Vísir - 30.10.1962, Page 1
Sjónvarpsleyfi þásund kr.?
í útvarpsþætti í gærkveldi gaf
menntamálaráðherra dr. Gylfi Þ.
Gislason ýmsar merkar upplýs-
ingar um sjónvarpið.
Kvað hann ekkert því til fyr-
irstöðu að hafizt yrði handa um
tilraunasjónvarp hér á landi eft-
ir tvö ár. Hann kvaðst ekki vera
í vafa um að fjárhagsgrundvöll-
ur væri fyrir íslenzku sjónvarpi
ef að sjónvarpsleyfið kostaði
1000 krónur á ári og menn væru
fúsir tii að kaupa það við því
verði. Þá mundi vera nægur
grundvöllur fyrir sjónvarpi, sem
næði til Faxaflóabyggða og Suð-
urlandsundirlendis.
Eins og Vísir skýrði frá fyrir
nokkrum dögum, hefur útvarpið
sent ríkisstjórninni tillögur um
að byrjað verði á sjónvarpi hér
á iandi eftir 2 — 3 ár, ásamt nauð
synlegum kostnaðarútreikning-
um.
■
- •...................
HESTUR
FYRIR BÍL
' Á laugardagskvöld um kl.
21,30 hljóp hestur fyrir bifreið
sunnan við Þórustaði í Eyjafirði
og slasaðist svo illa, að slátra
varð honum. Ungt par frá Akur-
eyri var á leið á dansleik að
Freyvangi í nýrri Taunus-bif-
reið, er hestur úr hópi hrossa,
sem var á vegkantinum, hljóp
fyrir bifreiðina og hentist fram-
an á bílinn, braut framrúðu og
beyglaði talsvert frambretti og
vélarhús. Bifreiðarstjórinn fékk
höfuðhögg við áreksturinn, en
meiðsli hans voru ekki að fullu
rannsökuð í gærkveldi, en munu
sennilega ekki vera aivarleg. En
eins og áður er sagt, var hest-
urinn það illa farinn, að það
varð að skjóta hann,
3 HAFNIIITURLYFJAMAHNS-
notkun INS ÍNN HALDID LÍYNDU
Þrengslavegurmn nýi hefur nú
verið tekinn í notkun. Var byrj-
að að fara hann fyrir helgina,
vegna þess að hálka var á Heil-
isheiði, en ekki þar, vegna þess
hve miklu lægra Þrengslin eru.
I fyrsta snjó vetrarins lá við
að vegurinn lokaðist. Á mánu-
dagsmorgun áttu mjólkur- og
vöruflutningabílar frá Selfossi i
verulegum erfiðleikum með að
komast Ieiðar sinnar. Var mesta
ófærðin í brekku í Þrengslun-
um, ekki langt frá þar sem Hell-
isheif'nrvegurinn liggur út af
Þrengslaveginum.
Voru sendar jarðýtur og veg-
heflar til að hreinsa veginn, og
var hann fljótlega fær öllum bíl-
um. Myndin er tekin í gærkvöld,
og sést á henni einn af vörubíl-
unum frá Selfossi, við hiið jarð-
ýtu, sem er á Ieið til baka frá
þvf að hreinsa veginn.
L
Yfirsakadómari sagði
Vísi í morgun að hann
teldi ekki tímabært að
gefa upp nafn þess manns,
sem fannst með fjölda eit-
urlyfja í fórum sínum á
miðvikudagskvöldið. Þeg-
*r blaðið innti hann eftir
ástæðunni kvað yfirsaka-
dómari, Logi Einarsson,
rannsókn ekki lokið og
ekki væri enn vitað hvort
naðurinn hefði aðhafzt
nokkuð refsivert.
, Vísir spurði hvort ekki væri rétt
að sum eiturlyfjaglösin hefðu ekki
verið merkt Lyfjaverzluninni, sem
j ein selur iyf hér á landi. Það sagði
| yfirsakadómari að væri reyndar
rétt.
Þá spurði blaðið yfirsakadóm-
ara, hvenær hann mundi gefa upp
nafn mannsins, hvort það yrði að
; Iokinni rannsókn. Yfirsakadómari
kvað það ailsendis óvíst, jafnvei
þótt sakir sönnuðust á manninn.
I Vísir benti á að nöfn árásarmanna
1 væru þó oftast birt almenningi.
Yfirsakadómari kvað það ekki allt-
af vera gert. Blaðið spurði um
hverjar reglur giltu um nafnabirt-
: ingu í sakamálum. Yfirsakadómari
1 kvað engar reglur gilda um það.
Hrakningar á Djúpi
Lítill bátur frá Bolungarvík,
Gissur Hvíti að nafni, lenti í
hrakningum á sunnudaginn. —
Höfðu þrír menn farið á hon-
um til Aðalvíkur til að skjóta
tófur og voru á heimleið, er vél
bátsins bilaði. Höfðu bátsverjar
ekki talstöð.
Reyndu þeir að ná til Bol-
ungarvikur á seglum, en tókst
ekki. Hrakti bátinn vestur yfir
ísafjarðardjúp. Var hann kom-
inn að Stigahlíð kiukkan hálf-
sjö um kvöldið, en hafði áður
séð til bátsins Særúnar. Reyndu
bátsverjar að vekja athygli á
sér með því að kynda bál á
dekkinu, en báturinn sigldi
framhjá.
Við Stigahlíð vörpuðu þeir
akkerum á átta faðma dýpi. Fór
formaðurinn, Jón Vagnsson, í
land á gúmmíbátnum og tókst
að lenda, þrátt fyrir brim og
illar aðstæður. Gekk hann síð-
an til Bolungarvíkur og kom
þangað kiukkan fjögur um nótt
ina. Voru þá allir bátar í burtu,
þar sem ekki var liggjandi við
brimbrjótinn í Bolungarvík sök-
um veðurs.
Fékk hann Vilmund Reimars-
son á Sædísi, með sér til ísa-
fjarðar, og fóru þeir þaðan á
Sædísi og sóttu Gissur Hvíta.
Höfðu tveir bátsverja verið i
bátnum allan tímann.
Blaðið spurði þá hvort yfirsaka-
dómaranum væri kunnugt um,
hvort nöfn manna, sem viðriðnir
væru eiturlyfjamál í nágrannalönd-
unum væru birt þar. Hann kvað
sér ekki kunnugt um að neinar á-
kveðnar reglur giltu þar heldur
um nafnabirtingu.
Vísir spurði þá, hvort maðurinn,
sem eiturlyfin fundust hjá, hefði
verið settur f gæzluvarðhald í
sambandi við rannsókn málsins.
Yfirsakadómari kvað það ekki
vera.
Þá spurði blaðið hve langt rann-
sókninni á hendur honum væri
komið og hvenær henni myndi
ljúka. Um það get ég ekkert sagt,
svaraði yfirsakadómari.
ant íer til
Havana íéag
U Thant, framkvæmda-
stjóri S.Þ., mun fljúga til
Eíúbu í dag til viðræðna
við Kastró forsætisráð-
herra. Hann kveðst ekkert
geta sagt um hvernig eft-
irliti S.Þ. með niðurrifi eld-
flaugastöðvanna verði hag
að fyrr en hann hefur rætt
við Kastró og samkomu-
!ag hefur náðst um aðgerð-
irnar.
Þó var tilkynnt í gærkvöldi að
Sameinuðu þjóðirnar hefðu óskað
eftir aðstoð sænskra liðsforingja,
sem áður hafa aðstoðað samtökin
við að halda uppi lögum og reglu
í Palestínu og síðar í Kongó.
Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær,
að hún hefði ákveðið að létta hafn
banninu af Kúbu í þá tvo daga,
sem U Thant framkvæmdastjóri
mun dveljast í Havana. Er þetta
gert samkvæmt sérstökum tilmæl-
um U Thants.
Taldi stjórnin þetta óhætt með
tilliti til þess, að hin rússnesku
vopnaflutningaskip, sem voru á
Ieiðinni til Kúbu ^eru nú öll snúin
við og komin langt frá Kúbusvæð-
inu á leið til rússneskra hafna. Á
þetta boð Bandaríkjamanna og að
sýna samkomulagsvilja.