Vísir - 09.10.1962, Page 16
VISIR
Þriðjudagur^október^l962^
Staða skólastfóra
Stýrimannaskólons
Staft** skólastjóra Stýrimanna-
skólans var auglýst Iaus til um-
sóknar í síðasta Lögbirtingarblaði.
Aðeins þeir, sem lokið hafa far-
mannaprófi við stýrimannaskólann
og síðan vlðtækara farmannaprófi
við erlenda skóla, hvort tveggja
með góðum vitnisburði, koma til
greina, segir í fréttinni.
Börn á
Akureyri
Vísi vantar börn til að
aera út blaðið á Akur-
jyri. Einnig vantar sölu
jörn. Þið sem hafið á-
Imga á þessu eruð beðin
ið hafa samband við
síýju sendibílastöðina,
»ími 2395 eða Verzlun-
ina Höfn.
Á fjölmennum stúd-
entafundi í gær
Háskólastúdentar kusu í 1.
desembernefnd og ritnefnd há-
tiðarútgáfu Stúdentablaðsins á
fundi í gærkveldi. Þrjár fylk-
ingar áttust við. Urðu allhörð
átök. En það munaði mjóu. —
Brot úr atkvæði skildu þriðja
mann Vöku, félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta og annan
mann á bræðingslista framsókn
arstúdenta og kommúnista, þeg
ar kosið var í hátíðarnefndina.
Nefndin er skipuð 5 mönnum.
Fékk Vaka hreinan meirihluta
í nefndinni. Krata-stúdentar
buðu einnig fram og komu 1
manni að.
Vaka hafði lýst því yfir að
fulltrúar hennar myndu beita
Framh. á bls. 5.
PWIWL n - [rrr~Tft
Myndin er tekin á stúdentafundinum í gær. Fundarstjóri Ólafur Egils-
son stud jur er í ræðustóli. Fundarritari var Ólafur Björgúlfsson stud
odont, ritari Stúdentaráðs.
Vanfar börn til að bera út VÍSI á
Kirkjuteig og
Seltjarnarnes
llpplýsingar á afgreidslunni
Unnið er nú að innréttingu hins nýja húss Tónlistarskólans. Er því skipt niður í mörg lítil herbergi, en
innst verður salur. Búist er við að innrétting verði fullbúin í nóvember. (Ljósm. Vfsis I.M.)
Stefna ber að íslenzkri óperu
Tónlistarskólinn í Reykjavík
tekur til starfa I þessari viku. Mjög
mikil aðsókn er að skólanum og að
ýmsu leyti verður brotið blað í
sögu hans með þessu starfsári. Það
er fyrst að nefna að hann flytur
í hin nýju og glæsilegu húsa-
kynni sín í húsi Tónabíós í nóv-
embermánuði og í öðru lagi að
stofnuð verður ný deild, óperu-
deild, við skólann með Einar Kristj
ánsson sem aðalsöngkennara í
vetur og að ári ræðst Stefán ís-
Iandi að þessari óperudeild, eins
og komið hefir fram í fréttum.
Skólastjóri Tónlistarskólans, Jón
Búizt er við að í desmeber geti
hafizt úthlutun fjár úr sjóði þeim
sem safnazt hefur til styrktar þeim,
sem misstu fyrirvinnu sína í sjó-
slysunum f byrjun þessa árs. Hefur
að undanfömu staðið yfir rann-
síkn á högum þessa fólks og hef-
ur Dr. Gunnlaugur Þórðarson séð
um hana, en hann var skipaður
framkvæmdarstjóri sjóðsins af
Félagsmálaráðuneytinu.
í söfnun þeirri sem að undan-
förnu hefur staðið yfir söfnuðust
2.825.008,00 krónur. Verður fé
þessu úthlutað til aðstandenda 58
sjómanna, sem farizt hafa á tfma-
bilinu síðan sfðustu söfnun lauk.
Þeir 58 sjómenn sem hér um
ræðir láta eftir sig um 30 ekkjur
og 70 börn. Um 28 foreldrar og 10
einstæðar mæður hafa misst syni
sína.
Það sem hratt þessari söfnun af
stað var slysið er Stuðlaberg fórst
Nordal, sagði í viðtali við Vfsi, að
hann teldi að stefna bæri að fs-
lenzkri óperu, og réttlætti þá
skoðun sína m. a. með þvf, að
hér á landi væri mjög mikið áf
góðum söngröddum. Jón Nordal
bætti því þó við, að vitaskuld
ætti íslenzk ópera enn langt í
land.
Skólastjórinn sagði að því miður
yrðu hin nýju húsakynni Tónlist-
arskólans ekki fullgerð fyrr en í
nóvembermánuði og yrði þangað
til að kenna að Þrúðvangi við
Laufásveg, eins og verið hefir, og
víða út um bæinn á heimilum kenn
með allri áhöfn í Faxaflóanum í
vetur.
Forráðamenn söfnunarinnar hafa
nú kosið nefnd til að vinna með
Dr. Gunnlaugi að úthlutun fjárins,
og sitja í henni Sigurbjörn Einars-
son biskpu, síra Björn Jónsson og
síra Garðar Þorsteinsson.
Bað biskupinn, á fundi með
blaðamönnum í gær, fyrir þakkir
sfnar og annarra nefndármanna,
fyrir þær ágætu undirtektir sem
söfnunin fékk hjá almenningi.
aranna. En þegar nýja skólahús-
ið yrði tekið í notkun myndi verða
unnt að flytja alla kennslu þangað.
Þar fær skólinn að öllu leyti stór-
bætta starfsaðstöðu. Þess er og
vert að geta að hann mun eignast
allmikið af nýjum hljóðfærum, að-
allega flyglum, næsta vor.
Fyrir innan þessar dyr f ráöu-
neytinu er fénu úthlutað.
Sendisveina
vaatar é afgreiðslu VÍSHS húlfan
og allan daginn
Uthlutun hefst um
næstu áramót