Vísir - 31.10.1962, Blaðsíða 1
52. árg. — Miðvikudagur 31. október 1962 — 250 tbl.
TOCARI Ti
INNl
í nótt tók Ægir brezka togar-
ann Lincoln City að veiðum í land-
helgi út af Dýrafirði. Neitaði skip-
stjórinn að sigla togaranum til ís-
lenzkrar hafnar eftir handtökuna
og urðu skipsmenn af Ægi að fara
um borð f togarann, bæði i brú
og vélarrúm og sigldu þeir hon-
um inn til ísafjarðar snemma í
morgun. Brezki skipstjórinn hefir
fengið landhelgisdóm. Var það
1955 og var þá skipstjóri á brezka
togaranum Valafelli.
Ægir sá fyrst til togarans 3 sjó-
mílur innan landhelgi. Er togarinn
varð varðskipsins var sigldi hann
út úr landhelginni og náði Ægir
honum hálfa sjómíiu utan við land-
helgi. Var varpan þá úti en skip-
stjórinn ber að henni hafi ekki ver-
ERU UPP-
SAGNIRNAR
GILDAR ?
Læknadeilan var dómtekin í
Félagsdómi í gær. Kl. 5 á morg-
un verður lögð fram greinargerð
BSRB af hálfu læknanna. Félags
dómur fellir úrskurð um það,
hvort uppsagnir sjúkrahúslækna
skuli metnar gildar og hvort
þeim sé heimilt samkvæmt þeim
að leggja niður störf sín. Mál-
flytjandi læknanna er Guðmund
ur Ingvi.Sigurðsson, og af hálfu
ríkisstjórnarinnar Páll S. Páls-
ið kastað fyrr en eftir að togar-
inn kom út fyrir línuna. Réttarhöld
í málinu hefjast á ísafirði í dag.
Skipstjóri á Ægi er nú Guðmundur
Kjærnested.
Enginn
árangur
Sáttafun rinn í síldveiðideil-
unni stóð til kl. 3 f nótt, en ekk-
ert samkomulag náðist.
Nýr fundur hefur ekki verið
boöaður ennþá.
SIÐASTI DAGURINN
Læknar ræðast við á gangi í Landsspítalanum f morgun.
LEGGJA NIBUR STORF
Á miðnætti í kvöld
hætta 31 af 65 læknum
Landsspítalans og stofn
unum hans störfum. Eft-
ir verða einn og tveir
læknar á hverri deild
auk kanditata.
Vísir leitaðist við að afla upp-
lýsinga um ástandið og eins og
það liti út þegar læknarnir
hætta.
Prófessor Niels Dungal kvaðst
verða einn eftir af læknunum í
rannsóknarstofunum. Aðrir yf-
irlæknar véku sér undan því að
gefa upplýsingar og landlæknir
kvaðst vera önnum kafinn og
ekki hafa tíma til að ræða
málið.
Það er engu að síður aug-
ljóst, að Landsspítalinn getur
ekki gegnt hlutverki sínu nema
að mjög takmörkuðu leyti, eft-
ir að læknarnir hætta. Enginn
efast um að þeir, sem eftir eru,
reyni ekki að gera allt sem í
þeirra valdi stendur. En það er
aðeins takmarkað. Einn og tveir
læknar verða að vinna það sem
7 læknar unnu áður.
Á rannsóknastofunum verður
prófessor Dungal einn eftir ásamt
ólæknislærðu starfsfólki sínu.
Hann segir það ómögulegt að
anna því sem gera þarf og hljóti
að skapast „vandræðaástand",
eins og hann kallaði það.
Engir möguleikar eru á þyf að
fá aðra lækna f stað þeirra, sem
hætta. Að vísu er fjöldi íslenzkra
lækna f Svfþjóð og Danmörku,
en þeir munu ekki hlaupa í
skarðið. Ekki er búizt við því að
þeir komi, þótt svona standi á.
ALLAR SKEPN-
UR Á GJÖF
Það mun tæpast hafa komið
fyrir f manna minnum, ?.ð hag-
laust væri orðið með öllu um
vetumætur á Suðurlandi. En
það er staðreynd í dag í lág-
sveitum Árnes- og Rangárvalla-
sýslu. Þar er svellstorka yfir
allt eftir hríðarnar, blotana og
frostin að undanförnu og hver
einasta skepna á gjöf. Og það
sem verra er, að f svipinn er ekki
ert útlit fyrir bata, heldur þvert
á móti að það bæti á snjóinn f
nótt. Nokkur óhugur er í bænd-
um sem von er. Þeir eru ekki
vel heyjaðir eftir sumarið og
harðasti vetur þegar lagstur að.
Ástandið er talið mikiu betra í
uppsveitum á Suðurlandi, minni
snjór og þurrari og aligóð beit.
Allmikið hefur borið á því að
fé hafi fennt í hinum hörðu á-
hlaupum að undanförnu, t. d. í
Fljótshlíðinni og í Vestur-Skafta
fellssýslu. Þar hefur allmargt fé
fundizt dautt í fönn og krapa.
Fá óprestlærðir vígslu?
Á fundi kirkjuþings er nú starfar
sagði biskup íslands, Sigurbjörn
Einarsson, frá því, að komið gæti
til mála, að óprestlærðir menn
fengju vígslu, til að bæta úr presta-
skorti, sem fyrirsjáanlegur er á
r-'stu árum.
Sagði biskup, að þessi leið hefði
verið farin erlendis, þar sem presta
skortur er, svo sem í Danmörku.
Hafa erlendis verið vígðir menn,
sem gegnt hafa störfum djákna og
einnig menn, sem hafa háskólapróf
f öðrum greinum en guðfræði.
Prestaskortur er nú mjög víða
um heim, svo sem á Norðurlönd-
um, og virðist fyrirsjáanlegt að
hann verði alvarlegur hér á landi
eftir nokkur ár. Er hans þegar orð-
ið vart, þar sem þegar eru allmörg
prestaköll prestslaus og fæst eng-
inn til að þjóna þeim. Þess er þó I prestakalla stafar þetta af óviðun-
rétt að geta, að í mörgum þessara I andi húsnæði.
Vélariwr koma /
desembermáauði
Stóraukning Sogsvirkjunarinnar
stendur fyrir dyrum. Bætt verður
við 15500 kílóvatta vélasamstæðu
í írafossstöðina. Gunnar Thorodd-
sen, fjármálaráðherra, minntist á
þessa framkvæmd í útvarpsumræð
unum í gærkvöldi.
Jakob Guðjohnsen rafmagns-
stjóri sagði í viðtali við blaðið í
morgun að vélarnar væru væntan-
legar til landsins í desember og
uppsetning þeirra hæfist strax eft-
ir áramótin. Gert er fastlega ráð
fyrir að þessari stækkun verði
lokið að hausti eða fyrir lok næsta
árs