Vísir


Vísir - 31.10.1962, Qupperneq 1

Vísir - 31.10.1962, Qupperneq 1
52. árg. — Miðvikudagur 31. október 1962 — 250 tbl. TOCARI Ti INNl í nótt tók Ægir brezka togar- ann Lincoln City að veiðum í land- helgi út af Dýrafirði. Neitaði skip- stjórinn að sigla togaranum til ís- lenzkrar hafnar eftir handtökuna og urðu skipsmenn af Ægi að fara um borð f togarann, bæði i brú og vélarrúm og sigldu þeir hon- um inn til ísafjarðar snemma í morgun. Brezki skipstjórinn hefir fengið landhelgisdóm. Var það 1955 og var þá skipstjóri á brezka togaranum Valafelli. Ægir sá fyrst til togarans 3 sjó- mílur innan landhelgi. Er togarinn varð varðskipsins var sigldi hann út úr landhelginni og náði Ægir honum hálfa sjómíiu utan við land- helgi. Var varpan þá úti en skip- stjórinn ber að henni hafi ekki ver- ERU UPP- SAGNIRNAR GILDAR ? Læknadeilan var dómtekin í Félagsdómi í gær. Kl. 5 á morg- un verður lögð fram greinargerð BSRB af hálfu læknanna. Félags dómur fellir úrskurð um það, hvort uppsagnir sjúkrahúslækna skuli metnar gildar og hvort þeim sé heimilt samkvæmt þeim að leggja niður störf sín. Mál- flytjandi læknanna er Guðmund ur Ingvi.Sigurðsson, og af hálfu ríkisstjórnarinnar Páll S. Páls- ið kastað fyrr en eftir að togar- inn kom út fyrir línuna. Réttarhöld í málinu hefjast á ísafirði í dag. Skipstjóri á Ægi er nú Guðmundur Kjærnested. Enginn árangur Sáttafun rinn í síldveiðideil- unni stóð til kl. 3 f nótt, en ekk- ert samkomulag náðist. Nýr fundur hefur ekki verið boöaður ennþá. SIÐASTI DAGURINN Læknar ræðast við á gangi í Landsspítalanum f morgun. LEGGJA NIBUR STORF Á miðnætti í kvöld hætta 31 af 65 læknum Landsspítalans og stofn unum hans störfum. Eft- ir verða einn og tveir læknar á hverri deild auk kanditata. Vísir leitaðist við að afla upp- lýsinga um ástandið og eins og það liti út þegar læknarnir hætta. Prófessor Niels Dungal kvaðst verða einn eftir af læknunum í rannsóknarstofunum. Aðrir yf- irlæknar véku sér undan því að gefa upplýsingar og landlæknir kvaðst vera önnum kafinn og ekki hafa tíma til að ræða málið. Það er engu að síður aug- ljóst, að Landsspítalinn getur ekki gegnt hlutverki sínu nema að mjög takmörkuðu leyti, eft- ir að læknarnir hætta. Enginn efast um að þeir, sem eftir eru, reyni ekki að gera allt sem í þeirra valdi stendur. En það er aðeins takmarkað. Einn og tveir læknar verða að vinna það sem 7 læknar unnu áður. Á rannsóknastofunum verður prófessor Dungal einn eftir ásamt ólæknislærðu starfsfólki sínu. Hann segir það ómögulegt að anna því sem gera þarf og hljóti að skapast „vandræðaástand", eins og hann kallaði það. Engir möguleikar eru á þyf að fá aðra lækna f stað þeirra, sem hætta. Að vísu er fjöldi íslenzkra lækna f Svfþjóð og Danmörku, en þeir munu ekki hlaupa í skarðið. Ekki er búizt við því að þeir komi, þótt svona standi á. ALLAR SKEPN- UR Á GJÖF Það mun tæpast hafa komið fyrir f manna minnum, ?.ð hag- laust væri orðið með öllu um vetumætur á Suðurlandi. En það er staðreynd í dag í lág- sveitum Árnes- og Rangárvalla- sýslu. Þar er svellstorka yfir allt eftir hríðarnar, blotana og frostin að undanförnu og hver einasta skepna á gjöf. Og það sem verra er, að f svipinn er ekki ert útlit fyrir bata, heldur þvert á móti að það bæti á snjóinn f nótt. Nokkur óhugur er í bænd- um sem von er. Þeir eru ekki vel heyjaðir eftir sumarið og harðasti vetur þegar lagstur að. Ástandið er talið mikiu betra í uppsveitum á Suðurlandi, minni snjór og þurrari og aligóð beit. Allmikið hefur borið á því að fé hafi fennt í hinum hörðu á- hlaupum að undanförnu, t. d. í Fljótshlíðinni og í Vestur-Skafta fellssýslu. Þar hefur allmargt fé fundizt dautt í fönn og krapa. Fá óprestlærðir vígslu? Á fundi kirkjuþings er nú starfar sagði biskup íslands, Sigurbjörn Einarsson, frá því, að komið gæti til mála, að óprestlærðir menn fengju vígslu, til að bæta úr presta- skorti, sem fyrirsjáanlegur er á r-'stu árum. Sagði biskup, að þessi leið hefði verið farin erlendis, þar sem presta skortur er, svo sem í Danmörku. Hafa erlendis verið vígðir menn, sem gegnt hafa störfum djákna og einnig menn, sem hafa háskólapróf f öðrum greinum en guðfræði. Prestaskortur er nú mjög víða um heim, svo sem á Norðurlönd- um, og virðist fyrirsjáanlegt að hann verði alvarlegur hér á landi eftir nokkur ár. Er hans þegar orð- ið vart, þar sem þegar eru allmörg prestaköll prestslaus og fæst eng- inn til að þjóna þeim. Þess er þó I prestakalla stafar þetta af óviðun- rétt að geta, að í mörgum þessara I andi húsnæði. Vélariwr koma / desembermáauði Stóraukning Sogsvirkjunarinnar stendur fyrir dyrum. Bætt verður við 15500 kílóvatta vélasamstæðu í írafossstöðina. Gunnar Thorodd- sen, fjármálaráðherra, minntist á þessa framkvæmd í útvarpsumræð unum í gærkvöldi. Jakob Guðjohnsen rafmagns- stjóri sagði í viðtali við blaðið í morgun að vélarnar væru væntan- legar til landsins í desember og uppsetning þeirra hæfist strax eft- ir áramótin. Gert er fastlega ráð fyrir að þessari stækkun verði lokið að hausti eða fyrir lok næsta árs

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.