Vísir


Vísir - 20.10.1962, Qupperneq 1

Vísir - 20.10.1962, Qupperneq 1
VISIR r 20. október 1962. - 241. tbl. ý. Vísir hefir ritað um nautnalyfjamálið síðustu daga vegna að blaðið er þess fullvíst að hér er mikið vandamál á ferðum. Nú hafa yfirvöldin gripið til aðgerða í málinu. í gær fyrirskipaði Saksóknari ríkisins málsrannsókn vegna deyfi lyfjasölu. Og landlæknir kveður sér hljóðs í Vísi í dag. u. Vísir fagnar því að gagngerð rannsókn er nú hafin í þessu éfni. DtYfíL Yf CKKIFUNDIZT í SKIPUM — Við höfum aldrei orðið varir við smygl eitur- eða deyfilyfja með íslenzkum skipum eða flugvélum, sagði yfir- maður Tollgæzlunnar, Unnsteinn Beck, við Vísi í morgun. Nokkr- um sinnum höfum við gert sérstaka leit í ís- lenzkum skipum að deyfilyfjum, m.a. í tog- urum, samkvæmt vís- bendingu. En þær rann- sóknir hafa ekki borið árangur. — Þetta mál er erfitt við- fangs, því eiturlyf eru þess eðl- is að auðvelt er að smygla þeim, sökum þess hve þau eru fyrirferðarlítil. Hér á landi skortir okkur leyniþjónustu í tollgæzlunni, rannsóknardeild, sem ynni í samráði við rannsóknardeild lögreglunnar. Tíðkast slíkar deildir hjá flestum þjóðum. Fyrir um það bil tveimur ár- um, sagði Unnsteinn, virtist bera allmikið á deyfilyfjum i umferð og var talið að eitthvað af þeim bærist með togurum. Var auðvelt að kaupa lyfin i höfnum bæði í Þýzkalandi og Englandi þar sem þau fengust án lyfseðils. Er því slíkur inn- flutningur illviðráðanlegur. Allt öðru máli gegnir um hin eigin- Iegu eiturlyf, narkotika. Qegn sölu þeirra og dreifingu berst fjölmennt aiþjöðlegt lögreglu- lið, en þó hefir árangurinn þar ekki verið alltof góður. Eitt af þeim 27 lyfjum, sem lögreglan hefir tekið af gæzluföngum. (Ljósm. Vísis, I. M.) smr vtmsim' ToBgædumar JC HCf TCKID DCYfíl Yf Eftirfarandi viðtal átti Vísir í gær við mið- aldra mann, sem haldinn er sjúklegum þorsta i nautnalyf þau, sem blaðið hefir gert að umræðu- efni síðustu þrjá daga. Af eðlilegum ástæðum er nafni hans haldið leyndu. / SJÖ AR" — Mín orð hafa ekkerí að segja. Það lærir eng- inn af reynslu annarra. Ekki hef ég gert það. Að ég geri það núna, eftir að hafa notazt við deyfi- lyf í meira en sjö ár, er ótrúlegt. — Mig langar til að les endur Vísis geti orðið nokkurs vísari af reynslu þinni. — Þetta er hægur dauði fyrir mig og fjjlskyldu mína. Ég get ekki rifið mig upp úr þessu. Og ég get ekki verið án fjölskyldu minnar. Konan mín hefur alltaf látið undan þrábeiðni minni um að vera kyrr, og þess vegna á hún Iítið betri örlög í vænd- um, en ég. Kannski verri. — Hvers vegna? — Mín dómgreind sljóvgast, og bráðlega kannske eftir fimm til sex ár, með sama áfram- haldi, verð ég hættur að hugsa rökrétt. Á sama tíma er hugsun hennar og skilningur óbreyttur, þótt hún verði orðin þreytt og mædd. Hún hefur ekki um ann- að að hugsa en mig. Hún segir Framh. á 5. síðu. Tenging sæstmans tefst Vegna veðurs við Vestmanna eyjar, hefur ekki enn verið hægt að tengja nýja sæsímann frá Ameríku, sem nú er lokið við að leggja. Sæsimalagningarskip ið Neptune, sem tegt hefur strenginn frá Nýfundnalandi um Grænlanr til ísland, kom til Vestmannaeyja i fyrradag og hefur síðan beðið betra veðurs til að tengja. Tenging þessi fer fram úti á sjó, 2—3 mílur suður af Vest- mannaeyjum. Verður tengt við sæsímalandtakið, sem lagt var i fyrra. Fer það nú eingöngu eftir ' veðri hvenær tengingin fer t'ram, en hún mun taka um einn dag. Blaðið hafði tal af Jóni Skúla- syni yfirverkfræðingi hjá Lands símanum og skýrði hann svo frá að í sæsíma þessum yrðu 24 tal- sambönd. Strengurinn er svokall aður „coaxiaI“ strengur. Er einn vír í miðjunni, síðan kemur ein- angrun, en utan á henni er málmþynna. Þar utan um koma svo styrktar- og hlífðarstrengir. Er strengurinn þykkastur þar sem mest hreyfing er á sjónum, en grennri á miklu dýpi. Framhald ö öls 10 - II T ' » I LANDLÆKN- IR KVEBUR SÉR HLJÓÐS Herra ritstjöri. í blaði yðar frá 17. þ. m. er grein með yfirskriftinm „Kæru- leysi í útgáfu á deyfilyfseðlum“. Er þar aðallega rætt um útgáfu lækna á lyfseðlum af þessu tagi. í greininni er greint frá viðtali blaðamannsins við form. Lækna félags Reykjavikur, Arinbjörn Kolbeinsson lækni, og haft eft- ir honum, að nauðsyn beri til að setja „deyfilyf“ á skrá, „þann ig að hægt sé að fylgjast með því hverjir fái þessi Iyf og hver skrifi Iyfseðilinn“. Slík skrá yfir deyfilyf og nokkur .vandi Iyf, sem hætta er talin á, að notuð verði sem nautnalyf, hefur um áratuga skeið verið haidin hér á landi og með því fylgzt, hvaða lækn- ávisuðu slíkum lyfjum og Ihverjir notuðu þau. Er skrá þessi með sama sniði og tíðkast á öðrum Norðurlöndum. Hefur þetta eftirlit hvað eftir annað Ieitt til þess, að stöðvuð hefur ■ verið óhæfiieg útgáfa lyfseðla j. á slík lyf. Framh. á bls. 5. k ^ ..■!■■■ —...............

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.