Vísir - 09.10.1962, Side 5

Vísir - 09.10.1962, Side 5
V1SIR . Þriðjudagur 9. október 1962. 5 5© ám Kristmundur Sigurðsson varðstjóri Kristmundur Sigurðsson varð- stjóri hjá umferðardeild rann- sókharlögreglunnar í Reykjavík er fimmtugur í dag. Kristmundur er Húnvetningur að ætt og uppruna, en að námi Ioknu — hann er gagnfræðingur frá Akureyri — fluttist hann til Reykjavíkur og gerðist þá brátt lögreglumaður, fyrst í götulög- réglunni en seinna sem starfs- máður rannsóknarlögreglunnar og hefur verið varðstjóri umferðar- deildar rannsóknarlögreglunnar frá því 1. jan. s.l. Hefur Krist- mundur nú starfað samfleytt á þriðja tug ára að lögreglustörfum og getið sér þar drengskapar- og dugnaðarorð hið bezta. Kristmundur er þó engan veginn einskorðaður við lögreglustörf, því hann hefur margt látið til sín taka, þ. á m. skógræktarmál, Jandbún- aðarmál, félagsmál o. fl. Þá má og geta þess að Kristmundur var um skeið einn bezti glímumaður ís- lands og hefur bæði verið glímu- kóngur íslands og Skjaldarhafi Ármanns. Kona Kristmundar er Svava Þórðardóttir og eiga þau tvö börn. Allir sem til Kristmundar þekkja eða hafa starfað með honum Ijúka upp einum munni um það að þar sé um einstakan ágætismann og hvers manns hugljúfa að ræða. ASÍ boðor fulltrúa síldor- sjömanna ú fund í morgun Eins cg Vísir skýrði frá í gær hafa samningaviðræður útgerðar- manna og sjómanna á vetrarsíld- veiðum dregizt á langinn þótt LÍÚ óskaði eftir viðræðum þegar 25. fyrra mánaðar. Blaðið hafði í morgun tal af Snorra Jónssyni, framkvæmda- stjóra ASÍ. Hann sagði að þau sjó- mannafélög, sem hefðu Iausa síld- arsamninga (og það væru alls ekki öll), ættu sjálf að tilnefna fulltrúa í samninganefnd. Hann kvað ASÍ þegar hafa sent þeim félögum skeyti er bréfið barst frá LÍÚ í fyrra mánuði og spurzt fyrir um það hvort þau vildu standa sam- eiginlega að samningagerð við út- vegsmenn um síldveiðikjörin. Á þessu hefði þó orðið nokkur drátt- ur, m.a. vegna fulltrúakjörs í sjó- mannafélögunum til AÍþýðusam- bandsþings sem margir voru önn- um kafnir við að undirbúa. — Þó hefðu nú borizt svör frá þó nokkr- um félögum og hefði ASl sent þeim skeyti í gær og boðað full- trúa frá þeim á fund í Reykjavík á morgun til undirbúnings viðræð um um síldveiðikjörin. Kvaðst Snorri Jónsson vonast til að eftir þann fund yrði hægt að hefja við- ræður við' LÍÚ. Fangageymslur fyllast Fyrir helgina bar óvenjumikið á ölvun á almannafæri i Reykjavík og fór þá svo fyrir Iögreglunni, að hún varð uppiskroppa með hús n'jeði fyrir gesti sína, bæði i fanga- geymslu lögreglustöðvarinnar og eins í Síðumúla. Þetta var eitt af hinum miklu hausthelgarfylliríum eftir að síld- arvertíð lýkur og sjómenn flykkj- ast til Reykjavíkur með alla vasa fulla af peningum. Þá gat lögreglan þess einnig að síðustu dagana hafi með meira móti borið á ölvun ökumanna und- ir stýri. Frá því á laugardag og þar til í gærkvöldi voru 7 bifreið- arstjórar teknir grunaðir um ölv- un við akstur og færðir til blóð- rannsóknar. Tveir þessara öku- manna óku út af, annar uppi í Mos fellssveit í fyrrinótt, þar sem hann stórskemmdi bifreiðina, en hinn ók út i skurð uppi í Hlíðum I gær og var þá tekinn. Þykir lögreglunni þetta vera næsta mikil eftirtekja á aðeins þrem dögum. Fyrir nokkru var Visir og búinn að skýra frá því að nær helmingi fleiri öku- menn hafi það sem af er þessu ári, verið teknir fyrir ölvun við akstur, heldur en á sama tíma í fyrra. í einu ölvunartilfelli, sem skeði sl. laugardagskvöld * einu sam- komuhúsi borgarinnar, var piltur tekinn fyrir stuld á kvenveski. Pilt urinn, sem annars er hinn mesti sómapiltur og aldrei viljað vita vamm sitt í neinu, Ienti í þeirri ó- er tæki- færið Miðasalan í skyndihappdrætti Sjálfstæðisflokksins er í fullum gangi. Nú styttist óðum til 26. október, þegar dregið verður. Miðarnir eru til sölu um allt land. í Reykjavík er hægt að kaupa miða í vinningsbílunum þremur, VolkSwagen 1963, við Útvegsbankann í Austurstræti. Notið tækifærið, ef ykkur lang- ar til að eignast góðan og vin- sælan bíl fyrir lítið verð. Stuðlaberg — Framhald af bls. 1. Skipaskoðunarstjóri benti blað- inu einnig á, að þegar skip hefði legið lengi í sjó, mundu öll tæki vélar, rafkerfi og annað, skilrúm og þess háttar vera orðið ónýtt, svo að eiginlega væri það skrokk- urinn einn, sem nothæfur væri. Verðmæti hans er um það bil þriðj ungur alls skipsverðsins. Þegar ekki er um meira verðmæti að ræða, eru menn ekki sérstaklega áfram um að leggja í kostnaðar- samar tilraunir sem geta orðið gagnlausar. BSRB - Framhald af bls. 1. lægstu laun þurfi að tryggja þeim starfsmönnum, sem við þau búa, viðunandi lífskjör. Þingið beinir þeim eindregnu til- mælum til Kjararáðs, að það með réttsýni og í nánu samstarfi við fulltrúa bandalagsfélaga samræmi framkomnar tillögur um skipun í flokka og gefi fulltrúunum kost á að bera fram rök sín, áður en loka röðun fer fram. Þegar Kjararáð telur sig ekki geta fallizt á kröfur einstakra sam- bandsfélaga, mælist þingið til að ráðið geri viðkomandi félagi grein fyrir ástæðum þess, sé þess óskað. Þingið leggur áherzlu á, að Kjara ráð haldi fast og örugglega á rétti opinberra starfsmanna við samn- inganefnd fjármálaráðherra, full- visst þess, að á bak við það stend- ur óskiptur hópur launþega, sem krefst réttlátra launakjara. gæfu að drekka sig ofurölvi og í ölæðinu gekk hann að einu borð inu i salnum, tók þar kvenveski, en var tekinn þegar hann var að rusla í þvl. Kveðst pilturinn enga grein geta gert sér ,fyrir því hvað yfir sig hafi komið. Þá lék og grunur á því að ölvað- I ur maður hefði hafið skothríð j snemma í gærmorgun inni í Hólm- \[IjTJ'j 1)rilllllÍllll --- garði. Var kært yfir þessu til lög-' reglunnar nokkru fyrir birtingu í gærmorgun. Var mannsins þá leit- að, en án árangurs. Minnmg I fregn af andláti Jóns Kjartans- sonar sýslumanns hér í blaðinu í gær féll niður síðasta málsgreinin. Þar var þess getið að síðari kona hans var frú Vilborg Stefánsdóttir, sem lifir mann sinn. Framhald af bls. 1. sem föt hans voru byrjuð að loga, en sjálfur vissi hann hvorki í þennan heim né annan. Konan kæfði eldinn í einni svipan, og það áður en hann fengi nokkrar bruna- skeinur. Talið er að þarna hafi ekki mátt muna augnabliki, svo að maður- inn hefði ekki brennzt meira eða minna, eða jafnvel hlotið bana. Hlauzt þarna ekki annað tjón, en brunagöt á fötum hins drukkna. sigur Lýðræðissinnar unnu glæsi' _,an si^ur i Sjómannasambandiiiii um helgina, þegar kosnir fulltrú- ar sam’ idsins á næsta Alþýðu-1 sambandsþing. KRAFTUR TVfikill fögnuður ríkti meðal hljómleikagesta í Austur- bæjarbíói í gærkvöldi. Var það ekki að undra, því að þar heyrð- ust þrjú tríó, fáheyrð hérlendis: E-dúr tríó Haydns, annað tríó Schumanns og c-moll Mendels- sohn tríóið — og flutningur þeirra var I stuttu máli sagt glæsilegur. Bandaríska Marl- borO-tríóið (fiðla, selló og píanó) var hér að verki. Um langt skeið hefur sam- setning strokhljóðfæra og slag- hörpu verið sérstaklega heill- andi. Þar hafa hreinstillt strok- hljóðfæri staðið skör hærra á- sláttarhljóðfærinu, sem ekki var nema „vel stillt“. Ann- markar þessir voru lengi vel alvarlegt íhugunarefni grand- vörum tónskáldum. Sagan frá tríósónötu Barokk-tímans til píanótríós nútímans er út af fyrir sig heillandi tónbók- menntagrein. Hér geta menn kynnzt I hnotskurn sigrum meistaranna á þeim fornu hefð- um stillingar, sem kenndar voru við náttúruna. 'p’n „náttúran" verður aðeins knéfelld hverju sinni, og þess vegna eru atrennur listar- innar — og verða að vera — æ nýjar. Tríó-sónatan var ein sú fyrsta I náinni sögu tón- listar. (Er það kannski þess vegna, sem Haydn vitnar til hugmyndáheims hennar, svo sem síðar er getið?) Góðu still- ingunni óx ásmegin I píanótríó- inu (og þótti nokkrum manni Schumann „ónáttúrulegri" en Haydn I gærkvöld?) Hljóðfærin stóðu nú öll jafnfætis — ný „náttúra" óvinveitt listinni. Enn þurfti að fullkomna still- inguna — og þann listræna skilning, sem á hana bar að leggja. Sem betur fer var Schönberg ekki langt undan, svo að enn á tónlistin framtíð! Þrjú ólík hljóðfæri — þrír einstaklingar, hver með sína sérstæðu afstöðu til hljóðfæra- leiks, stilla hæfileika sína sam- an til að fullnægja kröfum þriggja ólíkra tónskálda — þá er eitthvað markvert á ferðum! Blandaðist illa? Nei, skemmti- lega. Ekki rýrnar ánægjan við það að heyra gamalkunnan Josef Haydn þræða óllklegustu stílleiðir svo sem I c-moll (,,hæga“) kafla þessa tríós. Sá kafli er næstum einstakur. Marlboro-tríóið fylgdi þessum óvæntu continuo-leiðum svo unun var að heyra. Tjremenningar þessir léku ein- arðlega, jafnvel geðofsi Schumanns, kom þeim ekki úr jafnvægi og þá var Mendels- sohn tríóið ekkert slor! Flutn- ingur á svona væmnislausri og rómantískri músík er eitt hið þarfasta, er tónlistarunnandi heyrir nú til dags. Áheyrendur kunnu og vel að meta það og varð Melboro-tríóið að færa þeim B-dúr einþáttunginn „ópuslausa" eftir Beethoven aukreitis. Gaman verður að heyra þá aftur I kvöld með aðra efnisskrá á boðstólunum. Þessar síðustu vikur hefur verið mikill kraftur I starfi Tón- listarfélagsins. Haldi þeir á- fram í sama fjöri, verður kom- andi vetur mikið tilhlökkunar- efni. Þorkell Sigurbjörnsson. Próf. Snorri Hallgríms- son fimmtugur A-Iisti lýðræðissinna hlaut 637 atkvæði, en B-listi kommúnista 422 atkvæði. Auðir seðlar voru 15, og fjórir ógildir. Próf. Snorri Hallgrímsson yfir- læknir er fimmtugur I dag. Hann er fæddur á Hrafnsstöðum I Svarfaðardal 9. október 1912, sonur hjónanna Hallgríms Sigurðs- sonar bónda þar og konu hans Þor- láksínu Sigurðardóttur. Próf. Snori tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri 1932 og embættisprófi I læknisfræði Iauk hann við Háskóla íslands 4 árum síðar og þykir það óvenju- lega stuttur tími til að ljúka svo margbrotnu og erfiðu námi. Stúdentafundur — F amhald at 16 síðu sér fyrir því að 1. desember yrði helgaður efninu: Sjálfstæði íslands og sú hætta, sem því stafar af ólýðræðislegum stjórn arstefnum". I’ ritnefndarkjöri fór hins veg ar svo að Vaka fékk aðeins tvo menn kjörna, framsókn og kommúnistar tvo og kratar einn í báðum kosningunum fékk Vaka um 40 atkvæði umfram lista kommúnista og framsókn- ar, og helmingi fleiri atkv. en kratar. Að embættisprófi loknu sigldi hann til útlanda til framhaldsnáms, einkum I Orthopaedi og vann við vísindastofnanir bæði I Danmörku og Svíþjóð og starfaði auk þess víða sem skurðlæknir, meðal ann- ars I finnska stríðinu. Árið 1943 hlaut hann doktorsnafnbót við Háskólann I Stokkhólmi fyrir rit- gerð um meinsemdir og bæklun á fótum og sama ár sneri hann svo aftur hingað heim til íslands og hefur starfað hér síðan. Próf. Snorri Hallgrímsson var skipaður prófessor I handlæknisfræði við Háskóla íslands árið 1951 og jafn- framt gerður yfirlæknir við hand- lækningadeild Landsspítalans. Læknisstörf Snorra Hallgríms- sonar er óþarft að kynna fyrir ís- lendingum, það kannast allir við þann frábæra skerf sem hann hef- ur lagt fram I þágu íslenzkra læknavtsinda og eru ótaldir þeir menn sem geta minnzt próf. Snorra Hallgrímssonar með virð- ingu og þakklæti því hversu mörg- um hefur hann ekki bjargað frá örkumli og dauða með yfirburða hæfni sinni. Óhætt mun að full- yrða að ekki sé kastað rýrð á neinn íslenzkan lækni þótt próf Snorri sé talinn þeirra fremstur. Próf. Snorri Hallgrlmsson er ekki I bænum I dag.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.