Tölvumál - 01.05.2002, Page 19
Kaup á sérþekkingu
Nýting ytri auðlinda
Leiðarvísir lítilla fyrirtælcja við kaup á sérþekkingu
Michel F. Corbett
Eins og sjá má hér
að neðan þar sem
taldar eru upp helstu
hindranir lítilla fyrir-
tækja við kaup á sér-
fræðiþekkingu utan
fyrirtækisins er helsta
hindrunin ótti við að
missa stjórnina.
Síðastliðinn áratug hafa bandarísk
stórfyrirtæki (Fortune 500) í síaukn-
um mæli fært ákveðna þætti í starf-
semi sinni út úr fyrirtækinu og til sér-
hæfðra fyrirtækja með svokallaðri útvist-
un. Þessi stórfyrirtæki hika ekki við að fá
utanaðkomandi sérfræðinga til þess að
taka að sér verkefni sem áður voru unnin
innan fyrirtækisins. Með þessu hafa þau
dregið úr kostnaði, bætt skipulag og aukið
hraða og sveigjanleika innan fyrirtækisins.
„Fólk með sérþekkingu getur unnið verk
sem fellur undir þess svið betur og ódýrar
en aðrir,“ segir Herb Kelleher hjá Sout-
hwest-flugfélaginu. Bandarísk stórfyrir-
tæki hafa því orðið skilvirkari og sveigjan-
legri og bætt þjónustu sína með því að
leita til sérfræðinga með ákveðna þætti
rekstrarins.
Málið horfir öðruvísi við litlum fyrir-
tækjum. Sveigjanleiki og lipurð fylgir
smæð þeirra, þau eru sérhæfð og vinna
verk sín af ástríðu. Aftur á rnóti skortir þau
oft ýmsa verkkunnáttu, tækni, fjármagn,
hagkvæmni í rekstri og önnur úrræði sem
hin stærri hafa aðgang að. Eigendur lítilla
fyrirtækja þurfa líka að gæta þess að láta
reksturinn ekki íþyngja sér svo mjög að
þeir geti ekki einbeitt sér að uppbyggingu
fyrirtækisins.
Vegna þessara sérkenna smærri fyrir-
tækja er styrkurinn í að leita út fyrir fyrir-
tækið ekki endilega fólginn í því að endur-
skilgreina og -skipuleggja starfsemina í
því skyni að auka hraða og skilvirkni
heldur er útvistun rniklu frekar til þess
fallin að auðvelda þeim að leggja aukna
áherslu á styrkleika sína.
Fyrstu skrefin
Öll fyrirtæki, smá sem stór, eiga eitt sam-
eiginlegt: Fyrstu skrefin í að kaupa til-
tekna þjónustu utan fyrirtækisins eru oft-
ast erfiðust. Eins og sjá má hér að neðan
þar sem taldar eru upp helstu hindranir lít-
illa fyrirtækja við kaup á sérfræðiþekk-
ingu utan fyrirtækisins er helsta hindrunin
ótti við að missa stjómina. Eigendur
smærri fyrirtækja eru vanir að stjórna
sjálfir starfsfólkinu, vinnuferlinu og tækn-
inni sem notuð er við starfsemina svo
þeim þykir erfitt að sætta sig við þá hug-
mynd að færa eitthvað af þessu út fyrir
fyrirtækið. Það getur þó verið vel þess
virði að sigrast á óttanum.
Helstu hindranir lítilla fyrirtækja við
kaup á sérfræðiþekkingu utan fyrirtækis-
ins:
1.1. Ótti við að missa stjórnina.
2. Vinna talin of stefnumarkandi.
3. Tilfinning fyrir sérstöðu fyrirtækisins.
4. Verðmætamat.
Heimild: The 2001 Strategic Outsourcing Study -
The Outsourcing Research Council
Með því að nýta sér þjónustu samstarfs-
aðila öðlast eigendur lítilla fyrirtækja að-
gang að bestu þekkingu sem völ er á
hverju sinni þótt þeir borgi aðeins fyrir
þann hluta sem þeir nota, og aðeins þegar
þeir þurfa á henni að halda. Þegar eigandi
smáfyrirtækis hefur einu sinni leitað út
fyrir fyrirtækið kemur það honum oft á
óvart að þegar eru til lausnir á mörgum
helstu vandamálunum sem fyrir hendi eru
í rekstrinum. Eða eins og James Brian
Quinn, prófessor við Darthmouth-háskóla,
orðar það: „Það getur aldrei orðið meiri
nýsköpun innan einstaks fyrirtækis en alls
staðar umhverfis það.“
í hinum fjölþætta og margbrotna heimi
nútímans koma bestu lausnirnar - á öllum
sviðum nema helsta sérsviði hvers fyrir-
tækis - í sífellt meiri mæli utan frá. Ef lít-
ið fyrirtæki ætlar að halda í við keppinaut-
ana, hvað þá að komast fram úr þeim,
verður það sífellt að nýta sér þessar ytri
Tölvumál
19