Vísir - 12.12.1962, Síða 1

Vísir - 12.12.1962, Síða 1
VISIR 52. árg. — Miðvikudagur 12. desember 1962. — 280. tbl. ALLAR FARSÓTTIR GANGAl BÆNUU Læknir einn hefur skýrt Vísi svo frá aö hann muni varla eft- ir öðrum eins veikindum i bæn um eins og síðustu vikumar. Eru ýmiss konar farsóttir að ganga og þá fyrst og fremst mislingar, sem þó em tiltölu- lega vægir núna. Þá er mjög mikið um kvef og hálsbólgu og Iiður mörgum illa í þeirri hálsbólgu sem nú gengur. Hafa læknar f borginni mjög mikið að gera vegna þessa, sérstak- lega er mikið um að fólk biðji þá um að koma í hús. Skýrsla borgarleeknis um far sóttir í Reykjavík staðfestir þetta. En í síðustu skýrslu frá borgarlækni, sem nær yfir tímabilið 25. nóv. til 1. des. kemur í ljós, að þá hafa ný mislingatilfelli verið 158, kvef- tilfelli hafa verið 220, hálsbólga 105, hettusótt 14, kveflungna- bólga 13, skarlatssótt 17, munn angur 9, hlaupabóla 8, rauðir hundar 2, inflúenza 2. Þessi listi er að vísu orð- inn 10 daga gamall, en iækn- irinn, sem Vísir átti tal við, telur að þessar umferðarsóttir hafi jafnvel aukizt upp á síð- kastið. Og eins og listinn sýnir, þá eru á ferðinni hér um bil allir þeir næmu sjúkdómar, er enn hrjá íslendinga. Auðvitað er lang mest um þá í börnum og veldur það mörgum heimil- um erfiðleikum, ekki sízt í jóla önnunum, þar sem báðir for- eldra vinna úti. i JÓLAPÓSTURINN Jólapósturinn kemur nú sem óðast til landsins. Mun nú mest af honum komið, sem kemur með skipum. Mynd þessi er tekin niðri við höfn í morgun, þegar verið var að skipa upp pósti úr Selfossi. Allur pósturinn, sem sést á bflnum, er frá Vestur-Þýzkalandi. Cn Hekla Sá fáheyrði atburður skeði kl. 3—4 í nótt, að strandferðaskipið Hekla sigldi framhjá Búðakauptúni í Fá- skrúðsfirði og beint upp í mjúkan sandinn fyrir miðjum botni fjarðarins á móts við innstu húsin í kauptúninu, nánar til- á Fáskrúðsfírði tekið á móts við Odda, sem er meðal þeirra húsa. Þama stendur skipið og hreyf ist ekki fremur en fjallahótel og líður öilum farþegum vel, enda hafa þeir fast land undir fótum. Þegar Fáskrúðsfirðingar komu á fætur í morgun þótti þeim nokkur nýlunda hafa borið til og þegar þeir komu á strandstaðinn munaði minnstu að vei stígvélaðir menn gætu vaðið út að skipinu. Skipsmenn höfðu ekki farið í land, né held- ur farþegar. Olíuskipið Þyriil er á Fáskrúðsfirði og gerði ein- hverja tilraun til að draga skip- ið á flot i nótt, en þá var ekki nógu hátt í sjó. Vísir hafði í niorgun tal af Einari Sigurðssyni skipasmið í Odda á Fáskrúðsfirði. Hann er manna kunnugastur staðháttum þarna og bjóst við að skipið væri óskemmt, þarna sæist ekki steinn í flæðarmálinu, aðeins mjúkur sandur. Einar gerði og helzt ráð fyrir því að skipið myndi losna með flóðinu í dag, um kl. 2. Hann kvaðst ekkert vita fyrir víst um það hvað skipstjómarmenn hefðu ætlazt Framh. á bls. 5. Gerðist í óveðri — segir forstjóri Ríkisskip Að því er forstjóri Skipaút- gerðar rikisins, Guðjón Teits- son tjáði Vísi um hádegið í dag, var Hekla að koma að sunnan, en vonzkuveður var fyrir Austfjörðum í nótt, rok og hríðarbyljir. Treysti skipið sér ekki inn á neinn Suðurfjarð- anna, hvorki Djúpavog, Breið- dalsvík né Stöðvarfjörð og lagði því inn á Fáskrúðsfjörð. Frh. á bls. o Loftmynd af Búðum í Fáskrúðsfirði, sem sýnir leið Heklu og strandstað. .1.1; ,

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.