Vísir - 23.10.1962, Page 1

Vísir - 23.10.1962, Page 1
VÍSIR Penfield til Guðmundor 1 morgun gekk J. Penfield sendi- herra Bandaríkjanna á íslandi á fund Guðmundar í. Guðmundsson- ar utanríkisráðherra. Skýrði bandaríski sendiherrann utanríkis- ráðherra frá boðskap Kennedys í gærkvöldi og þeim aðgerðum sem Bandaríkjamenn munu taka í sambandi við Kúbumálið. Ræddust þeir við um alþjóðastjórnmál góða stund. Sendiherrar Bandaríkjanna um allan heim gengu í morgun á fund ríkisstjórna þeirra landa sem þeir eru sendiherrar hjá og skýrðu frá sjónarmiðum Bandaríkjastjórnar í K.'.bumálinu. 52. árg. — Þriðjudagur 23. október 1962. — 243. tW. RUSSAR KÆRÐIR VEONA ÁRÁSA RUNDIRBÚNINGS Kennedy Bandaríkjamenn hafa ákveðið að síöðva alla vopnaflutninga til Kúbu. Tilkynnti Kennedy forseti þessa ákvörðun í áhrifa- mikilli ræðu sem hann flutti í útvarp og sjónvarp í gærkvöldi. í nótt raðaði f jöldi banda rískra varðskipa sér hring- inn í kringum þessa eyju í Karahiska hafinu og munu stöðva hvert skip sem sigl- ir áleiðis til hennar og krefjast þess að fá að leita að vopnum. Hér er ekki um algert hafnbann að ræða, því að skip sem ekki hafa vopn innanborbs munu óhindr uð fá að sigla til ákvörðunarstað- ar síns. Finnist hins vegar vopn í þeim, verður þeim snúið til baka til heimalands síns Þá hefur stjórn Bandaríkjanna kært stríðsundirbúning Rússa á Kúbu fyrir Öryggisráðinu og kall- að saman fund í stjórn samtaka Ameríkuríkjanna til að ræða þá hættu, sem öryggi Ameríkuríkja stafar frá stríðsúndirbúningi komm únista á Kúbu, Hvert skip stöðvað. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið hefur skýrt frá því, að herskip muni stöðva hvert einasta skip, sem er á siglingu til Kúbu, jafnt rússnesk og annarra þjóða skip. Hlýði þau ekki fyrirmælum um að stöðva og láta leit fara fram, muni þau skotin niður. Ek: var vitað í morgun um neitt skip, sem hefði verið stöðvað. Her Bandaríkjanna á verði. RSeða Kennedys kom eftir nokk urra daga óró og orðróm um að Bandaríkjamenn hygðust jafnvel gera innrás á Kúbu. Jafnframt þess um aðgerðum á hafinu umhverfis Kúbu hefur öllu herliði Bandaríkj- anna hvar sem er í heiminum verið skipað að standa á verði og vera við öllu búið. í ræðu sinni skýrði Kennedy frá þvi, að þann 11. október hefðu honum borizt í hendur óyggjandi upplýsingar um það að vígbúnað- ur Kúbu væri ekki einvörðungu i varnarskyni, heldur væri unnið að því að koma upp hættulegum árás a/ ækistöðvum á eynni. Sagði hann að komið hefði verið upp bæki- stöðvum fyrir flugskeyti á Kúbu sem geta flutt kjarnorkusprengjur um 1000 mílna vegalengd og þýð- ir það að Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, Panamaskurður og Kanaveral höfði er innan skotvídd ar þeirra. Þá er einnig verið að vinna við smíði eldflaugastöðva á Kúbu fyr- ir langdrægar eldflaugar, sem geta náð allt norður að Hudson-flóa og suður að Lima, höfuðborg Peru. Blekkingar Rússa. I Einleikarinn kominn Kenr.edy sagði að þetta sann- aði, að Rússar væru að koma sér upp öflugri árásarstöð á Kúbu og Framh. á bls. 5. kvöldi, er Fritz Weisshappel tók á móti ungverska fiðluieikaran- um Bela Betrehöy á flugvellin- um. Hann mun leika með Sin- fóníuhljómsveitinni á næstu hljómleikum hennar á fimmtu- daginn kemur. Mun hann leika Synphonie Espagnole, eftir Lalo. Betrehöy mun æfa með hljóm sveitinni á morgun, en hér dvelst hann til föstudagsmorg- uns. Verður bændaskatturínn vegna Sögu framlengdur? Forráðamenn Bænda- hallarinnar hafa farið þess á Ieit við Alþingi að það framlengi hálft prósent gjaldið til bygg- ingar Bændahallarinnar, sem sett var 1958, til fjögurra ára til viðbótar. Jafnframt eru forráða- menn Bændahallarinnar að leita fyrir sér erlendis um 30 milljón króna fast lán. Sæmundur Friðriksson for- maður byggingarnefndar Bænda hallarinnar tjáði Vísi í morgun að Bændahöllin skorti fé fyrir afborgunum og stofnkostnaði. Væri ætlun þeirra að hálfa pró- sentið færi til afborgunar en fasta lánið, ef það fæst, fari til stofnkostnaðar. Sæmundur kvaðst vilja að það kæmi skýrt fram, að bændur borga þetta hálfa prósent sjálfir. Það var fyrst sett í lög um búnaðar- málasjóð árið 1958 og gilti í fjögur ár., Nú þarf að fram- lengja gjaldið. Um lántökur erlendis sagði Sæmundur: Við gerum okkur góðar vonir um að fá lánið. — BændahöIIin fékk í fyrrasumar stórlán erlendis til byggingar- framkvæmdanna. FeBgar stórslasa mann á Siglufírði Það bar til tíðinda norður á Siglufirði snemma á sunnudags- morguninn að ungur maður var kjálkabrotinn og brotnar úr honum framtennurnar. Maðurinn var flutt- ur til lækninga í Reykjavík í gær og málið þegar kært. Þykir það sérstaklega í frásögur færandi að feðgar tveir unnu þetta verk í sameiningu og notuðu bæði til þess hendur og fætur, að því er hinn slasaði maður tjáði lögreglunni á staðnum. Menn þessir eru allir frá Siglu- firði og höfðu verið ölvaðir að- faranótt sunnudagsins. Á sunnu- dagsmorguninn kom til þessara slagsmáh og voru feðgarnir á móti unga manninum einum. Talið er að þeir hafi þótzt eiga eitthvað sökótt við hann frá fyrri viðskipt- um. Fólk vaknaði í næstu húsum við viðureign þeirra úti á götu og gerði lögreglunni aðvart. Sem geta má nærri, af því sem sagt hefur verið, var ungi maðúrinn hroðalega útleikinn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.