Lola, Innes
Ireland á Lotus 24, Jack Brabham.
sem tvisvar hefur orðið heims-
I meistari, á bíl sem hann hefur
rjálfur byggt, Dan Gurney á þýzk-
i um Porsche og Bruce McLaren á í
; Cooper. Phil Hill, sem vann heims- j
meistaratitilinn í fyrra, tók ekki i
þátt í keppninni, þar sem verkfall j
er hjá Ferrari og bílarnir ekki til- |
búnir. I
Fremri röð frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Óskar Jónsson, Páll Guðmundsson, Sigur-
bjöm Egilsson, Þór Jónsson, Joszef Czijlag. Aftari röð frá vinstri: Elías Hergeirsson, Guð-
mundur Ingi Svavarsson, Þórður Jónsson, Kristján Þór Kristjánsson, Halldór Bachmann,
Bragi Bjarnason, Rafn Sigurðsson, Gunnar Aðalsteinsson, Gunnar Pétursson. Á myndina
vantar þá Eyjólf Magnússon, Einar Sigurðsson og Þorstein Ingólfsson.