Vísir - 13.10.1962, Blaðsíða 16
VISIR
Laugardagur 13. október 1962.
Ungur
málari
sýnir
í dag kl. 2 e.h. opnar 28 ára
listmálari málverkasýningu í Lista-
mannaskálanum. Er það Bjarni
Jónsson. Bjarni sýnir alls 73
myndir, olíumálverk og lakkmynd-
ir og eru þær allar óhlutlægar,
abstrakt. Þetta er önnur sýning
Bjarna. Fyrstu sýningu sína hélt
hann árið 1957.
Sýningin verður opin fram til 28.
október.
Fyrsta bankaútibú
t dag opnar Búnaðarbankinn til
afgreiðslu nýtt útibú að Vestur-
götu 52 og er það fyrsta banka-
útibúið, sem staðsett er í Vestur-
bænum. Þetta er þriðja útibú
bankans í Reykjavík, en hin eru
að Laugavegi 3 og 114. — Einnig
stendur til að opna útibú i Bænda-
höllinni.
Eyrst um sinn verður starfs-
fólk tvennt, Helga Kristinsdóttir,
fulltrúi, sem hefur á hendi stjórn
útibúsins, og Böðvar Magnússon
gjaldkeri. Verður útibúið opið kl.
13 til 18.30 fimm daga vikunnar
og 10—12 á laugardögum.
Innrétting er hin vistlegasta, ein-
föld og íburðarlaus. Á götuhæð er
afgreiðslusalur, skrifstofuherbergi,
kaffistofa, geymsla og snyrting. í
kjallara eru skjalageymslur, með
nýrri gerð af skápum, sem gerðir
Nú hefur verið lýst opn-
un hins nýja Þrengsla-
vegar, sem liggur yfir
sunnanverða Hellis-
heiði. Miklar vonir eru
bundnar við þennan veg
og má gera ráð fyrir að
á næstu árum verði
hann ein aðaiþjóðleiðin
til höfuðborgarinnar. —
Einmitt þess vegna ætti
það að vekja athygli
margra, að með tilkomu
Þrengslavegar er einn
merkasti heliir landsins
kominn í alfaraieið.
Rétt þegar komið er yfir
fjallabrúnina, þar sem vegurinn
Framh. á bls. 5.
eru í Rafha og rúma um helmingi
meira en venjulegir skjalaskápar,
sem taka sama rúm.
Magnús Jónsson, bankastjóri,
hélt ræðu við opnun útibúsins í
gær. og sagði meðal annars: „Það
heyrast oft raddir þess efnis að
bankarnir eyði óhóflegu fé í rekst-
ur sinn. Hvað útibúunum viðkem-
ur er þetta á misskilningi byggt.
Það er ekki fyrst og fremst um
það að ræða að bankarnir séu að
þenja út rekstur sinn, heldur er
verið að leitast við að veita vax-
andi borg bætta aðstöðu til banka-
viðskipta.“
Formaður bankaráðs er Jón
Pálmason og mælti hann einnig
nokkur orð. Sagði hann meðal
annars: „Stjórn bankans hefur
fært mikla fórn, er hún setur þetta
Framh. á bls. 5.
Þessi mynd er tekin
azt hafa vegna hruns
Raufarhólshelli og sést á henni annað af þeim tveim opum, sem myn
Ljósm. R. Þ. Guði
Sjómenn fái læknisskoðun
áður en þeir halda át
Dauði brezks sjómanns við. ís-
landsstrendur hefur vakið þær
kröfur að sjómenn verði allir látnir
ganga undir læknisskoðun áður en
þeir fara út á sjó í langa útiveru.
Hinn 56 ára gamli Robert Riley
slasaðist um borð í togaranum
Ross Karthoum fyrir skömmu.
Skipstjórinn komst í samband við
lækni um borð í herskipinu Dun-
can. Læknirinn lagði á ráðin um
meðferð hins slasaða. Þegar Riley
versnaði var aftur reynt að hafa
samband við -Duncan en það tókst
ekki. Skipstjórinn ákvað þá að
fara til Akureyrar, en áður en
hann komst þangað var sjómaður-
inn látinn.
Það kom síðar í ljós við krufn-
ingu að maðurinn var lifrarveikur
og hafði auk þess alvarlega botn-
langabólgu.
Dennis Welch formaður sam-
taka yfirmanna á togurum í Grims
by lýsti því yfir þegar fréttist um
dauða sjómannsins að sjálfsagt
væri að láta sjómenn undirgangast
læknisskoðun áður en þeir færu
út á sjó. Hann bætti því við að nú-
verandi fyrirkomulag legði alltof
þunga ábyrgð á herðar skipstjór-
um.
son,
útibúsins í gær: Talið frá vinstri: Stefán Hilmarsson, bankastjóri, Böðvar Magnús-!
gjaldkeri, Jón Pálmason, form. bankaráðs, Helga Kristinsd., fulltr., Magnús Jónss., bankastj. j
opnun
Bindindisdagurinn á morgun
a
Ákureyri
Undanfarið hafa
verið talsverð
og ólátum
Á morgun er haldinn almennur
bindindisdagur víða um land. Er
hann haldinn af Landssambandi
gegn áfengisbölinu og er dagur
þessi haldinn i annað sinn í ár.
Á morgun kl. 8,30 síðdegis verð-
ur haldin samkoma i Dómkirkj-
| unni. Hefst hún á því að séra Jón
Auðuns heldur upphafsorð. Síðan
flytur Magnús Jónsson alþingis-
maður erindi, Kristinn Hallsson
óperusöngvari syngur einsöng,
Skúli Guðmundsson alþingismaður
flytur erindi, Ingvar Jónasson leik-
ur einleik á fiðlu og séra Óskar J.
Þorláksson flytur lokaorð.
Samkomur verða haldnar víða
um land og verða víðast með svip-
uðu sniði.
Tilgangur starfsemi samtakanna
er að reyna að snúa almennings-
álitinu í landinu gegn áfengis-
neyzlu.
brögð að spellvirkjum
I unglinga, á götum og í húsu... á
I Akureyri. Er það jafnt inni í bæn-
um sem niðri á Oddeyrinni.
Meðal annars hafa verið brotn-
ar rúður í húsum, rifnar niður
grindur og girðingar við hús og
fleira þess háttar. Þá hafa lögregl-
unni borizt kærur frá ýmsum bæj-
arbúum út af ólátum og háreysti
krakka og unglinga á götum bæj-
arins á síðkv'Jldum. Á einum stað
var bortizt inn í hús til einstæð-
ings manns sem var sjúkur, og
virðist tilgangurinn hafa verið sá
einn að valda spjöllum. I síðast-
nefndu tilfellinu náðist 14 ára
gamall piltur, sem játaði á sig
verknaðinn.
í nokkrum öðrum tilfellum hef-
ur lögreglan haft hendur í hári
krakka og unglinga, sem ýmist
hafa verið staðin að verki með
spjöll og ólæti, eða þá að þau hafa
játað að vera völd að slfku athæfi.