Vísir - 11.12.1962, Page 4
VÍSIR . Þriðjudagur 11. desember 1902.
„Aldamótamenn
✓ ✓
Tvær ævisögur eftir Hagalín
Guðmundur G. Hagalín er af-
kastamikill rithöfundur, sem sést
bezt á því, að hann sendir nú á
þessu hausti frá sér tvær ævi-
sögur, hvort tveggja stórar bæk-
ur. Þetta gerði hann líka í fyrra
og hitteðfyrra. Önnur bókin, sem
hann gaf út f fyrra var ævisaga
Kristínar Helgadóttur Kristjáns-
son, Það er engin þörf að kvarta.
Nú er komið annað bindi þessar-
ar ævisögu, Margt býr í þokunni.
Þar er sögð saga Kristínar allt
frá þvf er hún kom heim til ís-
lands með dætur sfnar haustið
1930 til þess er hún fór vestur
um haf 7. apríl 1962, en hún
lézt vestra 20 dögum síðar. Höf-
undur ritar formála fyrir bókinni
og skýrir þá frá vinnubrögðum
þeirra og lýsir kynnum sínum
af henni. Þar segir m a: „Dular-
gáfur hennar voru miklar og
margþættar, og það, sem fyrir
hana bar, átti ríkan þátt í að
móta skaphöfn hennar og lífs-
stefnu. En að áhrif þess urðu
þau, sem raun bar vitni, var fyrst
og fremst því að þakka, hver
efniviður var í henni. Og þó að
mér þættu reyndar merkilegar
sýnir hennar og vitranir, þótti
mér brátt enn meira til hennar
koma fyrir sakir skapgerðar
hennar og mannkosta, og fyrst
og fremst þeirra vegna verður
hún mér ógleymanleg." Bókin er
328 bls. að stærð, útgefandi er
Skuggsjá.
Hin bók Hagalíns er einnig gef-
in út af Skuggsjá. Heitir hún
að duga eða drepast og er ævi-
saga Björns Eiríkssonar skip-
stjóra og bifreiðastjóra. Hefur
Hagalín skráð hana eftir hand-
riti Björns sjálfs, munnlegri frá-
sögn og fleiri heimildum. Lýsir
bókin kröppum kjörum og hetju-
legri baráttu kjarkmikillar en
hart leikinnar fslenzkrar alþýðu
á merkilegum tímamótum. Auk
sögumanns er brugðið upp mynd-
um af fjölda annarra karla og
kvenna, en þar að auki eru glögg-
ar Iýsingar á lífi togaramanna og
annarra sjómanna. Er þar ekki
sfzt vikið að samskiptum íslend-
inga og brezkra togaramanna,
sem ekki hafa ævinlega verið
sem bezt. Bókinni er skipt í 27
kafla, og hún er 302 blaðsíður.
Hefur Hagalín nú samtals sent
frá sér 45 bækur.
Jönas Jónsson
frá Hriflu.
Bókaforlag
Odds Bjöms-
sonar hefir
sent frá sér
þriðja og síð-
asta bindið af
verki Jónasar
Jónssonar frá
Hriflu, „Alda-
mótamenn —
Þættir úr hetju
sögu“.
I bók þessari
VEFARADANS
Gunnar M. Magnúss rithöfund-
ur hefur sent frá sér nýja skáld-
sögu, sem hann nefnir „Vefara-
dans“, en undirtitill „Úr veröld
ungra elskenda“. Bókaútgáfan
Dverghamar gaf út.
Gunnar M. Magnúss er mikil-
virkur höfundur, því þetta er 25.
Trilla
Út er komin ný barnabók eftir
Joyce Brisley, en áður hafa kom-
ið út 5 barnabækur eftir sama
höfund hjá Skuggsjá f Hafnar-
firði. Þessi nýja bók heitir Trilla,
og kemur hún út í íslenzkri þýð-
ingu Skúla Jenssonar. Þetta er
saga um litla telpu, sem bjó ein
í Iitlu húsi ásamt ömmunni sinni
góðu. Þegar hún var ein heima,
ímyndaði hún sér, að brúðumar
og blómin og hvaðeina væri lif-
andi. Lenti Trilla f hinum furðu-
legustu ævintýrum með þessum
leikfélögum sínum. Bókin er 108
bls., prýdd fjölda mynda, útgef-
andi er Skuggsjá.
bók hans í röðinni og eru sum
fyrri rita þá mikil að vöxtum eins
og Virkið í norðri, sem kom út
í þrem stóram bindum. Fyrsta
bók hans „Fiðrildi“ kom út 1928,
en það var smásagnasafn. Þótt
Gunnar sé jafn mikilvirkur höf-
undur og raun ber vitni hefur
hann ekki skrifað nema tvær
skáldsögur fram að þessu „Brenn
andi skip“, sem kom út 1935 og
„Salt jarðar" er kom út sex ár-
um seinna.
1 þessari nýju skáldsögu sinni
tekur Gunnar til meðferðar æsku-
líf fólks f Reykjavík hin síðustu
ár, ástir þess og síðan baráttu „f
hringiðu spillingarinnar við fjár-
glæframenn, svikara, síðar við
dómstólana og réttvfsi landsins“.
Aðalpersónur f bókinni er ung
dægurlagasöngkona og unnusti
hennar sem er í senn járnsmíða-
,iemi og hugvitsmaður. Þá kemur
allmikið við sögu sérkennilegt
skáld, hrjúft á yfirborðið, en heitt
hið innra og loks er lftill drengur,
sá heitir Gunnar rauðhærður
snáði, sem tekur á sinn hátt þátt
í baráttu, ást og þjáningum hinna
sögupersónanna.
er fjallað um Þorgils gjallanda,
Guðmund Guðmundsson, Valdi-
mar Briem, Stephan G. Stephans-
son, Þórarin Böðvarsson, Guð-
mund Friðjónsson, Jón Trausta,
Þorvald Thoroddsen, Bjama Sæ-
mundsson, Einar Benediktsson,
Harald Níelsson, Einar H. Kvar-
an, Markús Bjarnason, séra Jón
Bjarnason og Stefanfu Guðmunds
dóttur. Þá er og nafnaskrá fyrir
öll bindin.
í greinum þessum bregður höf-
undur upp myndum af nokkrum
þeirra manna, sem hann varð
samferða á nokkrum hluta ævi
sinnar og eru margar þeirra ágæt
lega gerðar, eins og vænta má.
En hér er einungis ritað um látið
fólk, og í eftirmála segir Jónas,
að ýmsir hafi spurt hann, hvers
vegna hann geri það, hvers vegna
hann velji ekki menn af sinni
eigin kynslóð fyrir yrkisefni. —
Hann teíur það erfitt, því að „við-
burðir undangenginna ára eru
margslungnir og verða væntan-
Iega að bíða nokkra stund eftir
fullum skilum ... Þegar lýkur
Aldamótamönnum mfnum hef ég
í hyggju að rita og gefa út á
forlagi Odds Björnssonar, ef líf
og heilsa endist, rit, sem yrði
kallað Samtíðarmenn. Það yrði
eins konar framhald af því, sem
ég hef áður skrifað um aldamóta-
fólk ... hef ég þar verið sjónar-
vottur að flestu, sem um verður
rætt.. “
Þetta síðasta bindi Aldamóta-
manna er 195 bls. að stærð og
vandað að öllum frágangi.
Tvær barnabækur
Guðmundur Hagalín.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef
ur nýlega sent frá sér tvær
barnabækur, sem báðar eru lík-
Iegar til að vekja athygli. Fyrri
bófein heitir Spól og er éftir' Ölaf
Jóhann Sigurðsso rithöfund, en
hann samdi tvær barnabækur á
unga aldri. Urðu þær báðar vin-
sælar og voru gefnar út f mörg-
um útgáfum. Heita þær Við Álfta
vatn og Um sumarkvöld Þessi
nýja bók Ólafs fjallar um spóa
nokkurn, sem gerði víðreist til að
verða sér úti um kvonfang og
rataði í hin margvíslegustu ævin-
týri. í bókinni eru myndir, sem
gerðar eru af Helgu Sveinbjörns
dóttur, urígri listakonu.
Hin barnabókin heitir 1 lofti og
læk og er eftir Líiiéyju Jóhánnes-
dóttur. í henni eru fjórar sögur:
Fótbrotna marfuerlan, Hrafns-
hjón, Uglan Blóðugklóa og Lækj-
arlontan. Myndskreytingar í bók
ina hefur Barbara Ámason gert,
svo og kápu.
-..............—
2 nýjar bækur frá Leiftri
Leiftur h.f. hefur nýlega sett á
bókamarkaðinn bók eftir Val-
borgu Bentsdóttur.
Er það safn ljóða og sögu-
korna sem hún nefnir: Tii þín.
Tvisvar átján ástarljóð ásamt sjö
sögukornum.
Sem lítið sýnishorn af Ijóðlist
Valborgar er hér eitt erindi, upp-
hafserindi úr kvæðinu MINNING:
Með lokuð augu ég læt mig
dreyma
það Ijóð, er eitt sinn ég til þín
kvað.
Þótt vetur ríki, ég vil ei gleyma,
hve veröld glitraði haustið það,
er nýtt varð letur á ljóðum
mfnum,
er lffið fögnuð mér ungan gaf,
ég öllu gleymdi f örmum þínum,
í ástardraumi ég hjá þér svaf.
I þessari smekklegu bók eru all
margar myndir, teiknaðar af
Valgerði Briem.
Hin bókin er sagan Ást í
myrkri. Þetta er „saga úr skugga
lífi Reykjavfkurborgar", segir í
bókarkápunni. Höfundurinn er
ung kona, Ingibjörg Jónsdóttir,
ættuð úr Reykjavík. Lýsingar
hennar eru hispurslausar og ber-
orðar. „Bökin er prentuð á góðan
pappír og er 136 bls.
TVÍSÝNN LEIKUR v<>r
Ut er komin skáldsagan Tví-
sýnn leikur eftir Theresu Charles
f þýðingu Andrésar Kristjánsson-
ar ritstjóra. Þetta er stór saga,
208 blaðsfður í allstóra broti.
Fjallar hún um ástir læknis og
hjúkranarkonu, en að baki lifir
önnur kona dularfullu lífi, svo
hjúkrunarkonan veit ekki, hvort
það er hún, sem unnið hefur ást-
ir læknisins, eða hvort þar lifir
aðeins minningin um aðra konu,
sem hún geti keppt við. „Gæti
hún unnið trúnað læknisins,
þrengt sér inn í innstu fylgsni
hjarta hans og unnið og varðveitt
hið trygga hjarta, sem hún vissi
slá undir hvftum sloppi hins
stranga skurðlæknis? Mundi
henni takast að vernda hann op
bjarga úr þeim vef, sem hin slægs
systir Úrsúla spann umhverfrí
hann?“
Bókin er prentuð í Prentverki
Akraness, útgefandi er Skuggsjá.
Út er komin bók, sem nefnist
Ljúfa vor, eftir Magnús Hólm
Árnason, bernskuminningar höf-
undar og eyfirzkir þættir. Út-
gefandi er Prentsmiðja Björns
Jónssonar h.f. Akureyri. Bók
þessi er 160 blaðsíður og skiptist
að efni til í þrjá meginkafla e’
nefnast: Endurminningar, Frá
söguþættir úr Eyjafirði og Úi
Vísnasyrpu. Margir frásöguþætti:
eru í þessari bók og allmarga
myndir. Hún er prentuð í Prent
smiðju Björns Jónssonar h.f.
NÝ SKÁLDKONA
Það gerist æ tíðara hér — og
mun ekki vera neitt íslenzkt fyrir
bæri — að konur láti að sér
kveða á ritvellinum.
Fyrir nokkru kvaddi sér hljóðs
ing kona, Magnea frá Kleifum
3g kom fyrsta saga hennar sen
‘’ramhaldssaga f tfmaritinv
„Heima er bezt“ fyrir nokkru
Útgefendur þess munu hafa fund-
ið vinsældir sögunnar, því að nú
háfa þeir gefið hana út í bókar
formi, og jafnframt birta þeir
nýja framhaldssögu eftir sama
höfund í timaritinu. Saga sú, sem
komin er út í bókarformi, heitir
.Karlsen stýrimaður" og fjallar
um ástir stýrimannsins og þeirra,
;em í landi sitja og bíða hans.
Bókaforlag Odds Bjömssonar
gefur út, en bókin er 162 bls. í
handhægu broti.