Vísir - 07.12.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 07.12.1962, Blaðsíða 1
] VÍSIR Sjóslysið í gærkvöldi: 52. árg. — Föstudaginn 7. desember 1962. — 276. tbl. ÞaS mátti ekki tæpara standa" — segir skip- stjórinn á Bergi Síldarbáturinn Bergur frá Vest- mannaeyjum sökk á 3 mín. undan Jökli í gærkvöldi. Mannbjörg varð þótt ekki mætti tæpara standa. Á- höfnin 11 menn, bjargaðist í gúmmíbát og yfir í Halkion frá Vestmannaeyjum, sem kom með skipbrotsmennina til Rvíkur kl. 4,30 í morgun. Það voru ekki margir á þessum tíma sólarhrings niðri á bryggju tii að fagna skipshöfn, sem hrifin hafði verið úr heljar greipum. En jafnvíst er þó hitt að ölium al- menningi hiýnar um hjartarætur þegar svo giftusamlega tekst til sem hér varð raunin á. Frh. á bls. 5. Nokkrir af helztu fasteigna- sölum borgarinnar eru sammála um það að árið 1962 sé fnetár i fasteignasölu. Guðmundur Þorsteinsson fasteignasali, kvað einna sterkast að orði, og sagði hann að s. I. tvö ár hefði fast- eignasalan farið vaxandi, og hann bætti því við að salan ykist ennþá. Fasteignasalamir töldu yfirvofandi skort á íbúð- um. Meðalverð nýlegra og nýrra íbúða bar á góma í viðtölum þeim sem Vísir átti við fast- eignasalana. Þeir töldu meðal- verð á tveggja herbergja íbúð- um vera um 3—350 þúsund krónur. Þriggja herbergja íbúð- ir, 70 fermetra kosta að meðal- tali 4—500 þúsund, 90 ferm. íbúðir um og yfir 550 þúsund. Fjögurra herbergja íbúðir kosta Framh. á bls. 5. Bergi. Gísli Stein- grímsson háseti, Guðjón Péturs- son .stýrimaður, Þórhallur Þór- arinsson, 2. véistjóri, Árni Stef- ánsson, matsveinn. Fremri röð: Högni Magnússon háseti, Krist- inn Pálsson skipstjóri, Gísli Ein arsson háseti, Elías Baidvinsson háseti, Gunnar Jónsson háseti, Vigfús Waagfjörd 1. vélstj., Vig- fús Ingólfsson háseti. — Mynd- in til hægri er af Stefáni Stéf- ánssyni skipstjóra á Halkion, er bjargaði áhöfninni af Bergi. Myndimar eru teknar kl. 4,30 í morgun er skipsmenn komu til Rvíkur (Ljósm. Vísis: I.M.). Geir Hallgrímsson hækkandi framlögum til gatna- og holræsagerð- Fjórhagsóætlun Reykjavíkur 1963 lögð fram Geir Hallgrímsson borg- arstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar árið 1963 á fundi borgarstjórnar í gær. í fjárhagsáætlun- inni er gert ráð fyrir stór hækkuðum framlögum til verklegra fram- kvæmda, og einnig ar. Borgarstjórinn taldi unnt að veita 11% frá- drátt á útsvörum, en einnig kæmi til greina að frádrátturinn yrði meiri. Hækkanir á gjaldalið fjárhagsáætlun arinnar er margar vegna launahækkana, en einn- ig vegna aukinna fram- laga, eins og fyrr getur, svo og vegna nokkurra nýrra liða. í frv. að fjárhagsáætlun fyrir árið 1963 eru rekstrargjöld á- ætluð kr. 339.414.000,— en voru áætluð á yfirstandandi ári kr. 287.557.000. — Hækkun- in nemur kr. 51.857.000. —, eða um 18,03%, í þessari upphæð er innifalið hækkað framlag til nýrra gatna og holræsa, 13,5 millj. kr., úr 41.5 millj. kr. árið 1962 í 55 millj. kr. árið 1963. Framlag til þessara fram- kvæmda, sem fært er með rekstrargjöldum, hækkar þann- ig um 32.5%. Á eignabreytinga- reikningi eru gjöldin áætluð kr. 72.654.000.— í stað kr. 55.800.000.—. Hækkunin nem- ur kr. 16.854.000.- eða 30.2%, og er því hér um að ræða stór- Framh. á bls. 6. 1 r í r 'T' ■> K .T 'T'T’ - rrf;

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.