Tölvumál - 01.05.2002, Blaðsíða 21
Kaup á sérþekkingu
4. skref. Það krefst góðrar stjómunar að
flytja starfsemi út úr fyrirtækinu og til sér-
fræðinga utan þess. Eigandi fyrirtækisins
getur að sjálfsögðu ekki varpað frá sér
ábyrgð á því hver árangurinn verður, ætl-
unin er einfaldlega að ná sama eða betri
árangri á nýjan og skilvirkari hátt. Eigand-
inn verður að vinna með fólki, bæði innan
og utan fyrirtækisins, og sjá til þess að
flutningurinn gangi snurðulaust fyrir sig.
Hafa skal í huga hvaða áhrif breytingin
hefur fyrir starfsmennina - sér í lagi þá
sem vinna þau störf sem fyrirhugað er að
flytja út úr fyrirtækinu - og hjálpa þeim
við flutninginn. Ekki má heldur gleyma
viðskiptavinunum. Best er að útskýra fyrir
þeim, ef það á við, hvað fyrirtækið hefur í
hyggju, hvers vegna og hvemig breytingin
gerir því kleift að veita enn betri þjónustu
í framtíðinni.
5. skref. Þegar líður á samstarf fyrirtækj-
anna skipta þrjú atriði meginmáli: sam-
skipti, samskipti og samskipti. Samskipti
fyrirtækjanna geta aldrei orðið of mikil.
Samt sem áður skyldi varast að reyna að
stjórna fyrirtæki samstarfsaðilans fyrir
hann. Opin samskipti á báða bóga eru fyr-
ir öllu, og að báðir aðilar hafi ætíð upplýs-
ingar um hvað gert er og hvers vegna.
Einnig er mikilvægt að ræða sífellt um
hvað gengur vel og hvað mætti betur fara.
Mikilvægt er að hafa í huga þarfir fyrir-
tækisins í framtíðinni, t.a.m. eftir þrjá
mánuði, og hvað gæti þá hafa breyst frá
því sem nú er. Stjórnendur fyrirtækja ættu
líka að vera opnir fyrir nýjum hugmynd-
um og nýbreytni - og samstarfið ætti að
verða óþrjótandi uppspretta nýsköpunar.
Til að gera langa sögu stutta má segja
að möguleikar fyrirtækja til að bæta starf-
semi sína með útvistun hafi sannað sig
rækilega. Forystuhæfileikar skipta sköp-
um í þessu tilliti, eins og ætíð. Eigendur
lítilla fyrirtækja ættu að bæta nýtingu ytri
þekkingar við listann yfir nauðsynleg við-
skiptatæki. Þegar upp er staðið er það geta
þeirra til að stofna til réttra viðskiptasam-
banda, við rétta samstarfsaðila, af réttum
ástæðum, og stýra samstarfinu farsællega,
sem skapar mestu verðmætin fyrir fyrir-
tækið, starfsmenn þess og viðskiptavinina.
Sex helstu mistök lítilla fyrirtækja við
kaup á þjónustu utan fyrirtækisins:
1. Að skilgreina ekki nákvæmlega hvaða
árangurs er vænst og og hvernig á að
mæla hann.
2. Að ræða ekki við núverandi og fyrrver-
andi viðskiptavini samstarfsaðilans.
3. Að hugleiða ekki áhrif langvarandi
samstarfs.
4. Að skrifa undir staðlaðan samstarfs-
samning til margra ára.
5. Að gera ekki áform fyrir fram um
hugsanleg lok samstarfsins.
6. Að koma fram við samstarfsaðilann
eins og utanaðkomandi aðila.
Heimild: Michael F. Corbett & Associates, Ltd.
Michel F. Corbett er forstjóri Michel F. Corbett
& Associates itd, formaður og framkvæmda-
stjóri The Outsourcing Research Council.
Hann er einn fremsti ráðgjafi og fyrirlesari
heims á sviði útvistunar.
B® ItllKMSIOIt
r® IÍWKV\i\A
Tölvumál
21