Vísir - 29.10.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 29.10.1962, Blaðsíða 8
8 VIS I R . Mánudagur 29. október 1962. VÍSIB Utgefandi: Blaðaútgáfan VISIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinssbn. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði. í teusasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Sigur Kennedys Þær fregnir bárust út um heiminn í gærkvöldi, að Krúsév hefði tilkynnt Kennedy að allar rússnesku árásarstöðvarnar á Kúbu skyldu eyðilagðar undir eft- irliti Sameinuðu þjóðanna. Þar með hefir Kennedy unnið mikinn sigur í Kúbudeilunni. Bandaríkin fá fram sitt mál skilyrðis- iaust. Sovétríkjunum hefir verið settur stóllinn fyrir dymar. Ríkisstjórnin í Washington má vera mjög ánægð í dag, því þróun mála hefir orðið eins hagstæð og hún framast gat orðið fyrir Bandaríkin. Forsenda Krúsévs, að hafnbanninu verði aflétt, skiptir hér engu máli, því það var í upphafi einungis sett á til þess að knýja fram þessar málalyktir. Atburðir gærdagsins endurspegla tvær mikilvæg- ar staðreyndir. í fyrsta lagi eru þeir vitni um að Sov- étríkin virðast vilja leggja sig í líma við að komast hjá ófriði og átökum við Bandaríkjamenn. í öðru lagi sýna þeir að Bandaríkin — og Vesturveldin — eru sterkari en þau sjálf ef til vill hyggja. Loks tóku Bandaríkin fmmkvæðið í kalda stríð- inu og settu Sovétríkjunum lokakosti. Sú framkvæmd bar ávöxt og Sovétríkin tóku þeim kostum með skyn- semi og stillingu. Og lokin verða vafalaust þau, að á kemst fundur æðstu manna, þar sem reynt verður að komast að víðtækara samkomulagi en um Kúbu eina. Hvort sá fundur verður árangursríkur er ann- að mál. Steinrunnin fornaldardýr Það sýnir hve okkar eigin íslenzku kommúnistar eru orðin steinrunnin fornaldardýr að eftir að Kastró hefir lýst sig fúsan til þess að leggja niður árásar- stöðvarnar, og í sama mund og Krúsév ítrekar þá yf- irlýsingu, tróna íslandskommar upp með áróðursfund í Háskólabíói. Þar er lýst algjöru fylgi við byggingu árásar- stöðvanna! Kastró er hylltur fyrir það að hopa hvergi og brýndur á því að standa sig vel gegn Bandaríkj- unum. Nú skuli hann halda áfram að byggja eldflauga- stöðvamar og láta engan bilbug á sér finna. Oft hafa íslenzkir kommúnistar orðið að athlægi og gert sig að viðundri á síðustu árum, en varla nokkm sinni sem í gær. Kastró og Krúsév reyndust hálfu vitrari en Magnús Kjartansson og kaffisellu- kerlingar og klapplið Páls Bergþórssonar. Væri ekki ráð að bíða með næsta áróðursfund, þangað til línan er örugglega komin til íslands? Kosningar til Bandarikja- þings fara fram f byrjun nóvember. Kosið verður m .a. um 39 sæti I öldungadeild Bandaríkjaþings. Á núver- andi þingi hafa Demokratar 21 þessara sæta en Repu- blikanar 18 sæti. Það er erf- itt 'að spá um kosningaúrslit í Bandarfkjunum, en eftir ýmsum sólarmerkjum að dæma er sennilegt að hlut- Kennedy Bandaríkjaforseti í Springfield á kosningaferðalagi sínu. Þýðingarmiklar kosn■ ingar fyrir Kennedy II föllin í deildinni breytist ekki mikið. Demokratar hafa nú 64. sæti en Republikanar 36 sæti. Þessar kosningar eru einkum þýðingarmiklar fyrir Kennedy Bandaríkjaforseta. Á þeim getur oltið hvort honum tekst að koma í gegnum þingið ýmsum af þeim málum, sem hann hefur lengst barizt fyrir og voru hans aðalkosningaloforð í forseta- kosningunum. Sennilegt er að Demokratar séu öruggir um 12 af þeim sæt- um, sem kosið verður um og Republikanar vissir um 8 sæti. Meðal þekktra Demokrata, sem eru ekki vissir um endurkjör eru Fulbright, formaður utan- ríkismálanefndar öidungadeild- arinnar Mike Monroney og Wayne Morse. Af Rebublikun- um eru i hættu foringi þeirra í öldungadeildinni Everett Dirk- sen, Thomas Kuchel, Thruston Morton og Alexander Wiley. Edward, bróðir Kennedy íor- seta, er ekki talinn alveg viss um kjör í Massachusetts, en forsetinn vann á sínum tíma sæti af Republikananum Henry Cabot Lodge, og hafa Demo- kratar haldið því síðan. Abraham Ribicoff, sem var heilbrigðismálaráðherra Kenne- dy-stjórnarinnar, en sagði af sér til að fara í framboð til öld- ungadeiidarinnar er talinn muni sigra Republikanann, Horace Seely-Brown jr., en þetta sæti er á núverandi þingi skipað Repubiikana. Þetta sæti er annað af tveim . sætum sem Demokratar eru nokkurn veginn vissir um að vinna af Reþublikunum. Annars Romney, frambjóðandi Repu- blikana í Michigan t. v.: hafa Demokratar stóra mögu- leika á að vinna 5—6 sæti af andstæðingum sínum. Republik- anar eru hins vegar ekki vissir um að vinna sæti af Demokröt- um. Af þeim níu s«tum, sem Georg Cabut Lodges (lengst t. v.) "asamt Éisenhovver (í miðju) á kosningafundi i Boston. Demokratar hafa haft, og óvissa ríkir um, eru aðeins þrjú í veru- legri óvissu. Talið er að Demo- kratar haldi hinum r’.eð litlum meirihluta. Á sama tíma sem kosið verð- ur til öldungadeildarinnar fara fram kosningar ríkisstjóra í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna. Mesta athygli vekur kosningin í Californiu, en þar eigast við nú- verandi ríkisstjóri Pat Brown og frambjóðandi Republikana í síð ustu forsetakosningum, Richard Nixon. Mikil óvissa ríkir um úr- slitin. Báðir flokkar leggja mik- ið kapp á kosninguna. Kennedy og Eisenhower hafa báðir komið þangað og Kennedy mun fara til Caiiforniu aftur, til að berj- ast fyrir Brown, og frambjóð- anda Demokrata til öldunga- deildarinnar. í New York er Nelson Rocke- feller talinn öruggur um sigur yfir andstæðing sínum Demo- kratanum Morgenthau. Þó er tal ið sennilegast að yfirborðir hans verði ekki eins miklir og i sigri Rockefellers yfir Averell Harriman fyrir fjórum árum. í Michigan er í framboði fyrir Republikana maður er oft heyr- ist nefndur líklegur frambjóð- andi þeirra við næstu forseta- kosni. gai. Það er Georg Romn- ey, fyrrverandi forstjóri Ameri- can Motors, sem framleiðir Rambler-bílana. Þykir margt benda til þess að Romney njóti vaxandi fylgis, og verði kjörinn með verulegum yfirburðum. J janúar verða liðin tVö ár frá því að John Kennedy tók við forsetaembættinu í Banda- ríkjunum. Það var í janúar, en hann var kjörinn í nóvember Ekkert nema eitthvað stórkost legt og ófyrirsjáanlegt getur komið í veg fyrir að hann verði aftur í kjöri til forsætisembætt isins. Sigur hans getur oltið á þvi hve miklar undirtektir fær hjá þinginu, en þær hafa fram að þessu verið miður góð Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.