Vísir - 13.10.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 13.10.1962, Blaðsíða 8
s V í S í R . Laugartíagur 13. október iou.. Utgefandi: Blaðaótgáfan VISIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði. f lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 llnur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Alvarlegasta vandamálið Á morgun verður haldinn víða um land almenn- ur bindindisdagur, baráttudagur fyrir bindindi og gegn áfengisbölinu. Er það Landssambandið gegn áfengis- bölinu, sem gengst fyrir degi þessum og mun verða leitazt við — með aðstoð blaðamanna og á annan hátt — að vekja þjóðina til umhugsunar um það, hversu hættulega hún er á vegi stödd ,að því er áfengismál- in snertir. Margir þeir, sem telja lítilla aðgerða þörf í þessu máli, benda á tölur þær, sem gefnar eru út við og við, þar sem sýnt er að áfengisneyzla á hvern einstakling í hóp íslendinga sé mun minni en í öðrum löndum. Meðan við séum slíkir eftirbátar annarra þjóða í þessu efni, sé öllu óhætt, og við getum jafnvel hert drykkj- una, án þess að nokkurri sök komi. Menn geti jafn- vel létt aðeins á sér beinu skattana, ef nægilega dug- lega sé drukkið og sem flestir leggist á eitt í þessum efnum. Hér eru íslendingar samt í meiri hættu en þessar tölur gefa til kynna, þv! þær segja aðeins brot sög- unnar. Smyglað áfengi flæðir yfir landið með ýmsum hætti og kemur hvergi fram á skýrslum. Þó er það enn alvarlegra, að það er fyrst og fremst æskan, sem er í hættu í þessu efni. Hundruð, ef ekki þúsundir, æskumanna eru farnir að drekka meira eða minna, til þess að vera menn með mönnum, og þótt engum þeirra sé vitanlega í huga að verða ofdrykkjumenn, verða margir það, áður en þeir hafa gert sér grein fyrir því, hvert stefnir og að glötunin ein er fram undan. Oft hefir á undanförnum árum verið rætt urn efnahagsniál þjóðarinnar og nauðsyn þess, að hún kæmi lagi á búskap sinn og eyddi ekki meiru en hún aflar. Þetta eru vissulega mikilvæg atriði, en verða þó harla Iítilvæg, þegar um er að ræða lífshamingju, beilsu og framtíð f jölda ungra manna, karla og kvenna. Sé gerður samanburður á þessu tvennu, mun mörgum drðast, að tökin, sem áfengisbölið hefir náð á fjölda ungra mánna, sé ískyggilegra vandamál en flest ann- að, sem þjóðfélagið á við að glíma. Þess vegna verða allir góðir menn að vinna heils hugar gegn þessu böli, stöðva frekari útbreiðslu þess og hefja síðan sókn til útrýmingar því. Heilbrigð skemmtun unglinga Segja má, að fyrsta ’skrefið í þessa átt verði stig- ið innan skamms, þegar einn helzti skemmtistaður bæjarins, Lido, verður ætlaður unglingum einvörð- ungu ,og þar verður að sjálfsögðu ekkert áfengi um hönd haft. Það er spor í rétta átt, að kenna ungling- um að skemmta sér án áfengis. Væntanlega verður meira gert af þessu. -• ■"Tgj—nin ■'■■pwm—o——b———————W——1 >^ í þriðju grein sinni >£. segir Anna frá vonbrigðum sínum >£. í Danmörku og if erfiðleikum á leik- skólanum, unz hún vann bug á þeim. |?að lá ævintýraljómi yf- ir skipunum í Reykja- víkurhöfn. Að „sigla“ þýddi að ferðast til ann- arra landa og ég fann til lotningar, þegar einhver sagði: „Ég á að sigla“, því að það þýddi — að fara til annarra landa. Og svo var komið að mér að sigla. Pabbi og mamma höfðu oft tal- að um það, að ég skyldi sigla til Kaupmannahafnar og ganga á leikskóla Konunglega leikhússins og ég var hrifin af þeirri hug- mynd. Að vísu kom stutt tímabil, þegar ég var 16—17 ára, sem ég vildi ekki verða leikkona. Ég sagði við sjálfa mig: — Þú hefur alltaf verið í leikhúsinu frá þvi þú fyrst manst eftir þér, nú er komið nóg af svo góðu. En svo var mamma beðin um að fara í langa gestaleikferð til íslendinganýlendunnar í Winni- peg og þá sagði hún að ég mætti. Endurmirmingar Önnu Borg I leikskólanum koma með til Kanada ef ég lof- aði því á eftir að vera iðin við leikhlutverk mín, svo að ég sagði: — Kannski ég haldi þá á- fram við gamanleikina. Mamma varð nú framkvæmda- stjóri Leikfélagsins og bauð hinum kunna danska leikara Adam Poulsen í gestaleik ti) Reykjavlkur. Hann lék prinsinn 1 „Einu sinni var“ og ég fékk hlutverk prinsessunnar. Adarr Poulsen stakk upp á því að ég færi á leikskólann í Kaupmanna- höfn og það styrkti foreldra mína í þessu áformi. Enn töldu þau þó að ég væri of ung til að fara ein til Hafnar svo að þetta yrði að bíða. En þó fór svo að nokkrum mánuðum síðar fór ég að ganga á leikskólann. Mamma hafði lengi þjáðst af gallsteinum. Loks taldi læknii hennar skynsamlegast að hún legðist á sjúkrahús í Kaup- mannahöfn og því fór ég með henni þangað, þá yrði hvorki hún né ég einmana í Höfn. Danski sendiherrann á íslandi Frank le Sage de Fontenay, sem var góður vinur foreldra minna kom umsókn minni um inngöngu í Konunglega leikhúsið á fram- ''æri. j Kaupmannahöfn hófst nýtt líf. ' Ég hélt þangað með eftir- væntingu og blíðum tilfinningum til Danmerkur, því að foreldrar mínir höfðu dálæti á Danmörku. Þeim mun fremur brá mér í brún Anna Borg sem prinsessan í „Einu sinni var“ þegar ég kom til Hafnar. Þar var ———■———gg«L»-■1 "ffitip-----------------— m"mm m- ■ ■■ »u.....nu ,■ ! ). ) ,1.1 i nl. I ( bl' .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.