Vísir - 11.12.1962, Page 5
VlSIR . Þriðjudagur 11. desember 1962.
v
• •
SOLUHÆSTU
BÆKURNAR
Nú er mesti bóksölutími ársins hafinn. Mikið ber á þvi, að fólk
fari að kaupa jólabækumar fyrir kunningja sína utanbæjar og
erlendis. Salan eykst jafnt og þétt unz hún nær hámarki síðustu
daga fyrir jól. Samkvæmt upplýsingum bóksala í Reykjavik seij-
ast þessar bækur nú mest, tölurnar innan sviga tákna stöðu bók-
anna á síðasta lista:
1. Jónas Ámason: Syndin er lævís og lipur (1).
Jónas Þorbergsson: Líf er að loknu þessu (2).
Því gleymi ég aldrei (safn frásagna).
Stefán Jónsson: Mínir menn (4).
2.
3.
4.
5. Með Valtý Stefánssyni (samtöl Valtýs).
Tímofrétt bor-
in til bnko
Dagblaðið Tíminn skýrði frá því
í morgun, að brotnað hefði 13
metra skarð í brimbrjótinn í Bol-
ungarvík í óveðrinu fyrir helgina.
Fréttaritari Visis bar þessa fregn
til baka í símtali í dag. Sagði hann
að skarð það, sem um ræðir, væri
gamalt. Hins vegar hefði brimbrjót
urinn skemmzt eitthvað lítilshátt-
ar í þessu veðri.
Lucin —
Fran.hald al bls. 1
Lucia kemur fram á skemmtun
íslenzk-sænska félagsins. Fyrir
utan Luciu-söngvana, sem Lucia
og þernur hennar syngja á
skemmtun félagsins á fimmtu-
dagskvöldið mun ambassador
Svía, von Hartmannsdorff flytja
ávarp, og einnig verður sýnd
kvikmynd frá Svíþjóð.
Luciu-hátíð hefur verið hald-
in hér í Reykjavík í um það bil
20 ár, og Guðlaugur Rósin-
kranz, formaður íslenzk-sænska
félagsins, tjáði blaðinu í morg-
un, að hátíðirnar væru ævin-
lega fjölsóttar, enda skemmtileg
ur og fastur þáttur orðinn í
starfi félagsins hér.
Garnaveiki —
Framhald af h)s l
í Skagafirði og Árnessýslu. Þeg
ar dr. Björn heitinn Sigurðsson
frá Veðramóti fann upp nýja
aðferð til bólusetningar á sauð
fé við garnaveiki fór að ganga
betur í sókninni gegn garna-
veikinni og tjón af völdum
hennar farið síminnkandi.
Ekkert er vitað um hvernig
kindurnar á Skálpastöðum hafa j
smitazt. Þess er að geta, að
sýkillinn lifir utan kindarinnar, j
og smitun getur því átt sér stað
án þess að hún berist með sauð
fé. Annars er ekki samgang-
ur við fé norðan og sunnan
Hvítár, og svo sem fyrr var
sagt, mun nú hart nær áratug-
ur síðan r- ’veiki varð vart
í Borgarfj: héraði norðan
Hvítár.
Að sjálfsögðu verður gripið
til allra þeirra ráðstafana sem
nauðsynlegar og gerlegar eru
til þess að hindra útbreiðslu
veikinnar, m.a. til bólusetning-
ar með aðferð þeirri sem um
var getið hér að ofan.
Furðustrandið —
Framh. af bls. 1.
Hér er um að ræða mjög al-
varlegt mál. Það er á almanna
vitorði, að það sé töluvert al-
gengt að skipstjómarmenn neyti
Arfleiddi líknarfélag
í gær var Styrktarfélagi lamaðra
og fatlaðra formlega afhent til eign
ar húseignin Eiríksgata 19 í Reykja
vík. Það var Ástríður Jóhannes-
dóttir prófastsekkja hér f bæ, sem
andaðist s. 1. vetur, sem arfleiddi
félagið að húseign sinni. Frú Ást-
ríður heitin var gift séra Magnúsi
Þorsteinssyni prófasti, en hann er
látinn fyrir okkrum árum.
Húsið Eiríksgata 19 er tvær hæð-
ir og kjallari og er að fasteignamati
175.000 krónur, en láta mun nærri
að verðmæti þess sé um 1 milljón
króna. Svavar Pálsson, formaður
stjórnar Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra, skýrði Vísi frá því, að
ekki hefði enn verið ákveðið hvað
gert yrði við húseignina, en ákvörð
un um það yrði tekin einhvern
næstu daga.
Happdrætti S.Í.B.S:
Dregið hefur verið i 12. flokki
Vöruhappdrættis S. í. B. S. um
1555 vinninga að fjárhæð kr.
2.240.000,00. Eftirtalin númer
hlutu hæstu vinninga:
500.000,00 kr.
3308
ovíUR Slcu
SELUR
<2*
Seljum í dag og næstu daga:
Singer Vogue ‘62, ekinn 7 þús.
km. Volksagen rúgbrauð ‘60. —
Dodge Pick-up ‘54. Plymouth ‘47
á góðu verði. Orvalsgóður Dodge
Weapon ‘53 með 15 manna húsi.
Austin Gipsy ‘62. Óskum eftir
Comet ‘62, Falkon ‘62, Mercedes
Benz ‘62, S-modelið í skiptum fyr
ir Volkswagen ‘62. •
litreiðasalan Borgartum l
Slmat 18085 og 19615. — Heima
sími 20048.
100.000,00 kr.
24341 27429
50.000,00 kr.
2593 7641 39379 53951
10.000,00 kr.
6405 7190 10224 15212 21515
25725 28355 34127 34846 36245
40350 41611 42555 46366 46415
46830 50200 50374 53546 58311
59279 59467 60890 63629 64110
5.000,00 kr.
312 2820 3212 3401 4859
5949 6179 6716 8741 9454
9652 10436 10910 11242 12131
12923 12975 13051 13802 14093
14290 15866 17221 18253 19311
19833 20404 20546 22278 22463
24557 24990 25121 25902 28786
29060 29710 29959 31894 31898
32482 34959 35376 35965 36112
37477 38360 42420 42622 43633
44829 45228 46970 47169 51416
51541 52238 55459 56199 57013
58733 58806 59375 59699 59886
60350 60357 60662 01154 61252
61964 62432 63134
(Birt án ábyrgðar).
áfengis og vitað er, að sum
skipsströnd og skipsskaðar hafi
orðið vegna þess að áfengi hef-
ur verið í spilinu. Það er al-
kunna að á þessu ári hafa um
400 manns verið teknir vegna
ölvunar við akstur í Reykjavík
og er þess vandlega gætt að
safna jafnan hið bráðasta sönn-
unargögnum um slíkt. En hvað
er gert til varnaðar ef skip
strandar? Þar er þó brýnni á-
stæða til að rannsaka það, hvort
áfengi hefur verið haft um hönd
í þýðingarmesta trúnaðarstarfi.
Sjópróf munu nú halda áfram
vegna hins furðulega skips-
strands Esju, sem svo að segja
lamar strandsiglingarnar um
nokkurra vikna tímabil. Er full
ástæða til að yfirheyra skips-
höfn og farþega nákvæmlega
um þetta alvarlega atriði, hvort
áfengi hafi sézt á skipsstjórnar-
mönnum.
manna, sem við hann vinna, eða
575-600 þús. kr. á mánuði. Af
þeim kostnaði greiðir Jarðhitasjóð
ur lögum samkvæmt helming og
kaupstaðurinn hinn helminginn.
j Verði árangur af boruninni ber
bæjarfélaginu að endurgreiða Jarð
hitasjóði útlagðah kostnað hans,
annars ekki. En eins og fyrr segir
eru Húsvíkingar vongóðir um ár-
angur af þessari jarðhitaleit og
hugsa sér að leggja hitaveitu um
kaupstaðinn.
Húsavík —
Framh. rt ols 16.
þessari borun og hefst hún eftir
hátíðarnar. Unnið verður á þrí-
skiptum vöktum allan sólarhring-
inn, og kostar borinn 10 þúsund
krónur á dag, auk launa þeirra
Hamarinn —
Framhald af bls. 16
á skaftinu eru einnig skornar
margar skorur. Hamarinn hefur
verið mikið notaður og á hon-
um eru smávegis merki um
málningu, menju og bleika
málningu.
Þekkir nú einhver íbúa borg-
arinnar þennan hamar? Það
væri fróðlegt að vita það, —
kannski hefur hamrinum líka
verið stolið, kannski getur
hann leitt til þess að þessir
freku innbrotsþjófar verða
gripnir, ef einhver kannast við
hamarinn. Hver sem gæti gefið
upplýsingar ætti að koma með
þær til þess að forða öðrum
bæjarbúum undan þessari þjófa
hættu.
NÖFN f
Það hefur um nokkurt skeið
verið f Iögum, að útlendingar,
sem fá íslenzkan ríkisborgara-
rétt, séu skyldir að taka sér um
leið íslenzka nafn. Mun þetta
gert til þess að vernda íslenzka
tungu fyrir erlendum áhrifum, j
og sá tilgangur er út af fyrir
sig góðra gjalda verður. Hitt er
svo annað mál, að nöfn eru
mjög viðkvæmt mál fyrir ein-
staklinga, og þykir mörgum sem
þeir missi hluta af sjálfum sér,
þegar þeir eru neyddir til að
leggja niður nafn sitt.
Á meðan þessi lög eru í gildi,
spretta upp fyrirtæki hér í bæn
um með stórum og litrikum
neonljósum, þar sem skráð eru
eldstöfum alls konar útlend orð
skrípi, kannski með kommu yfir
einum eða tveimur stöfum, og
er það látið gott heita. Nýlega
skýrði eitt dagblaðanna frá því,
að samþykkt hefði verið firma-
nafnið Magnóva, með því skil-
yrði, að komma væri yfir o-inu.
Þessi tvö ákvæði stangast al-
gerlega á við hvort annað og
verður að dæma slíkt sem
skrípaleik. Nöfn fyrirtækja eru
miklu meira áberandi þáttur í
daglegu lífi almennings en nöfn
fáeinna útlendingá, sem setjast
að hér. Orðskrípi eins og Hý-
gea, Ócúlus, Herco o. s. frv.
blasa daglega við mönnum flest
um til Ieiðinda, en ef Thorbjöm
Egner settist hér að, yrði hann
að lieita Þorbjörn Eiriarsson t)g
Jan Sibelíus yrði þá líklega kall
aður Jón Sigurbjörnsson. Eink-'
um hljómar þetta annarlega,
þegar fjöldi borinna og bam-
fæddra íslendinga heita útlend-
um nöfnum, sem sum hver hafa
verið í málinu í margar aldir.
Ný mynd
Framh. af 1. síðu.
vaningsbragur væri á frammistöðu
íslenzku leikaranna, og þeir hefðu
„eftirtektarverð andlit".
Þá sagði þjóðleikhússtjóri og, að
myndin hefði verið sýnd víða um
Iand að undanförnu, og aðsókn
verið góð. Sýningargestir eru orðn
ir um 50,000, en áætlað var, að
þeir þyrftu að verða 50—55 þús-
und, til þess að tekjur hrykkju fyr-
ir kostnaði. Væri því tryggt að
hægt væri að greiða allan kostnað
og safna einhverju í sjóð, sem gott
yrði að eiga, þegar ráðizt yrði í
töku næstu myndar, svo að ekki
þyrfti að notast eingöngu við láns-
fé.
Baráttaa vii háikuna
Baráttan við hálkuna
á götum borgarinnar
mun kosta hvorki meira
né minna en 800 þús.
krónur á næsta ári. Er
gert ráð fyrir þeirri upp-
hæð á fjárhagsáætlun-
inni sem kom fram í
fyrradag.
í pessari háu upphæð er inni-
falið salt og sandur, verka-
mannakaup í 48 þús. tíma og
bifreiðakaup í 1800 tíma.
En það er ekki aðeins um-
ferðin á vetrum, sem er borgur-
unum óhjákvæmilega dýr. Heft-
ing göturyksins á sumrin kost-
ar nákvæmlega sömu upphæð,
eða 800 þús. krónur. Hreinsun
gatna borgarinnar mun hins veg-
ar eðlilega kosta mun meira
næsta ár eða alls fimm og hálfa
millj. króna.
Og í þessu sambandi má geta
þess, að kostnaðurinn við sorp-
hreinsun borgarinnar verður
væntanlega tæpar 12 millj. kr.
á næsta ári. Það þarf að hreinsa
hvorki meira né minna en 22
þús. sorptunnur. Við það vinna
83 menn og er hver tunna að
jafnaði tæmd vikulega. Og allt-
af bætast nýjar og nýjar tunn-
ur í hópinn eða að meðaltali
10000 á ári. Alls eru notaðar
17—18 bifreiðir við sorphreins-
unina.
■EraoæsaaHa