Vísir - 22.10.1962, Blaðsíða 10

Vísir - 22.10.1962, Blaðsíða 10
10 LINCOLN — Framhald af bls. 8. fíapoleon mikla árið 1803, fyrir þrælahaldinu. Að kvöldi 16. október 1854 hélt Lincoln ræðu á fjölmenn- um fundi gegn lögum þessum í borginni Peoria í Illinois. Ræðan varð einn af hátindum ferils hans, og hún sýndi almenningi, að nýr Lincoln var kominn til sögunnar. Hann talaði af mikilli alvöru og gerði í fyrsta skipti fullkomna grein fyrir afstöðu sinni til þrælahaldsins. Hann hafði aldrei haldið ræðu, þar sem eins greinilega kom fram, hve mál þetta var honum hjart- fóigið. Upp frá þessum degi og þar til hann varð forseti 1861, hélt Lincoln margar ræður um þræla haldið. í hinu fræga kosninga- einvlgi hans og Stephens O. Douglas um sæti í öldun adeild inni árið 1858, fluttu þei/ meira en 100 ræður hvor. Afstaða Lincolns var þessi í aðalatrið- um: Þrælahald siðferðilega rangt. Þrælahald er siðferðilega rangt og móðgun við æðstu hug sjónir Bandaríkjanna, eins og þær koma fram í Frelsisyfirlýs- ingunni. En þrælahaldið, sem þegar var til, er hið nýja ríki var stofnað, varð að hljóta við- urkenningu í stjórnarskránni. Þrælahaldararnir höfðu þess vegna nokkur réttindi sam- kvæmt stjórnarskránni, að þvi er þrælana snerti, og þjóðþingið hafði enga heimild til að skipta sér af þrælahaldinu fylkjum þeim, þar sem það var stundað: En þjóðþingið hafði heimild og því bar skylda til að girða fyrir útbreiðslu þrælahaldsins og með því að halda þvl innan vissra takmarka, mátti vænta þess að því yrði útrýmt um síðir. Þetta var meginatriði í augum Lincolns — að girt yrði fyrir frekari útbreiðslu þrælahaldsins og unnið væri að því að uppræta það smám saman. En hvernig átti að vera unnt að uppræta það? Hvernig átti að vera hægt að veita þrælun- um frelsi? Lincoln vissi ekki sjálfur á þessum árum, hvernig leysa átti þann vanda. Hann taldi, að nýlendustofnun í Líberíu gæti verið lausn að nafn inu til, en hún mundi ekki verða framkvæmanleg. Kerfisbundin lausn þrælanna, sem látnir yrðu lausir stig af stigi, væri ef til vill bezta úrræðið, en hann taldi ekki mikla von til þess, að þrælaeigendur mundu af frjáls- um vilja vilja sleppa tangarhaldi á þrælum sínum. „Þetta vanda- mál er mér ofviða. Megi guð í miskunn sinni veita okkur lausn þess“, skrifaði Lincoln árið 1855. Vandamálið var erfitt. Alla tíð, meðan Lincoln glímdi við þennan vanda, gerði hann sér grein fyrir þeim mörgu erfiðu úrlausnarefnum, sem við mundi að fást, ef svertingjunum væri skyndilega veitt frelsi og væri varpað út í bandaríska þjóðfélagið sem frjálsum mönn- um. Hann vissi nefnilega mæta vel, að bæði i Suður- og Norður ríkjunum var mikill fjöldi manna, sem voru ekki fúsir til að viðurkenna jafnrétti kynþátt- anna — hvað þá að framkvæma það í daglegu lífi — þótt þeir væru í sjálfu sér andvígir þræla haldinu. Lincoln barðist ekki sjálfur fyrir algeru jafnrétti kynþátt- anna, eins og menn líta á það atriði nú á dögum, en það var ósveigjanleg skoðun hans, að all ir menn ættu að hafa sömu möguleika til að bjarga sér, hver sem hörúndslitur þeirra væri. Það væri skýlaus réttur allra manna, sem ekki yrði frá þeim tekinn. Hann komst hvað eftir annað svo að orði um þetta at- riði: „Svertinginn á að hafa jafn an rétt hverjum öðrum manni, hvítum eða svörtum, til að neyta þess brauðs, sem hann hef ir unnið sér inn með höndum sínum". Borgarastríð brýzt út. Þegar borgarastyrjöldin brauzt út tæpum tveim mánuðum eftir að Lincoln hafði verið kjörinn forseti, var um að tefla einingu ríkisins og útbreiðslu og eflingu undirstöðuatriða Iýðræðisstjórn- ar. En borgarastyrjöldin snerist einnig um þrælahaldið, því að það var helzti ásteytingarsteinn inn, sem hafði orsakað styrjöld- ina. Eftir því sem æ fleiri fylki í norðurhluta landsins — Norð- urríkin — veittu því stuðning, að þrælum skyldi veitt frelsi, helgaði Lincoln sig þessu máli af æ meiri áhuga, því að hann óskaði einnig, að allir menn væru frjálsir. Svo fór, að þetta atriði varð honum mikilvægara en nokkurt annað. Lincoln vonaði, að unnt mundi verða að..:veita þrælunum frelsi smám saman. Hann beitti sér fyrir því; að stjórnin í Wash ington bætti tjón þrælaeigenda í þeim fylkjum, sem vildu fallast á slíka áætlun, og hvatti leið- toga þeirra þrælafylkja, sem sneru ekki baki við stjórninni, til að hegða sér í samræmi við þetta. Jafnframt lagði hann til, að stjórnarskránni yrði breytt í samræmi við þetta. Lincoln hug leiddi jafnvel möguleikann á stofnun nýlendu og gerði ráð- stafanir til, að athugaðir yrðu möguleikar á að framkvæma slíka fyrirætlan, svo og til að vekja áhuga leiðtoga svertingja fyrir máli þessu. Þrælunum veitt frelsi. Snemma sumars 1862 ákvað Lincoln að láta til skara skríða, þegar tíminn væri hentugur til þess. Það varð í september á sama ári, þegar Suðurríkjaher- inn var neyddur til undanhalds eftir blóðuga orustu við Antie- tam í Maryland-fylki. Þann 22. september gaf Lincoln út bráða birgðaboðskap um að þrælunum væri veitt frelsi, og honum var svo fylgt eftir með endanlegri tilskipun um sama efni, sem gef in var út skömmu síðar eða 1. janúar 1863. Lincoln sté þetta afdrifaríka skref, sem snerti næstum fjórar milljónir svertingjaþræla, í krafti þess valds, sem honum var veitt sem æðsta yfirmanni hers og flota. Slíkt skref var aðeins hægt að réttlæta sem hernaðarráðstöfun, sem gerð væri til að draga mátt úr fjand- manninum og stuðla að einingu ríkisins, því að stjórnarskrá Bandaríkjanna heimilaði ekki forsetanum að gera þetta. Söguleg tilskipun. Boðskapur Lincolns og tilskip un var í samræmi við skoðanir hans, en Lincoln vildi gera öll- um mönnum Ijóst, að hann hefði enga heimild til að rökstyðja opinberar athafnir sínar með persónulegum tilfinningum sín- um. Hann komst svo að orði 4. april 1863: „Ég er í eðli mínu á móti þrælahaldinu. Ef það er ekki ranglæti, er ekkert ranglæti til. Ég man ekki, hvenær ég var ekki þeirrar skoðunar. Samt hefi ég aldrei talið að forsetavaldið gæfi mér ótakmarkaðan rétt til opinberra áthafna á grundvelli þessarar skoðunar minnar". Þótt boðskapurinn veitti ekki öllum þrælum frelsi samstund- is, þar sem hann náði aðeins til þeirra svæða, þar sem uppreisn geysaði, var hann einn af hátind um borgarastyrjaldarinnar. — Lincoln taldi hann mikilvægustu stjórnarathöfn sína og mikilvæg asta atburð 19. aldar. Hann olli aldahvörfum í framförum mann- kindarinnar og varð upphafið á endalokum þrælahaldsins í Bandaríkjunum. Hann breytti öllu eðli styrjaldarinnar og gerði hana að miklu leyti að krossför í þágu frelsisins, og hann veitti þeim von og uppörvun, sem báru fyrir brjósti frelsi manna hvarvetna í heiminum. En starfið í þágu frelsisins var ekki á enda með boðskap þessum. Næsta rökrétta skrefið var að skrá frelsi þetta í stjórn arskrá landsins. Það gerðist 18. desember 1865, þegar samþykkt var 13. breytingartillagan við stjórnarskrána, þar sem segir, að „hvorki þrælahald né ófrjáls þjónusta skuli látin viðgangast í Bandaríkjunum, nema sem refs ing fyrir afbrot“. Bækur — Framhald af bls. 9. Sögufélagsins, sem flytur að þessu sinni þetta efni meðal annars: Álits skjal C. E. Bardenfleths um stjórn íslands 1849, Upphaf kröfunnar um þingræði á Islandi eftir Odd Didrik- sen, Um tygilstyrkinn í íslenzkum heimildum eftir próf. Magnús Má Lárusson, Bréf Magnúsar Gizurar- sonar Skálholtsbiskups í Niðarósi 1232 um tygilsstyrk, Fornubúðir eftir Gísla Sigurðsson, Athugasemd um Arons sögu eftir Hermann Páls son, Þróun í húsaskipun Islendinga að fomu, eftir Nönnu Ólafsdóttur, Trú á hrjósturvldd og útilegumenn eftir Björn Sigfússon og sitthvað fleira. Sumum greinanna fylgir stuttur útdráttur á ensku eða þýzku. Ritstjórar Sögu eru Björn Sig- fússon og Björn Þorsteinsson, en bækurnar eru allar prentaðar í Isa- foldarprentsmiðju. 4 dagar eru eftir þar til dregið verður í Skyndi- happdrætti Sjálfstæðis- flokksins. Notið einstakt tækifæri. Drætti verður ekki frestað. V í SIR . Mánudagur 22. október 1962. Fiskileit — í’sfeií éa^sins Framhaid af bls. 9 fullkomnari leitartækjum en hag kvæmt er að hafa á veiðiskip- um, hægt er að hagnýta þekk- ingu fiskifræðinga með góðum árangri og áhafnir skipanna fá mikla þjálfun í að fylgjast með fiskigöngum. Um þorskveiðarnar er það að segja, að það er varla til ennþá vísir að verkaskiptingu. samsvar andi þeirri, sem lýst hefur verið hér að framan. Að vísu hafa verið gerð út skip til að leita nýrra fiskimiða, en sú útgerð hefur verið stopul og staðið að- eins skamma hríð í einu. Eng- inn vafi er á því, að sú tak- markaða leit, sem gerð hefur verið, hefur gefið margfaldan hagnað. Þannig hafa f leitar- ferðunum fundizt auðug fiski- mið bæði við Grænland og Ný- fundnaland, sem togaramir hafa ausið af síðan, þó úrtök hafi að vísu orðið. Það er tæplega efamál, að verkaskiptingin á þorskveiðun- um milli leitarskipa og veiði- skipa, mundi auka aflamagnið til muna, alveg eins og síldar- aflann. Þetta á ekki sízt við um veiðar togaranna, en mikið af tíma þeirra fer í Ieit að fiskin- um, bæði hér við land og á fjarlægum miðum. Stöðug út- gerð eins togara til fiskileitar er fyrirtæki, sem telja má víst að gæfi margfaldan hagnað í þjóðarbúið. E. L v. yrði útkom- an bezt með því að gera út 4 af ca. 45 togurum eingöngu til fiskileitar, og væru tveir á fjar- lægum miðum og tveir á heima- miðum. En réttara mun að byrja með einn og sjá hvað set- ur. •Uinn •• ......... , < b'.j : Það, sem einkum veldur þvi, hvað verkaskipting milli skip- anna er skammt á veg komin, mun ekki vera vantrú á gildi hennar, heldur miklu fremur tog streita um, aver eigi að bera kostnaðinn af útgerð leitarskip anna. Að vfsu er undarlegt, ef svo er. Ríkissjóður mun stór- græða á síldarleitinni í sumar, þó að hann greiði allan kostnað við hana, þar sem kostnaðurinn kemur margfaldur aftur sem hækkun á skatt- og tolltekjum í kjölfar meiri veiði. Utgerðar- menn hefðu grætt á síldarleit- inni, þó að þeir hefðu orðið að skipta kostnaðinum á milli sín, og sama er að segja um sjó- menn. Hér.fór vel, þar sem rík- issjóður var svo hagsýnn að kosta leitina, þó líklega hefði mátt gera betur. Útgerð togara til fiskileitar er dýrari en síldarleitin, og því vex mönnum sú útgerð meira í aug- um. Það mun þó vera eins um þessa útgerð og síldarleitina, að fleiri en einn aðili mundi hafa af henni mikinn hagnað, þó að hanr, bæri allan kostnað, eða a. m. k. ríkissjóður og útgerðarfé- Iög togaranna. Hagsmunir rík- issjóðs liggja hér ekki eingöngu í auknum skatt- og tolltekjum, heldur einnig í því að losna við að greiða skuldir togaranna, en slíkar greiðslur hafa numið milljónatugum á undanförnum árum, einkum eftir að togaraút- gerðin varð að taka á sig skakka föll af útfærslu landhelginnar. En af einhverjum ástæðum veigra báðir aðDar sér við kostn aðinum og ætlast sennilega hvör um sig til þess, að hinn hafi forgöngu í málinu og kosti leit- ina. Þetta er mál, sem þetta Al- þingi þyrfti að láta til sín taka og finna lausn á. Sparsemi get- ur stundum verið dýr, og mun hér vera gott dæmi um það. Jón E. Þorláksson. Vbxmha'O vf bis. .. „Hvað át£n við?“ „Þetta á skylt við tlVinninj#: en láttu það ekki fara lengra", segir Gógó og er nú prakkaraleg- ur í framan eins og svo oft á „vellinum" í keppni. „Knattspyrna er list samkvæmt þessu — ekki svo?“ „List eða ekki list — hún reynir á meira en skrokkinn — hún er spurning um að nýta þetta fína, sem menn fara dult með“. yiÐ DRUKKUM export-kaffið með ólund og horfðum út um gluggann á hótelinu niður á Kaupangstorgið og á kaupfélags- bygginguna og þaðan á Verzlun- ina Hamborg og gömlu Gud- manr, jndlun á horninu á Hafn- arstræti og Kaupangsstræti. Þeir voru að loka búðunum. „Fluttistu ekki suður fyrir fá- um árum?“ „Ég skrapp þangað til tveggja ára dvalar, ég er bólstrari eins og þú veizt, vann hjá Öndvegi í Rvík ..... Það var aldrei mein- ingin hjá mér að yfirgefa Akur- eyri“. Ragnar lék með Hafnfirðingum, þegar hann var fyrir sunnan, og ekki er til sá knattspyrnumaður og kattspyrnu-unnandi á Suður- nesjum, sem kannast ekki við nafn hans. „Hann er úrvals- knattspyrnumaður", sagði knatt- spyrnu-gagnrýnir, sem tekið er tillit til í Reykjavík. „Þeir fara fáir í skóna hans“, bætti hann við. „Hann var alltaf í góðu formi — hann er þannig gerður þrátt fyrir allt“, sagði annar fót- boltakönnuður hér. I viðtali var Stanley Matthews,. brezka knatt- spyrnustjaman, eitt sinn sppurð- ur að því, hvað væri knattspymu manni nauðsynlegast gegnum allt harkið. „100% táp og hreysti“, svaraði Stanley. © „IVrOTARÐU eða notaðirðu legg- hlífar?" „Hætti því snemma", sagði Gógó, „þær eru klossaðar og bara til trafala". „Aldrei fengið spark?“ „Slapp alveg við það — hef aldrei meiðzt". „Segðu mér — hvernig voru viðbrögð þín fyrir keppni?" „Leikgleði mætti kannski kalla það — kannski svolítið spenntur fyrst þegar á völlinn kom, en það lagaðist strax og farið var að spila“. „Ekkert hugsað um áhorfend- ur?“ „Ekki minnsta, náttúrlega geta þeir létt undir — mikið Iifandi“. „Og þegar hallaði á þitt lið i Ieiknum — hafði það áhrif á þig?“ „Maður hugsaði aðeins um að komast áfram með boltann, með- an flautan stöðvaði ekki“. „Hefurðu verið dæmdur úr leik?“ „Ég hef fengið áminningu, en ekki verið rekinn af velli“. „Þegar þú skoraðir mark — vissirðu það fyrirfram?" „Ég fann það vanalega á mér, ef það var banaskot", sagði hann. - s t g r. Oðins-félagar Skorað er á Óðins-félaga að gera skil sem allra fyrst i Skyndi happdrætti Siálfstæðisflokksins. Hægt er að gera upp í skrif- ;tofum álfstæðisflokksins við Austurvöll. M Miin ,«r

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.