Tölvumál - 01.05.2002, Page 11
Universa
um bækur, og fagfólk skrifar bókardóma.
Óvissan í notkun námsefnismiðlarans
felst því í hve vel tekst að setja fram trú-
verðugt viðskiptalíkan. Spurningarnar sem
vakna eru:
1. Hver fær greitt fyrir sölu kennsluefnis-
ins? Er það kennarinn eða háskólinn?
Kennari fær greitt fyrir að skrifa bók.
3. Hver greiðir fyrir kennsluefnið? Er það
háskólinn, kennarinn eða jafnvel nem-
andinn? Nemandi kaupir bók.
4. Hver rekur námsefnismiðlarann og fær
tekjur af færslum í gegnum hann? Ut-
gefendur sjá um að prenta og markaðs-
setja bækur og fá hluta af sölu þeirra.
Einnig má vel hugsa sér að námsefnið
sé ókeypis. Það er t.d. þannig um ýmsan
hugbúnað, rnargar greinar og efni á vefn-
um. Vel gæti hugsast að háskólar sæju sér
hag að því að kennarar þeirra gæfu út
námsefni frítt og væru þannig auglýsing
fyrir háskólann. Háskólinn umbunaði svo
kennaranum fyrir framleiðslu námsefnis-
ins. Þegar eru komin fram dæmi urn þetta,
það frægasta er líklega ‘Opencourseware’
hjá MIT (http://web.mit.edu/ocw/)
Avinningur
Ljóst er að enn á eftir að svara mörgum af
þeim spurningum sem verkefnið dregur
fram. Nú býðst liáskólum sem ekki eru
þátttakendur í verkefninu að gerast aðilar
að UBP og skiptast á námseiningum við
aðra háskóla. Verkefnið er enn á tilrauna-
stigi en við frekari kynningu á hugmynd-
inni og miðlaranum sjáum við hver áhugi
háskóla í Evrópu verður.
Nemendur ættu að sjá eftirtalinn ávinn-
ing af UBP tækninni:
• Dreifnám, nemendur sækja námsein-
ingar annarra háskóla sem eru viður-
kenndar af viðkomandi háskóla
• Betra námsefni, auðveldara/meira að-
gengi að ýmsum námseiningum
• Ódýrara námsefni, stærri markaður
(fleiri nemendur) fyrir hverja námsein-
ingu
Það er von verkefnisaðila að sem flestir
sjái sér fært að kynna sér nánar miðlarann
sem nú er unnið að í verkefninu og er að-
gengilegur á vefnum: http://www.ist-uni-
versal.org. Frá og með janúar 2002 býðst
öllum háskólum í Evrópu að skiptast á
námseiningum bæði sem bjóðendur og
viðtakendur.
1 Hugtakið dreifnám lýsir blöndu af staðbundnu
námi og fjamámi. Nánari lýsingu má sjá á vefnum
http://www.menntagatt.is/
2 http://www.ist-universal.org
3 http://ltsc.ieee.org/doc/index.html
Höfundar:
Ebba Þóra Hvannberg er Dósent við tölvunarfræðiskor
í Háskóla Islands, http://www.hi.is/~ebba
Sigrún Gunnarsdóttir starfar við Rannsóknardeild
Landssíma Islands, http://rannsoknir.simnet.is
Sæmundur E. Þorstejnsson starfar við Rannsóknardeild
Landssima Islands, http://rannsoknir.simnet.is
Ný stjórn Skýrslutæknifélag íslands og framkvæmdastjóri -2002
Hólmfríður Arnardóttir
framkvæmdastjóri, Olafur
Aðalsteinsson varamaður er
hjá LSH, Einar H. Reynis
meðstjórnandi er hjá
Landssíma Islands, Heiðarjón
Hannesson varamaður er hjá
Vika, Brynja Cuðmundsdóttir
gjaldkeri er hjá Skýrr,
Sigurborg Gunnarsdóttir
meðstjórnandi er hjá
Tölvumiðstöð sparisjóðanna,
Eggert Olafsson formaður er
hjá Upplýsingatækniþjónustu
Reykjavíkurborgar og Svana
Helen Björnsdóttir er hjá
Stika. A myndina vantar
Stefán Kjærnested varafor-
mann en hann er hjá
Ríkisbókhaldi.
Tölvumál
11